Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

33. fundur
15. febrúar 2022 kl. 15:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Vésteinn Fjölnisson 2. varamaður
Þröstur Jóhannsson 1. varamaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Deiliskipulag skóla- og íþróttasvæðis. Barnvænt skipulag. Lagt fram til kynningar og umræðu.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
2.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Endurskoðun deiliskipulags í Óslandi.
Forsendur lagðar fram til kynningar.
3.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Tillögur að uppbyggingu á hótelum í Útbæ til umræðu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fyrirspurn um deiliskipulag útbæjar á Höfn
Málsnúmer 202111005
Stefnt er að kynningarfundi um verkefnin í mars. Breytingarnar verði unnar í tveimur breytingum á skipulaginu.
5.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Málsnúmer 202002001
Deiliskipulag fyrir íbúðarsvæði við Hrollaugsstaði hefur verið sent til Skipulagsstofnunar til yfirferðar ásamt aðalskipulagsbreytingu.
Lagt fram til kynningar.
6.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Málsnúmer 202011120
Deiliskipulag íbúðarsvæðis á Leirusvæði 2 til umfjöllunar.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
7.
Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík - Heppa
Málsnúmer 202108103
Tillögur vegna endurskoðunar deiliskipulags Hafnarvík Heppa til umræðu. Unnið er með breytta afmörkun skipulagsins og stækkun á svæðinu við Sláturhúsið. Aðkoma að Miklagarði og bílastæðamál á svæðinu.
Fjallað var um lóðamörk og afmörkun deiliskipulagsins. Samþykkt að í lýsingu deiliskipulagsins verði gert ráð fyrir Víkurbraut 1 og hluta af gömlu sláturhúslóðinni. Starfsmanni falið að vinna málið áfram og undirbúa skipulagslýsingu til auglýsingar í apríl.
8.
Færanlegt húsnæði við leikskólann
Málsnúmer 202201046
Unnið hefur verið að því að fjölga leikskólaplássum á Höfn. Lagðar voru fram hugmyndir frá Betula arkitektastofu um mögulegar útfærslur á stækkun leikskólans.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að fengnir verði arkitektar til að skoða betur útfærslur á tillögum 1 og 4 þar sem ekki er gengið á lóðina og tengingar við núverndi byggingu sérstaklega skoðaðar.
9.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Málsnúmer 202201106
Lagt fram til kynningar.
10.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Vegna uppbyggingar á fjölbýlishúsum austan við Miðbæ/Nettó á Höfn. Rifjaðar upp gamlar hugmyndir að uppbyggingu á svæðinu og lögð drög að fyrirkomulagi á svæðinu.
Starfsmanni falið að vinna tillögur að tveimur fjölbýlum á svæðinu.
11.
Ósk um stækkun lóðar Vesturbraut 6
Málsnúmer 202201108
Lagt fram samþykki nágranna vegna stækkunar á lóð Vesturbrautar 6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun lóðarinnar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er tillagan í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Gert er ráð fyrir íbúakosningu vegna deiliskipulags þéttingar byggðar í mars n.k. Drög að kynningargögnum og umræða um framsetningu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.