Umhverfis- og skipulagsnefnd
30. fundur
2. desember 2021
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Loftslagsvernd í verki
Landvernd býður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaga þátttöku í námskeiðinu Loftslagsvernd í verki.
Lagt fram til kynningar. Stefáni falið að kanna fyrirkomulag skráninga.
2.
Veðurathugunarstöð fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Framlagt erindi um sjálfvirka veðurathugunarstöð fyrir urðunarstaðinn í Lóni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarráðs.
3.
Söfnun refahræja á Suðausturlandi
Framlagt erindi frá Náttúrufræðistofu Suðausturlands um söfnun refahræja á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að koma frystikistu fyrir í áhaldahúsi.
4.
Umsögn um tilkynningarskylda framkvæmd - Hótel - Reynivellir
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna tilkynningarskyldrar framkvæmdar skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Framlögð gögn eru í samræmi við deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af bæjarstjórn og er framkvæmdin byggingarleyfisskyld. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Nefndin telur ekki að framkvæmdina þurfi að skýra frekar. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki að framkvæmdin skuli háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Byggingarleyfisumsókn Hagaleira 9, einbýlishús
Rannver Olsen sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 9 óverulega út fyrir byggingarreit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Meðalfell, viðbygging sólstofu á tveim hæðum
Meðalfell ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús á Meðalfelli. Um er að ræða sólstofu á tveim hæðum, aðalhæð og rishæð, á suðurhlið hússins. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar viðbyggingu án deiliskipulags þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
7.
Fyrirspurn vegna skálavarðarhúss í Kollumúla
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga óskar eftir heimild til að reisa skálavarðarhús við Múlaskála á Lónsöræfum án deiliskipulagsgerðar. húsið verður sirka 14 til 16 fermetrar að stærð og úr timbri með járn klæddu þaki.
Umhverfis- og Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að afla umsagnar Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands vegna náttúruverndar og forsætisráðuneytis vegna þjóðlendu.
8.
Erindi vegna bílastæða við Bogaslóð 4
Sótt er um að fá að merkja 3 bílastæði þar sem núverandi bílastæði Sigurhæðar eru.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að gerður verði afnotasamningur vegna bílastæða við Bogaslóð 4.
9.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Borgartún 3 og 5, breyting á deiliskipulagi
Fyrirspurnarteikningar frá Arcanum Fjallaleiðsögumenn ehf. vegna breytinga á skipulagsskilmálum lóða á Borgartúni 3 og 5 í Hofi. Óskað er heimildar til að byggja bílskúra og hluta af húsum utan byggingarreits. Bílskúrar yrðu þá sambyggðir á lóðarmörkum. Fyrirhuguð er að innrétta þá t'imabundið sem mötuneyti/samverurými fyrir starfsmenn fyrirtækis. Leitast verður við að hanna íbúðarhúsin og bílskúra þannig að auðvelt verði að breyta þeim í tvö aðskilin íbúðarhús. Nýr sameiginlegur gólfkóti yrði 62,5m.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu.
10.
Ósk um að Heppuvegur 5 fari inn í deiliskipulag Heppu
Fyrir hönd eigenda Heppuvegar 9 (merkt 5 í núverandi skipulagi), vilja Kaa arkitektar óska eftirþví að Heppuvegur 5 verði framvegis skilgreindur innan deiliskipulagsreits Heppunnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að Heppuvegur 9 verði fært inn í deiliskipulag Hafnarvík Heppa í endurskoðun skipulagsins.
11.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Greinargerð og umsókn um leyfi til að hefja vinnu að skipulagi á lóðum nr 4 og 6 við Hafnarbraut.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum um byggingarmagn, bílastæði og skuggavarp af húsinu.
12.
Ósk um heimild til að hefja skipulagsvinnu
Óskað er eftir heimild til að hefja skipulagsvinnu vegna virkjunar og svifferju sem er áformað að reisa í Birnudal í Suðursveit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að unnið verði deiliskipulag af svifferju og virkjun í Birnudal með fyrirvara um samþykki allra landeigenda. Vegna svifferju þarf að gera breytingu á aðalskipulagi þar sem fært er inn Afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF). Við gerð skipulags þarf að huga að aðkomuleiðum og hafa samráð við Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarð vegna náttúruverndar. Æskilegt er að umhverfisskýrsla með deiliskipulagi verði sameinuð með fyrirspurn um matsskyldu í samræmi við 9. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
13.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Vatnajökulsþjóðgarður leggur fram tillögu að skipulagslýsingu vegna heildarendurskoðunar deiliskipulags Skaftafells. Lýsingin hefur áður verið samþykkt á 101.fundi svæðisráðs suðursvæðis 1.11.2021 og 165. fundi stjórnar þjóðgarðsins 15.11.2021.Núgildandi deiliskipulag (Skaftafell, þjónustusvæði) tók gildi árið 2013 og var breytt 2016. Þótt ekki sé langtum liðið hefur þróun undanfarinna ára, ekki síst vaxandi fjöldi ferðamanna, gefið tilefni til þess að spyrja tiltekinna grunnspurninga um framtíðarfyrirkomulag mannvirkja og aðstöðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Deiliskipulagsbreyting Jökulsárlón - bílastæði við Nýgræðuöldur
Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir heimild til að breyta staðsetningu á bílastæði við Nýgræðuöldur frá því sem kynnt hefur verið í deiliskipulagi. Færslan er um 400 m og er talin betri með tilliti til tenginga við göngustíga og færslan er talin hafa jákvæð áhrif á umferðaröryggi. Bílastæðið við Nýgræðuöldur mun leysa af hólmi 3 lítil malarstæði og vegtengingum við þjóðveg 1 fækkað úr 3 í 1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna færslunnar skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
15.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Hafnarstjórn Hornafjarðar leggur fram skipulagslýsingu vegna deiliskipulags við Ósland. Fyrirhugað er að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi Hornafjarðarhafnar við Ósland. Breytingarnar eru sumar sértækar og ná til einstakra lóða en einnig þarf að gera breytingar á almennum skilmálum sem ná til alls svæðisins. Þar sem fyrirhugaðar breytingar eru talsvert margar var sú ákvörðun tekin að taka deiliskipulagið til endurskoðunar í heild sinni. Gildandi deiliskipulag, dags. 03.09.2015, fellur úr gildi við samþykkt nýs deiliskipulags. Meginmarkmið endurskoðunarinnar er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi til umfjöllunar. Markmið deiliskipulagsins er að fjölga íbúðum á svæðinu. Stefnt er að því að móta hverfi sem hentar ólíkum fjölskyldugerðum. Tryggja skal gott aðgengi að félagsheimilinu Hrollaugsstöðum. Skapa skal ramma utan um opin svæði við Hrollaugsstaði.
Lagt fram til kynningar.
17.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Yfirferð yfir stöðu deiliskipulagsvinnu vegna íbúðarbyggðar á Leirusvæði. Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
18.
Gjaldskrá fráveitu
Framlögð til kynningar gjaldskrá fyrir fráveitu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gjaldskráin verði hækkuð um 0,035% og felur starfsmanni að gera breytingar á gjaldskrá skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
19.
Gjaldskrá vatnsveitu
Framlögð til kynningar drög að gjaldskrá fyrir vatnsveitu Sveitarfélagsins Hornafjarðar í samræmi við leiðbeiningar samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytis vegna ákvörðunar vatnsgjalds skv. lögum um vatnsveitur, nr. 32/2004.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gjaldskráin verði hækkuð um 0,005% og felur starfsmanni að gera breytingar á gjaldskrá skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
20.
Gjaldskrá byggingamála
Framlögð til kynningar gjaldskrá gatnagerðagjalda, byggingagjalda og þjónustu embættis byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framlagðar breytingar á gjaldskrá verði samþykktar. Lagt er til að gjaldskráin verði tengd launavísitölu að frá töldum útreikningi gatnagerðargjalda. Málinu vísað til bæjarráðs.
21.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu 2021
Gjaldskrá samþykkt í janúar 2021 fylgir málinu. Gjaldskráin hefur ekki verið uppfærð en er til umræðu í nefndinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sorphirðugjald verði hækkað um 10% og að sorpeyðingargjald verði hækkað um 10% til þess að vinna í átt að því að málaflokkurinn geti staðið undir sér. Nefndin felur starfsmanni að gera úrbætur skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
22.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir söfnunarstöð sorps á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að hækkun á gjaldskrá um 10% til þess að vinna í átt að því að málaflokkurinn geti staðið undir sér. Lagt er til að verð auka=klippikorta hækki úr 9.200 kr. svo það sé í samræmi við urðunarkostnað per kg. Nefndin leggur til að gjaldskráin verði vísitölutengd. Nefndin felur starfsmanni að gera úrbætur skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
23.
Gjaldskrá umhverfis- og skipulagsmála
Framlögð drög að gjaldskrá fyrir skipulagsmál og umhverfismál.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að færa inn breytingas skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
24.
Reglur og gjaldskrá- refa og minkaveiði
Framlögð til kynningar drög að gjaldskrá fyrir refa- og minkaveiði í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar breytingar og hækkun á gjaldskrá. Málinu vísað til bæjarráðs.
25.
Deiliskipulag Þétting byggðar Innbæ
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur tekið fyrir mál nr. 109/2021, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 12. maí 2021 um að samþykkja nýtt deiliskipulag vegna þéttingar byggðar í Innbæ á Höfn í Hornafirði.Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá 12. maí 2021 um að samþykkja deiliskipulag vegna þéttingar byggðar í Innbæ á Höfn.
Lagt fram til kynningar.