Umhverfis- og skipulagsnefnd
32. fundur
2. febrúar 2022
kl.
16:00
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Vésteinn Fjölnisson
2. varamaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlitsskýrsla - Urðunarstaður Lóni
Eftirlitsskýrsla Umhverfisstofnunar vegna urðunarstaðarins í Lóni lögð fram til kynningar.
2.
Úrgangsmálefni: 2022
Framlagt minnisblað um móttökustöð sveitarfélagsins fyrir úrgang.
Starfsmönnum falið að skoða aðstöðuna í gámaporti og meta þörf á endurnýjun.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Framlögð til kynningar drög að aðgerðaráætlun fyrir umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að vinna málið áfram og hafa samráð við forstöðumenn i sveitarfélaginu. Málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.
4.
Nafn á víkinni við Ránarslóð
Framlagðar niðurstöður íbúakönnunar um nafn á víkina við Ránarslóð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að nefndin heiti Mönguvík með tilvísun í Mönguhelli.
Málinu vísað til bæjarráðs.
Málinu vísað til bæjarráðs.
5.
Fjöruhreinsun - Strandverðir Íslands
Framlagt til kynningar erindi Veraldarvina þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu "Strandverðir Íslands - Hreinsun strandlengju Hornafjarðar sumarið 2022".
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur starfsmanni að vinna málið áfram.
Málinu vísað til bæjarráðs.
Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Langatorfa, breyting á notkun fjárhúss í veitingastað
Eigendur Löngutorfu ehf. sækja um byggingarleyfi fyrir breytingu á notkun fjárhúss. Bæjarstjórn samþykkti þann 14.10.2021 að heimilt verði að veita byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga í máli nr. 202104031. Auk breytinga sem kynnt voru í haust er óskað nú eftir heimilt til viðbygginga, en um er að ræða 3,3m² anddyri og 3,2m² vindfang um 2,5m að hæð. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að viðbyggingar verði heimilaðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Leyfi vegna efnistöku á Suðurfjörum - breyting á aðalskipulagi
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi var til auglýsingar frá 16. desember til 30. janúar 2022. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, HAUST, Landgræðslunni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Vegagerðinni og Ómari Antonssyni.
Umsagnir HAUST, Landgræðslunnar og Vegagerðarinnar gefa ekki tilefni til viðbragða. Umhverfis og skipulagsnefnd leggur til að skilmálar Minjastofnunar vegna framkvæmdarinnar verði færðar inn í texta breytingarinnar sem og skilmálar um framkvæmdir við styrkingu aðkomuvegar og að frágangi skuli ljúka innan tveggja ára frá því að efnistaka hefst í samræmi við athugasemdir NÍ. Ómar Antonsson gerir athugasemd við að fjölgun efnistökusvæða í sveitarfélaginu gangi þvert gegn stefnu um efnistöku í aðalskipulagi og að beiðni um skipulagsbreytingu sé ekki frá landeiganda komin. Umhverfis og skipulagsnefnd bendir á að um er að ræða könnun á svæðinu og breytingin gefur ekki loforð um stækkun svæðisins eða frekari efnistöku síðar. Beiðni um skipulagsbreytingu er gerð í samvinnu við ábúanda. Leyfi landeiganda þarf að liggja fyrir við útgáfu framkvæmdaleyfis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagsbreytinguna skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem að ofan greinir og felur starfsmanni að svara þeim aðilum sem athugasemdir gerðu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagsbreytinguna skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem að ofan greinir og felur starfsmanni að svara þeim aðilum sem athugasemdir gerðu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Skipulagslýsing var í auglýsingu frá 16. desember til 16. janúar sl. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, HAUST, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagið verði áfram unnið í samstarfi við umsagnaraðila. Æskilegt er að samráð verði haft við Umhverfisstofnun um þá umhverfisþætti sem verða skoðaðir og metnir í tillögunni. Samráð verði einnig haft við Minjastofnun um minjaskráningu á svæðinu.
9.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Tillaga að deiliskipulagi lögð fram. Markmið deiliskipulagsins er að fjölga íbúðum á svæðinu. Stefnt er að því að móta hverfi sem hentar ólíkum fjölskyldugerðum. Tryggja skal gott aðgengi að félagsheimilinu Hrollaugsstöðum. Skapa skal ramma utan um opin svæði við Hrollaugsstaði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta færa inn breytingar skv. umræðum á fundinum. Nefndin samþykkir að auglýsa skipulagið skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Yfirferð yfir stöðu deiliskipulagsvinnu vegna íbúðarbyggðar á Leirusvæði. Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
11.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi á bæjartorfunni Reynivellir Efribær. Tillagan nær yfir reit VÞ 25 í aðalskipulagi:Reynivellir ferðaþjónusta, gisting/hótel. Allt að 200 gistirými, svæðisafmörkun 8ha.Deiliskipulagið tekur til húsatorfunnar sem fyrir er á jörðinni og nýbygginga við hana auk skemm nær þjóðvegi 1. Þar sem öll meginmarkmið liggja fyrir í aðalskipulagi er fallið frá gerð lýsingar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bætt verði inn umfjöllun um umhverfisáhrif tillögunnar skv. grein 5.4. í skipulagsreglugerð. Nefndin samþykkir að auglýsa deiliskipulagstillöguna og vísar henni í ferli skv. 40. og 41. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Gunnar Ásgeirsson og Birkir Birgisson koma á fundinn til að ræða uppbyggingu á lóðinni. Lögð hafa verið fram frekari gögn um skuggavarp af fyrirhugaðri byggingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta útbúa breytingu á deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verðu auglýst skv. 40. og 41. gr skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Deiliskipulagsbreyting - Álaleira 9-11
Tillagan var í auglýsingu frá 16. desember til 30. janúar. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir skipulagstillöguna skv. 42. gr. skipulagslaga og felur starfsmanni að senda skipulagsstofnun gögn um málsmeðferð.
14.
Deiliskipulag - Hálsasker - Svínafell 2
Deiliskipulagstillaga var í auglýsingu frá 19. nóvember 2021 til 3. janúar 2022. Umsagnir bárust frá HAUST, Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Minjastofnun og Veðurstofu Íslands. Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um tillöguna á fundi sínum þann 6. janúar 2022. Eftir þann fund barst viðbótarumsögn frá Veðurstofu Íslands um hættu á krapaflóðum. Lögð fram tillaga með breytingum eftir auglýsingu þar sem fjallað er um birkiskóg, forleifar og flóðahættu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið með framlögðum breytingum skv. 41. gr. skipulagslaga og vísar því í ferli skv. 42. gr. sömu laga. Starfsmanni falið að hafa samráð við Veðurstofu Íslands um breytinguna.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Breyting á aðalskipulagi - Borgarhöfn 2-3 Suðursveit
Bæjarstjórn samþykkti breytingu á að alskipulagi á fundi sínum þann 14. 10. 2021. Í umsögn Skipulagsstofnunar um afgreiðslumálsins er gerð athugasemd við að ekki hafi verið gerð grein fyrir afstöðu bæjarstjórnar til eftirfarandi í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. a. Hvort landið er stærra en þörf krefur að teknu tilliti til þeirra nýtingaráforma sem skipulagstillagan felur í sér. Jafnframt, eftir því sem við á, hvort aðrir valkostir um staðsetningu komi til greina fyrir fyrirhugaða nýtingu á landi sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar. b. Hver áhrif breyttrar landnotkunar eru á aðlæg landbúnaðarsvæði, m.a. hvort hæfileg fjarlægð er milli lands með breyttri landnotkun og landbúnaðar sem fyrir er og hvort girt verði með nýtingaráformum fyrir möguleg búrekstrarnot af landinu í framtíðinni.
Um er að ræða breytingu á landnotkun á um 5 ha svæði. Það er álit Umhverfis- og skipulagsnefndar að landið sé ekki stærra en þörf krefur vegna fyrirhugaðrar nýtingar og að valin hafi verið hentug staðsetning. Um er að ræða aflögð tún sem er aðeins lítill hluti jarðarinnar. Breytingin er ekki talin til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði eða notkun jarðarinnar til landbúnaðar. Fjölbreytt starfsemi á jörðinni er talin hafa jákvæð áhrif á búsetu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Til umfjöllunar atriði til skoðunar vegna vinnu við deiliskipulagstillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að haldinn verði íbúafundur um skipulagsbreytingar og fyrirhugaða uppbyggingu á hótelum í Útbæ á Höfn.
17.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Ósk um heimild til að deiliskipuleggja lóðina við Víkurbraut 1. Hugmyndin er að breyta svæðinu þannig að það verði hluti af miðbæjarsvæðinu með rekstri og íbúðum sem falla inn í gamla bæinn og verður þá hluti af miðbæjarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að fella svæðið út úr tillögu að deiliskipulagi skóla- og íþróttasvæðis. Gera skal ráð fyrir að fjallað sé um svæðið í skipulagslýsingu fyrir svæði Hafnarvík Heppa og að tryggja að samfella sé í þeim skipulagstillögum sem eru í vinnslu á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna tillögu að uppbyggingu á lóðinni í samræmi við kynntar hugmyndir í samstarfi við lóðarhafa. Leitast skal við að sameina tillöguna við endurskoðun skipulagsins Hafnarvík-Heppa.
18.
Lóðamál - Hafnarbraut 8 - ósk um stækkun lóðar
Mikael ehf óskar eftir stækkun lóðarinnar fyrir bílastæði í tengslum við starfsemi gistiheimilisins.
Starfsmanni falið að ræða við lóðarhafa í samræmi við umræður á fundinum. Taka þarf tillit til þess að göngustígur verði aðgengilegur og að ekki sé þrengt að möguleikum vistvænna samgangna á svæðinu.
19.
Ósk um stækkun lóðar Vesturbraut 6
Mikael ehf óskar eftir stækkun lóðar við Vesturbraut 6 skv. framlögðum teikningum. Lóðamörk færast þá um 6,14 m til norðurs. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Starfsmanni falið að grenndarkynna framlagða tillögu að stækkun lóðarinnar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er tillagan í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
20.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Tillögur að fyrirkomulagi á lóðinni.
Málinu frestað.
21.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Mikligarður og Verðandi - breytingar á húsum
Fyrirspurnarteikningar frá Kjartani Árnasýni vegna breytinga og endurbóta á Miklagarði, Verðanda og umhverfi þessara húsa. Sótt er um heimilt til að byggja við og endurnýja Miklagarð við Krosseyarveg 5 - 7, heimilt til að lækka landið framan við kjallara Miklagarðs að lóðarmörkum og gera “timburbryggju? meðfram eiginlegri bryggju, heimilt til að byggja nýtt hús í stað rústanna af Verðanda við Heppuveg 2B, heimilt til að gera aðkomutorg fyrir Miklagarð og Heppuna á þeim hluta lóðarinnarKrosseyjarvegur 5 -7 sem Graðaloftið stóð á og heimilt til að sameina og stækka lóðina Krosseyarvegur 5 - 7 og Heppuvegur 2B.Í gildi er deiliskipulag fyrir svæði frá 2011 sem er í endurskoðun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna framkvæmda skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
22.
Deiliskipulag Skaftafell III og IV
Deiliskipulagstillagan var í auglýsingu frá 19. nóvember 2021 til 3. janúar 2022. Umsagnir bárust frá Vatnajökulsþjóðgarði, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun, Vegagerðinni, HAUST og Árna Benediktssyni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að koma á samráðsfundi skipulagshöfunda með Vegagerðinni og Vatnajökulsþjóðgarði vegna viðbragða við athugasemdum.
23.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Umræða um fjölbýli við hliðina á Nettó og eldri uppdrætti af svæðinu. Lagt fram til kynningar.
24.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Umræða um mögulega lóð við Fiskhólinn. Lagt fram til kynningar.