Umhverfis- og skipulagsnefnd
101. fundur
3. september 2025
kl.
14:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Xiaoling Yo
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Dagskrá
1.
Útihirslur í almenningsrýmum
Lagt er fram minnisblað um grenndarstöðvar í sveitarfélaginu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar umhverfisfulltrúa kynninguna.
Umhverfisfulltrúa er falið að leggja fram uppfært kort af núverandi sorptunnum og óska eftir kostnaðarmati fyrir nýjar tunnur.
Umhverfisfulltrúa er falið að leggja fram uppfært kort af núverandi sorptunnum og óska eftir kostnaðarmati fyrir nýjar tunnur.
2.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2025
Lagt er fram minnisblað um umferðaröryggisáætlun þar sem farið er yfir stöðu verkefnisins. Skipa skal fulltrúa frá umhverfis- og skipulagsnefnd á samráðsfund sem er áætlaður í október og koma með ábendingar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tilnefnir Þröst Jóhannsson og Finn Smára Torfason sem fulltrúa nefndarinnar á samráðsfund.
Nefndin felur starfsmanni að taka saman ábendingar frá íbúum sem borist hafa nefndinni sl. tvö ár.
Nefndin felur starfsmanni að taka saman ábendingar frá íbúum sem borist hafa nefndinni sl. tvö ár.
3.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Kynnt drög skipulagsráðgjafa að minnisblaði um breytta tillögu að aðalskipulagsbreytingu.
Aðalskipulagsráðgjafi frá Alta kynnti drög að minnisblaði um breytingatillöguna. Nefndin felur starfsmanni að vinna áfram að málinu í samráði við skipulagsráðgjafa, ljúka minnisblaðinu og senda til landeigenda/framkvæmdaraðila.
4.
Hoffell - Breyting á aðalskipulagi
Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna uppbyggingaráforma fyrir Hoffell í Nesjum var í kynningu frá 15. janúar til 15. febrúar 2025. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Andrési Skúlasyni, Minjastofnun, Brynju Dögg Friðriksdóttur/Helgu Valgerði Friðriksdóttur/Sveini Heiðari Friðrikssyni/Sigurbjörgu Helgadóttur, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni, Forsætisráðuneytinu og Náttúruverndarstofnun.Svör við umsögnum hafa borist frá umsækjanda.
Málið tekið til umræðu og er því frestað til næsta fundar.
5.
Hoffell - Nýtt deiliskipulag
Skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags vegna uppbyggingaráforma fyrir Hoffell í Nesjum var í kynningu frá 15. janúar til 15. febrúar 2025. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Andrési Skúlasyni, Minjastofnun, Brynju Dögg Friðriksdóttur/Helgu Valgerði Friðriksdóttur/Sveini Heiðari Friðrikssyni/Sigurbjörgu Helgadóttur, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni, Forsætisráðuneytinu og Náttúruverndarstofnun.Svör við athugasemdum hafa borist frá umsækjanda.
Málið tekið til umræðu og er því frestað til næsta fundar.
6.
Deiliskipulagsbreyting - Borgarhöfn 2-3, Neðribær, skemma
Breyting á deiliskipulagi Borgarhafnar Neðribæjar var auglýst frá 22. júlí með athugasemdarfresti til 2. september 2025. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytingu fyrir Borgarhöfn Nýjabæ í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Lögð eru fram drög að tillögu deiliskipulags Skaftafells.
Helga Árnadóttir vék af fundinum undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt og afgreidd til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sömu laga að lokinni kynningu.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

8.
Íshellar, rör í innganga - Umsókn um framkvæmdarleyfi
Lagt er fram erindi frá Glacier Adventure um leyfi til að koma fyrir sérsmíðuðum plaströrum í tveimur inngöngum íshella til að tryggja öryggi gesta og starfsfólks.
Helga Árnadóttir vék af fundinum undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina ekki framkvæmdaleyfisskylda þar sem ekki er um meiriháttar framkvæmd að ræða þegar haft er til hliðsjónar stærð svæðis, umfang framkvæmdar, varanleiki og árhif á landslag og ásýnd umhverfisins og önnur umhverfisáhrif. Umsækjanda er bent á að afla leyfis Náttúruverndarstofnunar áður en til framkvæmdar kemur.

9.
Stjórnsýsla - Umhverfis og skipulagsnefnd, framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála
Lögð fram tillaga að viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins varðandi framsal á valdi. Markmið viðauka þessa er að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð skipulagsmála í sveitarfélaginu Hornafirði, með því að fela umhverfis- og skipulagsnefnd og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins tiltekin verkefni bæjarstjórnar og fullnaðarafgreiðslu einstakra mála er varða skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 38/2011.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Leiðakerfi landsbyggðarvagna, stoppistöðvar
Lagt er fram erindi frá Vegagerðinni frá 19. ágúst 2025 um breytingar á stoppistöð á leiðakerfi landsbyggðarvagna í sveitarfélaginu. Óskað er eftir viðbrögðum varðandi breytingarnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingar á stoppistöðvum landsbyggðarvagna í sveitarfélaginu en bendir á að samráð þarf að hafa við Náttúruverndastofnun varðandi Jökulsárlón.
11.
Öryggisskoðun leiksvæða 2025
Lagt er fram minnisblað um þjálfun í öryggisskoðun leikvalla sem haldin verður 23. september 2025.
Lagt fram til kynningar.