Sameiginlegur fundur íbúaráða
1. fundur
13. apríl 2026
kl.
13:00
-
15:00
Hrollaugsstöðum
Nefndarmenn
Jón Ágúst Guðmundsson
Jolanta Maria Biel
Matthildur U Þorsteinsdóttir
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
Ásthildur Gísladóttir
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
Eyrún Fríða Árnadóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Á fundi um starfsemi íbúaráða var fjallað um fyrirkomulag, hlutverk og framtíð ráðanna. Umræður beindust að þörf á skýrari afmörkun hlutverks þeirra, verklagi og stöðu innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, með það að markmiði að efla starfsemi þeirra og tryggja markvissara samráð við íbúa.Fram kom að mikilvægt sé að hlutverk íbúaráða verði formfest áður en ný ráð taka til starfa, m.a. með endurskoðun og uppfærslu erindisbréfs. Þá var lögð áhersla á að íbúaráð gegni hlutverki tengiliðar milli íbúa og stjórnsýslu og sinni upplýsingamiðlun og umræðu um málefni svæðisins, fremur en framkvæmdarhlutverki.Rætt var að einn kjörinn fulltrúi sitji fundi íbúaráða hverju sinni og fylgi eftir þeim málum sem þar koma fram. Íbúaráð haldi að jafnaði fjóra fundi á ári, með möguleika á aukafundum eftir þörfum, auk þess að standa fyrir opnum fundi með íbúum árlega og sameiginlegum fundi allra íbúaráða þar sem stærri mál eru til umfjöllunar.Jafnframt var fjallað um mikilvægi þess að tryggja gagnsætt og aðgengilegt upplýsingastreymi, bæði til og frá íbúum, og að fundargerðir og önnur gögn séu skýr, ítarleg og aðgengileg.
Íbúaráðin leggja til að ný bæjarstjórn taki málefni íbúaráða til frekari skoðunar í samráði við íbúaráð, með það að markmiði að skýra hlutverk þeirra, starfshætti og umgjörð.
Íbúaráðin telja mikilvægt að endurskoðun og uppfærsla erindisbréfs fari fram áður en skipað verður í ný íbúaráð og að sú vinna verði unnin á haustmánuðum. Jafnframt er lagt til að skipan nýrra íbúaráða fari fram að þeirri vinnu lokinni, þegar fyrir liggur skýrari rammi um starfsemi þeirra.
Íbúaráðin telja mikilvægt að endurskoðun og uppfærsla erindisbréfs fari fram áður en skipað verður í ný íbúaráð og að sú vinna verði unnin á haustmánuðum. Jafnframt er lagt til að skipan nýrra íbúaráða fari fram að þeirri vinnu lokinni, þegar fyrir liggur skýrari rammi um starfsemi þeirra.