Fara í efni

Öldungaráð

2. fundur
15. mars 2017 kl. 12:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson formaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Albert Eymundsson aðalmaður
Sigurður Örn Hannesson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fasteignagjöld eldri borgara
Málsnúmer 201703038
Sigurður Örn Hannesson bar upp erindi fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga þar sem vakin er athygli á því að sveitarfélagið veiti lágan afslátt af fasteignasköttum. Farið var yfir samanburð á viðmiðunarupphæðum milli nokkurra sveitarfélaga. Ráðið beinir því til bæjarráðs að fara yfir reglur sveitarfélagsins um afslátt af fasteignasköttum.
2.
Framkvæmd félagslegrar heimilishjálpar
Málsnúmer 201703049
Félagsmálastjóri greindi ráðinu frá því að nauðsynlegt hafi verið að skerða félagslega heimilishjálp í byrjun árs vegna manneklu. Búið er að leysa vandann tímabundið og er félagsmálastjóri vongóður með framhaldið.
3.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017 - Bygging hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201609013
Matthildur Ásmundardóttir greindi frá stöðu undirbúningsvinnu vegna nýs hjúkrunarheimilis og fór yfir frumdrög að teikningum.