Umhverfis- og skipulagsnefnd
115. fundur
5. maí 2026
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Jarðefni fyrir rekstur urðunarstaðar
Þekjuefni innan urðunarstaðar er að ganga til þurrðar. Því er lagt til að kaupa þekjuefni utan svæðisins til að tryggja áframhaldandi rekstur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar ákvörðun vegna kaupa á jarðefni á bæjarráð.
2.
Orkunýting - Evrópuverkefni - EUCF project
Sveitarfélagið Hornafjörður fékk styrk frá EUCF til að þróa fjárfestingarhugmynd sem miðar að bættri orkunýtingu sundlaugarinnar á Höfn. Tvær aðgerðir eru metnar sem hagkvæmar en það er yfirbreiðsla sundlaugar eða varmaskiptakerfi sem endurnýtir varma á affallsvatni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu áfram til áframhaldandi vinnu.
3.
Tæming rotþróa í sveitarfélaginu
Unnið er að samningagerð vegna nýafstöðnu útboði vegna tæmingu rotþróa í sveitarfélaginu.
Starfsmanni falið að ræða áfram við tilboðsgjafa.
4.
Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir jörðina Birgi í Suðursveit. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu 3-4 stjörnu hótels. Skipulagssvæðið er sunnan við Þjóðvegi 1. Gert er ráð fyrir hótelbyggingu að stærð allt að 6.000 m² með um 216 gistirúmum. Hótelið verður reist úr forsmíðuðum einingum. Norðan við hótelbygginguna er gert ráð fyrir starfsmannaíbúðum á tveim hæðum. Áformin eru hluti af endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Breyting á deiliskipulagi moto-cross - Stækkun vegna fjallahjólabrautar
Tekin er fyrir tillaga að breytingu Moto-cross svæði á Höfn. Breytingin felur í sér stækkun á skipulagssvæði og skilgreiningu á nýjum sportgreinum innan skipulagssvæðis, enduro- og fjallahjólabraut.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga. Nefndin leggur einnig til að breytt landnotkun úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði verði tekin fyrir í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Tekin er fyrir ósk um breytingu á deiliskipulagi Skaftafells III og IV. Breytingin felur í sér að hámarkshæð bygginga verði lækkuð úr 6 m í 4 m. Hámarksflatarmál húsa verður áfram óbreytt eða um 64 m².
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsókn um byggingarleyfi - Hafnarbraut 47, viðbygging
Tekin er fyrir umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu við Hafnarbraut 47 (Brautarholt). Viðbyggingin saman stendur af kjallara og tveimur hæðum ásamt tvöföldum staðsteyptum bílskúr. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust. Minjastofnun Íslands hefur veitt álit og gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu Stokksnesvegur
Tekin er fyrir kynningarskýrsla vegna könnunar á matsskyldu endurbyggingar um 3,7 km kafla Stokksnesvegar. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi en núverandi vegur er burðarlítill malarvegur með slæma legu og takmarkað umferðaröryggi. Endurbyggður vegur verður að mestu í núverandi vegstæði en rétt verður úr kröppustu beygjum og blindhæðir mildaðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar Stokknesvegar.
Framkvæmdin fellur undir 2. viðauka laga nr. 111/2021 og er því tilkynningarskyld. Að mati nefndarinnar er, með hliðsjón af umfangi framkvæmdarinnar og því að hún fer að mestu fram innan núverandi vegstæðis, ólíklegt að hún hafi í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.
Nefndin telur því ekki tilefni til að framkvæmdin verði háð mati á umhverfisáhrifum, enda verði gætt að verndarsvæðum og mótvægisaðgerðum.

9.
Umsókn um endurnýjun á framkvæmdarleyfi - Kálfafellsstaðarkirkja
Tekin er fyrir ósk um endurútgáfu framkvæmdaleyfis fyrir nýjan veg við Kálfafellsstaðarkirkju. Fyrra leyfi var gefið út þann 20. apríl 2021 og er því runnið úr gildi. Fyrir liggja umsagnir Minjastofnunar Íslands og Vegagerðarinnar sem gera ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Óskipt land Mýrajarða, Styrking á rafveitukerfi að Mýrum
Tekin er fyrir umsókn Rarik um plægingu rafstrengs á Mýrum. Um er að ræða framhald á verkefni sem byrjað var á 2025 sem miðar að því að styrkja rafveitukerfið að Mýrum og að úrelda loftlínu á svæðinu. Lengd rafstrengs í þessum hluta verkefninsins er um 1,5 km. Háspennustrengur verður plægður í óskipt land Mýrajarða. Eftir plægingu verður farið yfir skurðsárið og það lagað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að plæging lágspennustrengs og stofnstrengs að Mýrum teljist óveruleg framkvæmd, hafi ekki í för með sér varanleg áhrif á land og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012.
11.
Beiðni um minningarbekk yfir Hornafjarðarós
Tekið er fyrir erindi frá Kiwanisklúbbnum Keili um að koma fyrir bekk þar sem útsýni er yfir Hornarfjarðarós til minningar um þá sem fórust með skólaskipinu Mími RE 3 árið 1991.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð áform skv. fyrirliggjandi gögnum.
12.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13
Tekin er fyrir umsókn Andreynar ehf. vegna byggingaráforma að Hafnarbraut 13. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er óskað eftir að byggingarreitur verði færður 0,5 m nær götu og lóðarmörk færð til suðurs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi erindi. Starfsmanni falið að grenndarkynna áform í samræmi við 44. gr. skiplagslaga.
13.
Fyrirspurn um skipulag, fjölbýlishús við Hagaleiru
Tekin er fyrir ósk Mikael ehf. vegna byggingar raðhúss að Hagaleiru. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er óskað eftir að reisa 8 íbúða raðhús, um 50 m² íbúðir.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Starfsmanni falið að afla frekari upplýsinga miðað við fyrri áform á svæðinu.
Starfsmanni falið að afla frekari upplýsinga miðað við fyrri áform á svæðinu.
14.
Landeignaskrá - Skaftafell 3, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003310
Tekin er fyrir ósk um samþykki merkjalýsingar vegna stofnun lóðar Sandbúðir 1a sem er áformuð um 17 ha.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Landeignaskrá - Sandbúðir 3 umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003311
Tekin er fyrir ósk um samþykki merkjalýsingar vegna stofnun lóðar Sandbúðir 4 sem er áformuð um 28 ha.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Landeignaskrá - Stafafellsfjöll 33, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003543
Tekin er fyrir umsókn um staðfestingu merkjalýsingar Stafafellsfjöll 33, samkvæmt merkjalýsingu stækkar lóðin úr 0,3 ha og verður um 1,3 ha.