Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

100. fundur
4. júní 2025 kl. 12:00 - 14:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Bartek Andresson Kass
Xiaoling Yo
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Hoffellslambatungur, stjórnunar og verndaráætlun
Málsnúmer 202411083
Náttúruverndarstofnun auglýsir tillögu að breytingu á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs sem varðar Hoffellslambatungur. Umsagnarfrestur er til og með 12. ágúst næstkomandi.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
2.
Stækkun byggingar, Fiskhóll 11, deiliskipulag
Málsnúmer 202501089
Bartek kemur inn á fundinnLagt fram minnisblað vegna grundunar á svæðinu.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að breyting á deiliskipulagi verði unnin og lögð fram þegar samþykki meðeigenda liggur fyrir.
3.
Umsókn um lóð fyrir hleðslustöð - ON
Málsnúmer 202502059
ON leggur fyrir drög að deiliskipulagi fyrir nýja hleðslustöð við smábátahöfnina við Óslandsveg.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Jöklaleiðin - rekstur og eftirlit
Málsnúmer 202505120
Hlynur Axelsson arkitekt hefur unnið að hönnun Jöklaleiðar og kemur inn á fundinn. Nú hafa þó nokkrir áfangar leiðarinnar verið byggðir upp og mikilvægt að rekstri hennar sé komið í varanlegt horf.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir góða kynningu og telur mikilvægt að rekstri leiðarinnar sé komið í varanlegt horf. Starfsmanni falið að vinna tillögur að rekstri leiðarinnar í samráði við Menningarmiðstöð.
5.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401096
Lögð er fram breytt tillaga að aðalskipulagsbreytingu í samræmi við niðurstöðu fundar umhverfis- og skipulagsnefndar um að helminga skyldi uppbyggingaráform.Óskað er eftir að breyting verið tekin til skipulagsmeðferðar.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
6.
Horn - Deiliskipulag
Málsnúmer 202501021
Tillaga að deiliskipulagi að Horni var auglýst frá 10.3. til 21.4. 2025. Umsagnir bárust frá HAUST, Vegagerðinnim, Minjastofnun og Landhelgisgæslu Íslands.
Samkvæmt umsögn Minjastofnunar liggur staðfest fornleifaskráning ekki fyrir og er málinu því frestað.
7.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040Tillaga á vinnslustigi til kynningar og umsagnar til 6. ágúst 2025Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 21. maí 2025 að hefja kynningu á aðalskipulagstillögu á vinnslustigi í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Framlögð gögn má nálgast í Skipulagsgátt (www.skipulagsgatt.is) en þau eru: Skipulagsgreinargerð, forsendu- og umhverfismatsskýrsla og aðalskipulagsvefsjá (https://geo.alta.is/hornafjordur/ask). Sjá einnig verkefnisvefinn www.hornafjorduradalskipulag.is Kynningarfundir og opin hús um aðalskipulagstillöguna:Fjarfundur um þéttbýlið á Höfn verður þann 18. júní kl. 15-17.Fjarfundur um dreifbýlið verður þann 19. júní kl. 15-17.Opið hús umhverfis- og skipulagsstjóra í Hofgarði 19. júní kl. 9-13.Opið hús umhverfis- og skipulagsstjóra í Holti 24. júní kl 9-16. Opið hús umhverfis- og skipulagsstjóra á Höfn 26. júní kl 9-16.Tenglar á fjarfundina verða settir á vef og Facebook-síðu sveitarfélagsins. Upptökur af fundunum verða aðgengilegar þar eftir á.
Lagt fram til kynningar.
8.
Framkvæmd - Hraðahindranir, umferðaröryggi
Málsnúmer 202504070
Lögð er fram tillaga að útfærslu á tveimur hraðahindrunum í formi upphækkaðra gangbrauta, sem settar yrðu við báða enda Fákaleiru. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir því að "við innkeyrslu frá Fákaleiru og Álaleiru inn á svæðið skuli setja hraðahindranir og viðeigandi skilti". Vegna framkvæmda við leikvöll á Leirusvæði og tilheyrandi breytingu á umferð barna um svæðið er einnig fyrirhugað að skilgreina botnlangana við Hagaleiru og Fákaleiru (beggja megin við leikvöll) sem vistgötur, og setja þar viðeigandi skilti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útfærsluna og fagnar bættu umferðaröryggi á svæðinu.
9.
Landfylling í Sílavík
Málsnúmer 202505089
Tekið er fyrir erindi Náttúrustofu Suðausturlands vegna framkvæmda í Sílavík.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið. Ekki stendur til að losa meiri efni í átt að Sílavík (s.s. til austurs frá núverandi uppfyllingu). Unnið verður að frágangi svæðisins, lagfæringu á göngustíg ásamt sáningu í framhaldinu.