Umhverfis- og skipulagsnefnd
104. fundur
5. nóvember 2025
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
formaður
Elías Tjörvi Halldórsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
2. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sindri Sigurjón Einarsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Minnisblað frá Hringrás vegna samnings um rekstur móttökustöðvar
Minnisblað vegna kostnaðar við sorphirðu lagt fram. Viðræður standa yfir við Hringrás um núgildandi samning og fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá fyrir árið 2026.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Fjallsárlón - Ósk um samnýtingu og fjölgun sorptunna
Minnisblað vegna fjölda og tegund sorpíláta við íbúðir í Borgartúni í Öræfum lagt fram. Óskað er eftir stærri sorpílátum sem verða samnýtt og núverandi sorpílátum fækkað fyrir vikið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að sorpílátum verði fækkað í samræmi við umsókn líkt og gert er í tilfellum fjölbýlishúsa.
3.
Útihirslur í almenningsrýmum
Á 103. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar var staðsetning sorpíláta ákveðin innan þéttbýlsi Hafnar. Erindi hefur borist frá Golfklúbbi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir sorpíláti við göngustíg í nálægð við golfskálann.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heldur í fyrri áform um staðsetningu við enda Silfurbrautar.
4.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 2026 - hugmyndir
Sótt var um styrk hjá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026 vegna uppbyggingar á Leiðarhöfða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur þegar samþykkt í tölvupóstsamskiptum umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna frekari hönnunar og framkvæmdar verkþátta C, B, G, D, E og F við Leiðarhöfða.
5.
Landeignaskrá: Stafafell - Merkjalýsing
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Stafafell fjárhús, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga ásamt 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Landeignaskrá - Sandfell bílastæði, uppskipting
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Sandfell, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Frá því í vor hefur verið unnið að gerð framtíðarsýnar í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haldnar voru vinnustofur í þéttbýlinu í apríl og maí, niðurstöður þeirra lagðar fyrir íbúaráð í dreifbýli og haldin voru opin hús í félagsheimilum í dreifbýlinu dagana 9.-11. september. Nú liggja fyrir drög að stefnunni sem byggja á þeirri vinnu sem hefur farið fram og lagðar eru fyrir fastanefndir sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar.
Sviðsstjóri velferðarsviðs kom á fundinn og gerði grein fyrir framtíðarsýn í málefnum aldraðra. Nefndin þakkar fyrir greinargóða framsögu og gerir ekki athugasemdir við framtíðarsýn.
8.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Breyting á lóð-Hafnarbraut 13
Erindi lóðarhafa Hafnarbrautar 13 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir að lóðarmörk Hafnarbrautar 13 verði flutt til suðurs og verði samliggjandi lóðarmörkum Hafnarbrautar 13a en þar stendur spennistöð Rarik.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu. Nefndin telur að stækkun lóðar hindri aðgengi að innviðum og landi sveitarfélagsins.
9.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13-Atvinnuhúsnæði
Lögð eru fram drög að útliti fyrirhugaðrar byggingar að Hafnarbraut 13 en skv. lóðarumsókn var sótt um að reisa fjölbýlishús. Óskað er eftir afstöðu nefndar við framlögðum áformum. Lóðin er staðsett á miðsvæði M1 en ekki liggur fyrir deiliskipulag sem nær yfir svæðið. Í aðalskipulagi Hornafjarðar kemur fram að "Við skipulag og byggingu svæðisins skal leggja áherslu á að styrkja heildaryfirbragð byggðarinnar, fylla í bæjarmyndina svo hún verði samfelld. Meðfram Hafnarbraut frá Bogaslóð að Hafnarvík skal virða byggðarmynstur gömlu byggðarinnar og byggja á forsendum hennar. Íbúðabyggð með ívafi verslunar, þjónustu og menningarstarfs. Byggingar á einni til tveimur hæðum."
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem áform uppfylla ekki skilmála aðalskipulags Hornafjarðar.
10.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Bæjarráð samþykkti á fundi nr. 1192 að vísa málinu til umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd. Samkvæmt gildandi skilmálum deiliskipulags eru Hafnarbraut 4-6 með samliggjandi byggingarreit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingar verði unnar á gildandi deiliskipulagsskilmálum áður en lóðin er auglýst til úthlutunar á ný.
11.
Fyrirspurn um skipulag, svifferja Kálfafellsstaður í Suðursveit
Erindi landeigenda Kálfafellsstaðar í Suðursveit lagt fram. Í erindinu er óskað eftir að svæði verði afmarkað í aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar svifferju. Í erindi er einnig óskað eftir því að svæði verði afmarkað undir verslun- og þjónustu ásamt frístundabyggð sunnan þjóðvegar 1 við Hrollaugsstaði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að breytingar vegna verslunar- og þjónustu ásamt frístundabyggðar geti farið inn í yfirstandandi vinnu við endurskoðun aðalskipulags og felur starfsmanni að bæta því inn í endurskoðunina.
Endurskoðað aðalskipulag Hornafjarðar er farið til athugunar Skipulagsstofnunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Í ljósi umfangs breytingar vegna svifferju leggur nefndin til að sú breyting verði unnin sjálfstætt samhliða endurskoðun.
Endurskoðað aðalskipulag Hornafjarðar er farið til athugunar Skipulagsstofnunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Í ljósi umfangs breytingar vegna svifferju leggur nefndin til að sú breyting verði unnin sjálfstætt samhliða endurskoðun.
12.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Hoffell II, Jarðtæknirannsóknir
Tekin er fyrir umsókn Ferðaþjónustunnar Hoffells ehf. þar sem óskað er eftir að framkvæma um 30 prufuholur á um 5.000 m² svæði á jökulöldunni við Hoffellslón. Engar jarðtæknilegar rannsóknir hafa farið fram á svæðinu fram til þessa og því er óvissa um jarðvegs- og grundunaraðstæður. Gert er ráð fyrir að rannsóknir fari fram veturinn 2025-2026.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að útgefið verði framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. viðauka 1 í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Ósk um leiksvæði á Hrollaugsstöðum
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra óskaði eftir því við bæjarráð að sett verði upp leiksvæði við Hrollaugsstaði norðan við íþróttavöllinn og vestan við ruslaportið.
Til stendur að vinna heildarendurskoðun leikvalla í sveitarfélaginu Hornafirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að erindi vegna leikvalla við félagsheimili verði tekið með í þá vinnu.
14.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Hagahverfi, áfangi 1 - innviðauppbygging
Tekin er fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegagerðar og vinnu við veitur vegna fyrsta áfanga Hagahverfis. Fyrirhugað er undirbúa lagna- og gatnagerð fyrsta áfanga en í honum er gert ráð fyrir að fjarlægja um 15.000m³ og koma fyrir um 12.000 m³ í fyllingar. Umframjarðvegi verði komið í manir skv. gildandi deiliskipulagi en það umframefni sem ekki verður nýtt í manir fari á efnislosunarstað. Á hluta vegsvæðis verður komið fyrir fargi. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. viðauka 1 í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar -Freysmörk 8- Breyting á notkun húsnæðis.
Tekin er fyrir umsókn Bjarna Jakobssonar um að breyta sumarhúsi að Freysmörk 8 í íbúðarhús. Samkvæmt aðalskipulagi er lóðin Freysmörk 8 staðsett á frístundabyggð. Deiliskipulag er í gildi sem nær yfir svæðið.
Samkvæmt 6.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er frístundabyggð ekki ætluð til fastrar búsetu. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu á þeim grundvelli.
16.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Golfvöllur, Efnisflutningur
Tekin er fyrir ósk Golfklúbbs Hornafjarðar um að losa allt að 30.000m³ af jarðefni á golfvöllin en til stendur að fara í landmótun á svæði innan golfvallar.
Starfsmanni falið að kanna hvort samningar um nýtingu á fyrirhuguðu svæði séu í gildi.
17.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Orka Náttúrunnar (ON) óskar eftir að fá lóðarvilyrði fyrir lóðina við Nettó til þess að setja upp hraðhleðslustöð. Einnig er óskað eftir hverfahleðslustöðvum við Sundlaug Hafnar og á Víkurbraut.
Umhverfis- skipulagsnefnd leggur áherslu á öryggi vegna áforma af þessu tagi. Starfsmanni falið að afla frekari upplýsinga í samræmi við umræður á fundinum.
18.
Umsókn um byggingarheimild - Heppuvegur 2 A, viðbygging (sólstofa)
Tekin er fyrir umsókn lóðarhafa að Heppuvegi 2a þar sem óskað er eftir lóðarstækkun um 1 m til suð-austurs. Áform eru um að reisa sólskála við gafl hússins. Í skilmálum deiliskipulags kemur fram að "Heimilt skal að byggja nýtt hús á lóð Íshússins (sameiginlegri lóð Graðalofts og Íshússins) sem hafi annað hvort form og umfang Íshússins eða Vindheima".
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðin verði stækkuð í samræmi við framlögð gögn.
19.
Hagahverfi - Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna ofanvatnslausna í Hagahverfi lagt fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að hverfa frá skilmálum um blágrænar ofanflóða lausnir þar sem við á líkt og fram kemur í skilmálum deiliskipulags. Nefndin telur ennfremur að breytingin sé það óveruleg að ekki sé þörf á breytingu skv. 43. gr. skipulagslaga.
20.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Bílastæði við Vesturbraut 9
Tekið er fyrir erindi lóðarhafa Vesturbrautar 9 þar sem óskað er eftir að stækka bílastæði við húsið en núverandi innkeyrsla er um 6,5m breið. Lóðarhafi áformar að fara í framkvæmdir vegna veitustofna og óskar eftir að koma fyrir auka bílastæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að innkeyrsla verði breikkuð um 1 bílastæði og verði að hámarki 9m í heild. Mögulegur kostnaður vegna malbikunar út að götu falli á lóðarhafa Vesturbrautar 9.
21.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Lóð undir spennistöð Hafnarbraut 60
Tekið er fyrir erindi Rarik vegna lóðar undir spennistöð við Hafnarbraut 60. Framkvæmdir við Hafnarbraut 60A eru hafnar og lóðinni að Hafnarbraut 60c hefur þegar verið úthlutað. Í erindi er einnig óskað eftir lóð undir spennistöð í Hagahverfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að skoða þá kosti sem í boði eru í samræmi við umræður á fundinum.
22.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Heimtaug við nýtt hringtorg
Tekin er fyrir umsókn Rarik um að plægja rafstreng frá Stekkakletti að fyrirhuguðu hringtorgi við nýjan hringveg. Um er að ræða um 350m langan lágspennustreng.
Umhverfis- og skipulagsnefnd metur framkvæmdina ekki framkvæmdaleyfisskylda þar sem framkvæmdin hefur óveruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess.