Fara í efni

Öldungaráð

18. fundur
11. júní 2025 kl. 13:00 - 15:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Albert Eymundsson aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir aðalmaður
Jóna Bára Jónsdóttir
Ari Jónsson
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Málsnúmer 202412045
Í upphafi árs var ákveðið að hefja undirbúning við mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034. Ákveðið var að stofna vinnuhóp vegna vinnslunnar og var hann skipaður fulltrúm bæjarstjórnar, velferðarnefndar, Félagi eldri Hornfirðinga og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hópurinn hóf undirbúning við tvær vinnustofur sem haldnar voru í apríl og maí og voru vel sóttar og þóttu heppnast vel. Hópurinn hefur nú fundað sex sinnum og unnið úr niðurstöðum vinnustofanna.
Farið yfir minnisblað um niðurstöður vinnustofa um mótun framtíðarsýnar um málefni aldraða.

Forgangsröðun og frekari vinna við mótun hennar fer fram í sumar og haust og stefnt að kynningu á loka útgáfu í nóvember.
2.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202306046
Farið yfir stöðuna á byggingu hjúkrunarheimilis.
Farið yfir stöðuna á framkvæmdum í Skjólgarði og bókun bæjarráðs um stöðu verkefnisins.

Öldungaráð óskar eftir því að aðili komi inn á fund ráðsins í haust og upplýsi aftur um stöðuna þá.
3.
Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging
Málsnúmer 202503079
Fulltrúi frá Gláma-Kím kemur á fundinn og fer yfir stöðu verkefnisins.
Hönnuðir frá Gláma-Kím fóru yfir stöðu verkefnisins. Unnið er út frá því að nýta betur þau rými sem til staðar eru og fá betra flæði dagsbirtu í innri rými hússins. Horft er til þess að félagsstarf í austur enda hússins verði endurbætt verulega og eins verði horft til þess að bæta aðstöðu dagþjónustu aldraðra í vestur enda hússins.

Farið var yfir mögulegar leiðir við fjölgun íbúða á svæðinu í framtíðinni og voru þar ræddir möguleikar um viðbyggingar við Ekruna eða byggja ofaná. Kanna þarf þessa möguleika frekar og munu hönnuðir halda áfram með þá vinnu.

Öldungaráð tekur vel í þær hugmyndir sem komnar eru á þessum stigum og óskar eftir því að fá frekari kynningu á verkefninu í haust.
4.
Reglur um stuðningsþjónustu
Málsnúmer 202505009
Nýjar reglur um stuðningsþjónustu liggja til samþykktar hjá bæjarstjórn. Reglurnar byggja á leiðbeinandi reglum félags og vinnumarkaðsráðuneytins og taka mið að breytingum sem kveðið er á um í aðgerðaáætlun yfirvalda í málefnum aldraðra, Gott að eldast. Nýjar reglur lagðar fram til kynningar.
Farið yfir nýjar reglur um stuðningsþjónustu hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.