Öldungaráð
21. fundur
4. febrúar 2026
kl.
13:00
-
15:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Eiríkur Sigurðsson
aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Jóna Bára Jónsdóttir
Ari Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging
Loka hönnun og áætlanir í tengslum við fyrsta áfanga endurbóta á jarðhæð Ekrunar sem hýsir dagþjónustu og félagsstarf aldraðra lagðar fram til kynningar. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að gera endurbætur á Ekrusalnum, skipta um gólfefni, loftaklæðningu og bæta hljóðvist í salnum ásamt því að setja upp nýjan margmiðlunar og fjarfundarbúnað. Eldhúsið verður stækkað, innréttingar og tæki endurnýjuð og þá verður skipt um gólfefni og loftaklæðningu í andyrri hússins. Þá verða kynntarf fyrstu hugmyndir að hönnun útisvæðis við Ekrusalinn.
Bæring og Sigbjörn frá Gláma-Kím fóru yfir loka hönnun fyrsta áfanga framkvæmda í Ekru. Öldungaráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi hönnun.
Einnig voru sýndar fyrstu hugmyndir um mögulegt útisvæði við Ekrusalinn. Tvær tillögur að palli/garði og sólskála lagðar fram. Öldungaráð lýsir yfir ánægju sinni með tillögurnar og leggur áherslu á að vinna útfærslurnar áfram að teknu tilliti til allra þátta svo sem veðráttu og eldvörnum.
Öldungaráð þakkar þeim Bæring, Sigbirni og Birni Imsland kærlega fyrir kynninguna.

2.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Farið yfir stöðuna á uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs og áætlanir um framvindu verkefnisins.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um stöðu verksins. Endanleg verkáætlun liggur ekki fyrir en er væntanleg á næstu dögum.
Öldungaráð óskar eftir því að fá fulltrúa frá Vigdísarholti mæti á næsta fund til að gera grein fyrir því hvernig staðið verði að flutningi heimilismanna á gamla Skjólgarði yfir á nýjan og hvernig þjónustu verður háttað á framkvæmdatíma á gamla Skjólgarði.
Öldungaráð spyr um meðferð ályktun ráðsins frá 19. fundi sem var 1.10.2025. Formaður gerir grein fyrir meðferð hennar í bæjarstjórn. Óskað er eftir því að bæjarstjóri komi á næsta fund ráðsins til að fylgja eftir frekari vinnslu í tengslum við ályktunina.
Öldungaráð þakkar fyrir yfirferðina.

3.
Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Samkvæmt framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði skal skipta spretthóp til að fara yfir framkvæmd úrræða er varða heilsueflingu eldri borgara í sveitarfélaginu. Spretthópurinn skal starfs á fyrri hluta ársins og skila af sér afurð á vormánuðum. Farið yfir árorm um skipun hópsins, markmið með vinnunni og hvernig standa skuli að henni.
Sviðsstjóri fór yfir minnisblað um framkvæmd spretthóps um heilsueflingu eldri borgara í sveitarfélaginu. Félagið mun tilnefna tvo fulltrúa í spretthópinn á næsta fundi félagsins. Að öðru leiti gerir öldungaráð ekki athugasemd fyrirhugaða vinnu.
Öldungaráð fagnar því að þessi vinna sé að fara í gang og hlakkar til að fara fyrir niðurstöður vinnu þess þegar þær liggja fyrir.
Öldungaráð fagnar því að þessi vinna sé að fara í gang og hlakkar til að fara fyrir niðurstöður vinnu þess þegar þær liggja fyrir.
4.
Úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu 2026
Farið yfir áform um úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs. Áætlað er að úttektin fari fram í febrúar og mars og niðurstöður liggi fyrir í lok apríl. Velferðarnefnd fagnar því að verið sé að fara í þessa vinnu og hlakkar til að sjá niðurstöður úttektarinnar. Málinu vísað áfram til frekari umfjöllunar í notendaráði fatlaðs fólks.
Sviðsstjóri fór yfir minnisblað um framkvæmd á úttekt á starfsemi stuðnings- og virkniþjónustu á velferðarsviði.
Öldungaráð gerir ekki athugasemd við framkvæmd úttektarinnar og óska eftir að fá kynningu niðurstöður hennar þegar þær liggja fyrir.
Öldungaráð gerir ekki athugasemd við framkvæmd úttektarinnar og óska eftir að fá kynningu niðurstöður hennar þegar þær liggja fyrir.
5.
Barna og ungmennaþing 2025
Þann 18. nóvember var haldið Barna- og ungmennaþing á Hornafirði, þar sem yfir 300 börn og ungmenni tóku þátt. Grunnskólar sveitarfélagsins og framhaldsskólinn tóku þátt, ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og RÍN-hópum sem kynntu sínar nálganir á þeim málstofum sem voru til umfjöllunar. Einnig tók elsti árgangur leikskólanna þátt og fór yfir málin.Grunnniðurstöður þingsins voru kynntar tveimur dögum síðar eða þann 20.nóvember, en Ungmennaráð hefur óskað eftir því að starfsfólk fræðslusviðs kynni nánari niðurstöður fyrir öllum ráðum, fastanefndum og starfsstöðvum sveitarfélagsins.
Emil Morávek gerði grein fyrir fyrirkomulagi og niðurstöðum ungmennaþings sem haldið var í nóvember síðastliðin. Verið er að vinna út úr niðurstöðunum og verða þær notaðar t.d. til að vinna nýja aðgerðaáætlun í barnvænu sveitarfélagi.
Góðar umræður sköpuðust um niðurstöðurnar.
Öldungaráð þakkar fyrir yfirferðina.
Góðar umræður sköpuðust um niðurstöðurnar.
Öldungaráð þakkar fyrir yfirferðina.
6.
Hornafjörður náttúrulega
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjölunnar.
Drög að endurnýjaðri heildarstefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega.
Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna
Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna