Umhverfis- og skipulagsnefnd
114. fundur
15. apríl 2026
kl.
16:00
-
00:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Elías Tjörvi Halldórsson
varaformaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Áætlun sveitarfélaga um refaveiðar 2026-2028
Náttúruverndarstofnun hefur óskað eftir upplýsingum frá sveitarfélögum til að styðja við gerð áætlunar um refaveiðar 2026 til 2028. Minnisblað starfsmanns lagt fram til að fá leiðbeiningar nefndarinnar um áherslur sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að endurskoða þurfi fyrirkomulag veiða á ref og mink. Starfsmanni falið að svara fyrirspurn Náttúruverndarstofnunar.
2.
Fjárhúsavík úrbótaáætlun
Minnisblað vegna úrbótaáætlun í Fjárhúsavík lagt fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur æskilegt að nýta Fjárhúsavík áfram til urðunar á garðaúrgangi. Starfsmanni falið að skoða möguleika á starfsleyfi og rafrænni vöktun svæðisins.
3.
Deiliskipulag - Hagahverfi, uppskipting fjölbýlishúsalóðar Kletthagi 1-5
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs með tillögu um að skipta lóðinni Kletthagi 1-5 upp í þrjár sjálfstæðar lóðir (Kletthaga 1, 3 og 5). Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er gerð krafa um að öll hús á sömu lóð séu byggð samtímis, en á umræddri lóð er gert ráð fyrir þremur húsum með samtals 30 íbúðum.Með uppskiptingu lóðarinnar er stefnt að því að minnka umfang einstakra framkvæmdaáfanga, draga úr fjárhagslegri áhættu og flýta fyrir uppbyggingu á svæðinu. Gert er ráð fyrir að húsagerð, byggingarreitir og fjöldi íbúða haldist óbreytt, en að lóðirnar deili sameiginlegu bílastæði og aðkomu. Vísast til 1. mgr. gr. 1.2.1. í skipulagsreglugerð um að nákvæm lóðamörk séu til viðmiðunar í deiliskipulagi og komi endanlega fram á mæliblöðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu og felur starfsmanni að láta útbúa ný mæli- og hæðarblöð. Jafnframt skal tryggt að kvöð um sameiginleg bílastæði og lagnaleiðir verði þinglýst á nýjar lóðir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að gera sambærilega breytingu fyrir aðrar fjölbýlishúsalóðir í hverfinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að gera sambærilega breytingu fyrir aðrar fjölbýlishúsalóðir í hverfinu.
4.
Breyting á deiliskipulagi moto-cross - Stækkun vegna fjallahjólabrautar
Tekin er fyrir ósk Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu um breytingu á deiliskipulagi Moto-cross svæði. Félagið óskar eftir að skipulagssvæðið verði stækkað til að rúma fyrirhugaða fjallahjólabraut ásamt svæði undir enduro æfingar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að undirbúin verði breyting á gildandi deiliskipulagi. Starfsmanni falið að vinna breytingu. Nefndin bendir á að skoða þurfi aðgengi að svæðinu m.t.t. gangandi/hjólandi umferðar og vísar þeirri vinnu inn í yfirstandi vinnu við umferðaröryggisáætlun.
5.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Lóð undir spennistöð Hafnarbraut 60
Lagt er fram erindi frá RARIK varðandi staðsetningu spennistöðvar við Hafnarbraut 60. Fyrir liggur að framkvæmdir eru hafnar á lóð nr. 60A og að lóð nr. 60C hefur þegar verið úthlutað.Málið var áður til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd þann 5. nóvember 2025, þar sem starfsmanni var falið að greina mögulega valkosti. Upphaflega stóð til að staðsetja stöðina í norðvesturhluta svæðisins, innan núverandi lóðar nr. 60B.Að lokinni endurskoðun erindisins í samstarfi við fulltrúa RARIK er það niðurstaðan að ákjósanlegast sé að staðsetja spennistöðina í suðausturhorni lóðar nr. 60B. Til að gæta að umferðaröryggi og tryggja nauðsynlegar sjónlínur er gert ráð fyrir að stöðin verði staðsett í u.þ.b. 7 metra fjarlægð frá götu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar því í yfirstandandi breytingu á deiliskipulagi sem nær yfir svæðið.
6.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Hafnarbraut 60, Bakrásarlögn frá nýju verslunar og þjónustusvæði
Tekin er fyrir umsókn Rarik um framkvæmdaleyfi fyrir bakrásarlögn hitaveitu frá nýju verslunar- og þjónustusvæði, Hafnarbraut 60. Lagnaleið er meðfram Hafnarbraut og upp Vesturbraut þar sem lagnir tengjast núverandi lagnakerfi hitaveitu við gatnamót Vesturbrautar/Silfurbrautar. Upp Vesturbraut fara tvær lagnir, framrás og bakrás. Sjá nánari hönnun í fylgigögnum. Í hönnun er tekið með tenging fyrir nýtt hverfi, Hagahverfi. Einnig er tekið tillit til gildandi skipulagsáætlanna, staðhátta og núverandi lagna á svæðinu. Með bakrásarlögn meðfram Hafnarbraut leggur Rarik líka háspennustreng fyrir rafveitu. Lagnir verða grafnar og lagðar í skurð. Fyrirhugað er að bora lagnir undir Hafnarbraut. Leyfisumsókn hefur verið send á Vegagerðina og beðið er eftir svörum. Fyrirhugað er að hefja vinnu í maí og klára fyrir október.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé ekki framkvæmdaleyfisskyld enda umfang framkvæmdar, varanleiki, áhrif á landslag og ásýnd umhverfis og önnur umhverfisáhrif minniháttar og tímabundin. Nefndin bendir á að umsögn Vegagerðarinnar þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
7.
Ný staðsetning hafnarvogar á Höfn
Á 282. fundi hafnarstjórnar undir umræðum vegna miðbæjaráforma var ný staðsetning hafnarvogar rædd. Lagt fyrir nefnd til að hefja umræður um mögulega framtíðarstaðsetningu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að útbúa teikningu með mögulegum staðsetningum í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Ósk um stækkun lóðar- Ófeigstangi 6
Tekin er fyrir ósk um stækkun lóðar að Ófeigstanga 6. Óskað er eftir stækkun lóðar til vesturs. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er fyrirhuguð gatnagerð, Ferjuklettar, á umræddu svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem áformin eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.
9.
Umsókn um byggingarheimild Sauðanes gistihús
Tekin er fyrir umsókn fyrir byggingu um 180 m², fjögurra íbúða raðhúsalengju að Sauðanesi til gististarfsemi. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrirhuguð framkvæmd hafi engin grenndaráhrif og sé í samræmi við núverandi byggðarmynstur, landnotkun og samræmist heimildum í aðalskipulagi.
10.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Lóðirnar að Sandeyri 8 og 10 hafa verið afturkallaðar.
Lagt fram til kynningar. Nefndin leggur til að umræddum lóðum verði ekki úthlutað í ljósi yfirstandandi áforma um nýjan miðbæ á Höfn. Málinu vísað til bæjarráðs.
11.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Tekin er fyrir umsókn ON vegna fyrirhugaðs hleðslugarðs við Litlubrú 1 (Nettó). Erindið hefur fengið umfjöllun í ungmennaráði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir erindinu. Málinu vísað til umræðu í bæjarráði og áframhaldandi vinnu starfsmanns vegna mögulegrar úthlutunar.
12.
Ósk um leyfi fyrir kvikmyndtökustað á svæði við Krossveg.
Tekin er fyrir umsókn Hlyns Pálmasonar vegna fyrirhugaðs kvikmyndatökustaðs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að umrædd svæði skv. erindi eru innan lóða sem hefur verið úthlutað og eru því ekki lausar til afnota.