Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

27. fundur
1. september 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík - Heppa
Málsnúmer 202108103
Kynning á frumdrögum vegna breytingar á nýtingu svæðisins í tengslum við uppbyggingu byggðasafns og breyttrar nýtingar á sláturhúsi.Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
2.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Einar Kristjánsson kemur inn á fundinn og kynnir hugmyndir um uppbyggingu og skipulagsbreytingar í útbæ.Lagt fram til kynningar.
3.
Umhverfisviðurkenning 2021
Málsnúmer 202108013
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021. Lagt fram til kynningar.
4.
Helsingjar í Austur - Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202005078
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál nr. 160/2021 - Breyting á reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum og var umsagnarfrestur til og með 31.08.2021. Skv. þessum tillögum er lagt til að breyta veiðitímabilinu á helsingjum til 10. sept frá 25. sept. eins og það er núna. Umhverfis- og skipulagsstjóri ítrekaði bókun umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar um málið í umsögn á samráðsgátt þar sem lagt er til að veiðitímabilið verði samræmt veiðitímabili á öðrum landsvæðum. https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3029
Lagt fram til kynningar.
5.
Reglur og gjaldskrá- refa og minkaveiði
Málsnúmer 202108052
Mikil óánægja er með núverandi greiðslur vegna refa og minkaveiða og kallað er eftir því að greiðslur hækki. Í vor var fundað með refa og minkaveiðimönnum og eru sjónarmið þeirra tekin inn í drög að nýjum reglum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að setja reglur og gjaldskrá upp í sitthvoru lagi í samræmi við umræður á fundinum. Reglum um refa- og minnkaveiðar vísað til samþykktar hjá bæjarráði. Lagt er til að gjaldskrá refa og minkaveiða verði vísuð til fjárhagsáætlunargerðar.
6.
Urðunarstaður í Lóni úttekt og greining
Málsnúmer 202009042
Verkfræðistofan EFLA hefur verið fengin til þess að vinna úttekt og greiningu á urðunarstaðnum í Lóni. Frumniðurstöður benda til þess að staðurinn á um 10-20 ár eftir þar til hann telst full nýttur. Til skoðunar eru leiðir til að nýta hann sem best og vinna mismunandi úrgangstegundir á svæðinu.Lagt fram til kynningar.
7.
Gamall urðunarstaður við Drápskletta- niðurstöður sýnatöku
Málsnúmer 202108041
Óskað var eftir sýnatöku við gamla urðunarstaðinn við Drápskletta vegna fyrirhugaðrar notkunar á svæðinu. Umræður og um notkunarmöguleika og næstu skref. Lagt fram til kynningar.
8.
Umferðaröryggisáætlun: Aðgerðir
Málsnúmer 201905018
Lagt til að aðgerðaráætlun verði uppfærð og yfirfarin.Lagt til að koma á samráðshóp lögreglu, vegagerðar, skólayfirvalda, slysavarnardeildin Framtíðin og starfsfólks umhverfis og skipulagssviðs. Samráðshópnum er ætlað að taka faglega á þeim ábendingum íbúum sem berast og tryggja að þeim sé fylgt eftir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna tillögur að endurskoðun aðgerðaráætlunar.
9.
Ósk um hraðahindrun við Ránarslóð
Málsnúmer 202108089
Óskað hefur verið eftir hraðahindrun á Ránarslóð. Þar keyra bílar oft mjög hratt og glannalega. Þarna er fjölfarinn göngustígur og skapar þetta mikla hættu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Málinu vísað til umfjöllunar við uppfærslu umferðaröryggisáætlunar.
10.
Ósk um hjólaboga víðsvegar um bæinn
Málsnúmer 202108088
óskað er eftir uppsetningu hjólaboga á vel völdum stöðum í bænum í samræmi við umhverfisstefnu og umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins. Til dæmis við grunn, leik og framhaldsskóla, við Gömlubúð, miðsvæðis við veitingastaðina og mögulega á fleiri stöðum. Þeir hjólastandar sem eru nú þegar við þessa staði eru ekki góðir fyrir hjólin og getur hreinlega skemmt þau. Einnig er af þeim slysahætta þar sem fólk getur dottið um þá.
Starfsmanni falið að leggja til staðsetningar og útfærslu á hjólabogum við valdar stofnanir sveitarfélagsins.
Kostnaðaráætlun verði lögð fyrir bæjarráð.
11.
Umsögn um drög að reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Málsnúmer 202108097
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur lagt fram til kynningar á samráðsgátt drög að reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana í samræmi við ný heildarlög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Drögin að reglugerðinni byggja á framangreindum lögum þar sem markmiðið var m.a. að tryggja þátttökuréttindi almennings og að setja fram skýrar og einfaldar málsmeðferðarreglur. Drögin fela m.a. í sér nánari útfærslu á ákvæðum laganna um forsamráð og samþætta málsmeðferð og skyldur ábyrgðaraðila áætlana og framkvæmdaaðila hvað varðar skil á gögnum og innihald þeirra.Í drögunum er einnig mælt fyrir um stafræna gagna- og samráðsgátt, sem er ætlað að vera vettvangur samráðs um umhverfismat, skipulagsmál og leyfisveitingar. Ákvæðið kemur til framkvæmda 1. desember 2022, en samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana taka eldri lög til þeirra kynninga og samráðs sem eiga sér stað fram til 1. desember 2022. Ákvæði reglugerðarinnar um samráð og kynningu umhverfismats taka mið af framangreindu bráðabirgðaákvæði og munu því koma til endurskoðunar fyrir 1. desember 2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við reglugerðardrögin.
12.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Drög að forvalsgögnum vegna hugmyndasamkeppni um Leiðarhöfða.
Umhverfis- og skipulagnefnd leggur til að í forvalsgögnum verið fylgt leið 1. skv. minnisblaði og í samræmi við umræður á fundinum.

13.
Deiliskipulag Skaftafell III og IV
Málsnúmer 202108101
Tillaga að deiliskipulagi lögð fram. Markmið með deiliskipulagi þessu er að sníða ramma utan um byggð lítilla húsa á jörðinni Skaftafell III og staðsetja grunninnviði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjanda í samræmi við umræður á fundinum.
14.
Landeignaskrá - Skálafell 1A og Skálafell 1B - breyting á lóðarmörkum
Málsnúmer 202107008
Björn Guðmundur Sæbjörnsson og Sigurgeir Jónsson óska eftir breytingu á lóðarmörkum milli Skálafells 1 lóð A og Skálafells 1 lóð B skv. meðfylgjandi uppdráttum. Til staðar er staðfest deiliskipulagi fyrir svæði. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 13. 7. 2021 að vinna mætti óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem gerð yrði grein fyrir breyttum lóðamörkum og byggingarreitum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda víkur tillagan óverulega frá notkun, nýtingarhlutfalli og formi viðkomandi skipulags. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjenda.
15.
Byggingarleyfisumsókn - Stafafellsfjöll lóð 8, frístundahús
Málsnúmer 202108010
Borgþór Freysteinsson óskar eftir himild til að víkja frá kröfum deiliskipulags frístundasvæðis Stafafellsfjöll í Lóni. Í greinargerð deiliskipulagsins kemur fram að aðalhús má vera allt að 120m² og ekki minna en 30m², en aukahús getur verið allt að 30m², þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Fyrirhuguð er að reisa 36,1m² frístundahús á lóð nr. 8 og hafa það sem aðalhús, en núverandi 22,3m² bústað sem aukahús.Óskað er eftir því að vikið sé frá kröfum í deiliskipulagi um að auka hús gæti ekki verið stærra en helmingur af stærð aðalhús. Í deiliskipulagi er einnig miðað við að húsin falli sem best að landi og að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum, en staðsetning hússins er sýnd á uppdráttum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
16.
Byggingarleyfisumsókn: Breiðabólsstaður (Klifatangi) - frístundahús
Málsnúmer 202108043
Flugvirkjafélag Íslands sækir um leyfi til að rifa núverandi 30,6fm sumarbústað í Klifatanga í Suðursveit og byggja um 150fm heilsárs frístundahús í staðinn. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi er svæði innan frístundabyggðar F15 í Suðursveit. Svæði er einnig merkt önnur nátturuvernd ÖN10 og er á náttúruminjaskrá. Beiðni um umsagnir hefur verið sent til Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðisstofnunar Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að núverandi 30,6fm sumarbústaður verði rifinn og byggður um 150fm heilsárs frístundahús í staðinn í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, að því tilskyldu að jákvæðar umsagnir berist frá Umhverfisstofnun og Náttúrufræðisstofnun Íslands. Þar sem framkvæmd varði ekki hagsmuni annara en umsækjanda fellur Umhverfis- og skipulagsnefnd frá grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Þar sem skv. framlögðum teikningum verða fyrirhugaðar framkvæmdir á graslendi innan lóðar gefur Umhverfis- og skipulagsnefnd jákvæða umsögn sem Náttúruverndarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar á grundvelli 37.gr. laga um náttúruvernd 60/2013.
Nefndin leggur áherslu á að ef um frekari uppbyggingu verður að ræða á svæði F15 skal það deiliskipulagt.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Byggingarleyfisumsókn: Heppuvegur 6 - breyting á útliti
Málsnúmer 202106046
Hepputorg ehf. sækir um leyfi fyrir breytingu á útliti húss á Heppuvegi 6. Breytingar felast í því að gluggum og hurðum er breytt og fleiri gluggum og hurðum bætt við. Sólpalli er bætt við austurhlið hússins. Á norðurhlið hússins er bætt við tveimur svölum. Á öðrum þeirra er bætt við aðgengi með tröppum upp á aðra hæð. Gildandi deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir viðbyggingar við hús að Heppuvegi 6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að breyta útlit á húsi að Heppuvegi 6 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Framkvæmdaleyfi - efnistaka Kolgrímu E 84
Málsnúmer 202108071
Vegagerðin hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Kolgrímu
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Skipulag íbúðarsvæðis
Málsnúmer 202003026
Umræður um fyrirhugaðan fund um íbúarsvæði og lóðaframboð. Áætlað er að halda fundinn 15. september n.k. Starfsmanni falið að auglýsa og undirbúa fundinn.
20.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Málsnúmer 202108112
Samningur um sorphirðu rennur út sumarið 2022, undirbúningur er hafinn vegna nýs útboðs. Lagt fram til kynningar og umræðu.