Umhverfis- og skipulagsnefnd
29. fundur
3. nóvember 2021
kl.
16:00
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Sorphirðudagatal 2022
Framlagt minnisblað um breytingu á sorphirðu. Við gerð sorphirðudagatals fyrir árið 2022 bárust tvær tillögur frá ÍGF um breytingu á sorphirðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að breyta sorphirðu að svo stöddu og leggur til að leið a verði farin. Nefndin samþykkir sorphirðudagatal fyrir árið 2022 sem felur í sér að halda sorphirðu óbreyttri miðað við árið í 2021 en þó með fjölgun tæminga á lífrænum úrgangi yfir sumarmánuðina.
2.
Gjaldskrá söfnunarstöð
Framlagt minnisblað um gjaldskrá söfnunarstöðvar í kjölfar erindis frá íbúa í dreifbýli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið og vísar málinu til vinnu starfsmanna við endurskoðun gjaldskrár.
3.
Hraðavarnarskilti - Umferðaröryggi í sveitarfélaginu
Framlagt minnisblað um kaup á aukabúnaði fyrir hraðavarnarskilti sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar beiðninni en leggur til að starfsmenn lesi reglulega af skiltunum.
4.
Umhverfisviðurkenning 2021
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2021 og viðurkenningarhafar valdir.Þá er einnig lögð fram tilnefning sem barst 1. október en frestur til að senda inn tilnefningar var til og með 22. ágúst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fór yfir tilnefningar og valdi verðlaunahafa sem verða kynntir á menningarhátíð Hornafjarðar 2022.
5.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022 - 2034
Samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs ber sveitarfélögum að semja og staðfesta svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs. Áætlunin skal gilda til tólf ára í senn og er sveitarfélögum frjálst að vinna slíka áætlun í samstarfi við fleiri sveitarfélög. Sveitarfélagið hefur verið í viðræðum við Skaftárhrepp og Mýrdalshrepp um slíkt samstarf og hefur fengið tilboð í gerð svæðisáætlunar. Lagt er til að tilboði Environice verði tekið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tilboði Environice verði tekið og vísar málinu til bæjarráðs.
6.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lögð fram drög að umhverfisstefnu eftir vinnufund.
Lagt fram til kynningar.
7.
Stöðuleyfisumsókn: Skaftafell: Torgsöluhús
Straumhvarf ehf. sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir torgsöluhús í Skaftafelli. Vatnajökulsþjóðgarður samþykkti að veita leyfi landeigenda til endurnýjunar. Stöðuleyfi eru veitt til allt að 12 mánaða og eru ekki gefin út aftur fyrir sömu lausafjármuni á sömu landeign nema með samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar. Umsóknir verða þá metnar m.t.t.: landnotkunar, útsýnis, skuggavarps, innsýnar, öryggis og hávaða.
Umhverfis - og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við endurnýjun stöðuleyfis.
8.
Stöðuleyfisumsókn: Skaftafell : Endurnýja stöðuleyfi fyrir söluaðstöðu
Arcanum Fjallaleiðsögumenn ehf. sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir torgsöluhús í Skaftafelli. Vatnajökulsþjóðgarður samþykkti að veita leyfi landeigenda til endurnýjunar.Stöðuleyfi eru veitt til allt að 12 mánaða og eru ekki gefin út aftur fyrir sömu lausafjármuni á sömu landeign nema með samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar. Umsóknir verða þá metnar m.t.t.: landnotkunar, útsýnis, skuggavarps, innsýnar, öryggis og hávaða.
Umhverfis - og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við endurnýjun stöðuleyfis.
9.
Byggingamál - Bjarnahóll 9 - viðbygging, stækkun á anddyri
Sverrir Þórhallsson tilkynnir minnihátta breytingu á húsi að Bjarnahól 9. Um er að ræða breytingu á innskot við anddýri undir þakskyggni. Settir eru tveir veggir og með því stækkar flatarmál hússins um 4,7 fm. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að samþykkt verði breyting á húsi að Bjarnahól 9 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um leyfi til niðurrifs og enduruppbyggingu bílskúrs við Bogaslóð 16
Gunnar Örn Olgeirsson óskar eftir leyfi til niðurrifs og endurbyggingu bílskúrs að Bogaslóð 16. Fyrirhuguð er að stækka bílskúr um 1-1,25m í átt að götu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að samþykkt verði breyting á bílskúr að Bogaslóð 16 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fullnægjandi grenndarkynning hefur farið fram. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Tilkynning um framkvæmd - Hlíðartún 3, viðbygging, útigeymsla
Pétur Ágúst Unnsteinsson tilkynnir framkvæmd á lóð Hlíðartún 3. Fyrirhuguð er að byggja óeinangraða útigeymslu í framhaldi að bílskúr sem nær að lóðarmörkum til vesturs. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en talið verður að framkvæmd sé í samræmi við aðalskipulag.
Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Stafafellsfjöll lóð 8, frístundahús
Borgþór Freysteinsson óskar eftir heimild til að víkja frá kröfum deiliskipulags frístundasvæðis Stafafellsfjöll í Lóni. Í greinargerð deiliskipulagsins kemur fram að aðalhús má vera allt að 120m² og ekki minna en 30m², en aukahús getur verið allt að 30m², þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Fyrirhuguð er að reisa 36,1m² frístundahús á lóð nr. 8 og hafa það sem aðalhús, en núverandi 22,3m² bústað sem aukahús. Óskað er eftir því að vikið sé frá kröfum í deiliskipulagi um að auka hús gæti ekki verið stærra en helmingur af stærð aðalhús. Í deiliskipulagi er einnig miðað við að húsin falli sem best að landi og að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum, en staðsetning hússins er sýnd á uppdráttum. Grenndarkynning var send á landeigendur sem hafa allir skilað umsögnum. Ein umsögn hefur verið dregin til baka.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi verið hafnar áður en leyfi hafi verið veitt. Að því sögðu þá telur nefndin að umbeðnar heimildir um að vikið sé frá kröfum um stærð aukahúss og leiðbeiningum um mænisstefnu í deiliskipulagi séu ekki líklegar til að hafa neikvæð áhrif á hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar því að vikið sé frá ofangreindum skilmálum og leiðbeiningum skv. framlögðum gögnum án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir málsaðilum á að sækja þurfi sérstaklega um hliðrun á lóðamörkum til sveitarfélagsins.
Málinu vísað til bæjarstjórnar
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar því að vikið sé frá ofangreindum skilmálum og leiðbeiningum skv. framlögðum gögnum án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir málsaðilum á að sækja þurfi sérstaklega um hliðrun á lóðamörkum til sveitarfélagsins.
Málinu vísað til bæjarstjórnar
13.
Landskipti - Flatey
Selbakki ehf. óskar eftir samþykki fyrir skiptingu Flateyjarjarðarinnar og staðfestingu á að skiptingin sé í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélagsins. Flatey, landeignarnúmer L160084, er 2.095,6 ha jörð, en ætluð er að skipta 1.458,1 ha landsvæði út ur henni sem fær heiti "Selbakki". Eigandinn gerði grein fyrir áhrifum skiptingar á búrekstrarskilyrði á jörðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd geri ekki athugasemd við áformuð landskipti. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Landeignaskrá - Skaftafell III og IV - Landskipti, breyting á afmörkun innbyrðis
Eigendur Skaftafells III og IV óska eftir staðfestingu sveitarfélagsins á breytingu á innra afmörkun Skaftafells III og IV skv. meðfylgjandi gögnum.Um er að ræða viðauka við landskiptasamning H-21/2015.
Umhverfis- og skipulagsnefnd geri ekki athugasemd við áformuð landskipti. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Landeignaskrá - Háhóll og Hólanes, samruni landeigna, stofnun lögbýlis
Lovísa Rósa Bjarnadóttir og Jón Kjartansson óska eftir samruna Hólaness við Háhól. Einnig er óskað eftir jákvæðri umsögn sveitarfélagsins um að skrá Háhól L189543 sem lögbýli. Eigendur hafa stundað geitarækt undir nafni Háhóll geitabú og áform eru hjá þeim að stækka búið. Um er að ræða 79,2 ha svæði. Mestur hluti landsins er gróið land og gott til beitar. Skv. aðalskipulagi er landnotkun svæðis landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við samruna jarðanna og leggur til að bæjarstjórn veiti jákvæð umsögn um stofnun lögbýlis að Háhóli. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Framkvæmdaleyfi - Dýpkun á Grynnslum
Hornafjarðarhöfn hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi vegna dýpkunarframkvæmda á Grynnslum úti fyrir innsiglingu að Hornafjarðarhöfn. Dýpið á Grynnslunum gerir það að verkun að innsiglingin er oft ófær, að vetri til, í lengri tíma. Innsiglingin takmarkast við 3,5 m ölduhæð og því getur það gerst mjög oft að vetri til og hefur það komið fyrir að ófært er til hafnarinnar í 2 vikur til hafnarinnar á stærri skipum. Gert er ráð fyrir að dýpkunin fari fram á næstu vikum. Sótt er um leyfi fyrir flutningi á efni um 30.000 m3 þar sem losunarstaður verður sá sami og árið 2015 þegar síðast var dýpkað á Grynnslum.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Með fyrirvara um jákvæða umsögn Umhverfisstofnunar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Framkvæmdaleyfi - Dýpkun innan hafnar
Hornafjarðarhöfn og Vegagerðin sækja um framkvæmdaleyfi vegna viðhaldsdýpkunar innan hafnarinnar. Gert er ráð fyrir að dælt verði upp efni allt að 30.000 m3 úr höfninni að þessu sinni. Dýpkunin verður austast í höfninni vegna löndunar á loðnu á komandi vertíð. Gert er ráð fyrir að losunarstaður verði sunnan við Ósland, innan hafnarsvæðis. Leitast verður við að nýta efni til upphækkunar á lóðum í Óslandi og/eða sem farg á lóðir á Leirusvæði II.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Framkvæmdaleyfi - Hringvegur nr. 1 milli Hólms og Dynjanda - endurútgáfa
Fyrir liggur umsókn Vegagerðarinnar um endurútgáfu framkvæmdaleyfis vegna Hringvegar um Hornafjörð milli Hólms og Dynjanda. Nánari hönnun og reynslutölur sigs í fyrsta áfanga hefur leitt til breytinga varðandi efnistöku. Óskað er eftir heimild fyrir aukinni efnistöku í námu nr. E48 Hólmsá, nr. E44 Djúpá, nr. E34 Hornafjarðarfljót og nr. E35 Skógey. Aukin efnistaka úr námunum er í samræmi við mat á umhverfisáhrifum, álit Skipulagsstofnunar og fyrirliggjandi skipulagsáætlanir. Vegagerðin óskar eftir að framkvæmdatími verði til ársloka 2025.
Beiðni Vegagerðarinnar um aukna efnistöku er í samræmi við matsskýrslu Vegagerðarinnar, álit Skipu¬lags¬stofnunar, Aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030, deiliskipulagsáætlanir fyrir Hornafjarðarfljót, Djúpá og Skógey. Gögn sem bæjarstjórn lagði fram við afgreiðslu framkvæmdaleyfis árið 2016 eiga enn við, þ.m.t. greinargerð með veitingu framkvæmdaleyfis og skilmálar fyrir framkvæmdaleyfi. Forsendur fyrir leyfisveitingu eru óbreyttar.
Viðauki er gerður við greinargerð bæjarstjórnar dags. nóvember 2016 um breytingar á efnistöku. Birt verður ný tafla um umfang efnistöku og gildistíma í endurútgefnu framkvæmdaleyfi.
Lagt til að bæjarstjórn samþykki endurútgáfu framkvæmdaleyfis.
Viðauki er gerður við greinargerð bæjarstjórnar dags. nóvember 2016 um breytingar á efnistöku. Birt verður ný tafla um umfang efnistöku og gildistíma í endurútgefnu framkvæmdaleyfi.
Lagt til að bæjarstjórn samþykki endurútgáfu framkvæmdaleyfis.
19.
Fyrirspurn um deiliskipulag útbæjar á Höfn
Icelandair Hotels hefur sent inn fyrirspurn vegna lóða við hótel á horni Ránarslóðar og Óslandsvegar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir nánari útfærslu á hugmyndum.
20.
Fyrirspurn vegna lóðar fyrir spennustöð í Óslandi
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að afmörkuð verði lóð skv. tillögu Rarik í samráði við hafnarstjóra og skipulagsráðgjafa deiliskipulags í Óslandi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til hafnarstjórnar og deiliskipulagsgerðar.
21.
Fyrirspurn vegna deiliskipulags Borgartúni
Fyrirspurn vegna byggingar á lóðum 1 og 2 við Borgartún í Öræfum. Óskað er heimildar til að byggja á annarri lóðinni 550 m2 hús á einni hæð fyrir starfsfólk. Um yrði að ræða hús með 5 tveggja manna herbergjum og 20 einstaklingsherbergjum fyrir starfsmenn og sameiginleg rými.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu.
22.
Umsókn um lóð við Hagaleiru
Óskað er eftir lóð við Hagaleiru undir Fiskhól og byggð verði lítil raðhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að undirbúa deiliskipulagsvinnu skv. umræðum á fundi.
23.
Deiliskipulag Brunnhóll
Deiliskipulag fyrir Brunnhól var auglýst frá 22. september 2021 til 2. nóvember 2021. Skipulagið hafði áður verið auglýst og staðfest í bæjarstjórn árið 2018. Skipulagsreiturinn er fullbyggður. Engar umsagnir eða athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið eftir auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga og vísar málinu til bæjarstjórnar.
24.
Skipulag íbúðarsvæðis
Tillögur til umræðu í framhaldi af íbúafundi um framtíðaríbúðabyggð.
Til þess að koma til móts við skammtímaþörf fyrir lóðir í þéttbýlinu á Höfn eru sex einbýlishúsalóðir til úthlutunar. Gert er ráð fyrir átta lóðum í deiliskipulagi um þéttingu byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að undirbúa breytingu á deiliskipulagi vegna raðhúsa undir Fiskhól og leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir fjölbýlishús sunnan við Nettó þar sem gert verður ráð fyrir verslun og þjónustu í hluta neðstu hæðar. Kláruð verði vinna við deiliskipulag á Leirusvæði II og kannað hvort mögulegt sé að byggja fyrr nyrst á svæðinu.
25.
Framkvæmdaleyfi - Skeiðarárnáma E75
BM Vallá sækir um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar efnistöku, allt að 4500 m3 úr Skeiðarárnámu austan Skeiðarár. Náman er með númerið E75 í aðalskipulagi. Áætlað er að efnisvinnsla standi yfir frá nóvember 2021 til vors 2022. Steinefnið verður haugsett og flutt í áföngum að steypustöð sem staðsett verður við Núpsvötn. Þegar efnistöku lýkur verður náman frágengin og sléttuð svipað og gert var í fyrri áfanga 1998.Leyfi landeiganda liggur fyrir.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
26.
Breyting á lóðamörkum Stafafellsfjöll 17A
Óskað er eftir breytingum á lóðamörkum 17A án breytinga á deiliskipulagi. Ekki er um nein áform lóðareiganda að byggja meira á lóðinni en vill hafa rýmilegt í kringum sig og segist vilja tryggja að ekki verði byggt framan við hann.Staðfesting allra landeigenda liggur fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðamörkum verði breytt. Þar sem stækkun lóðarinnar er talsverð en engin áform eru um breytingu á byggingarreit er samþykkt að breytingin verði gerð með óverulegri breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjenda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
27.
Ósk um sameiningu lóða
Gunnar Ásgeirsson óskar eftir því að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi í samræmi við afgreiðslu siðasta fundar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að unnin verði óveruleg breyting vegna breytingar á byggingarreit lóða nr 4 og 6 við Hafnarbraut. Starfsmanni falið að auglýsa grenndarkynningu. Málinu vísað til bæjarráðs vegna lóðaúthlutunar.