Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

34. fundur
3. mars 2022 kl. 16:00 - 18:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir 1. varamaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Nytjasmiðjan-regnhlíf hringrásarhagkerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202108014
Elísabet Björney Lárusdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur, kynnir helstu niðurstöður úttektar á meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Verkefni - Samtaka um hringrásarhagkerfi
Málsnúmer 202203003
Vegna þeirra meiriháttar breytinga sem framundan eru á úrgangsstjórnun sveitarfélaga boðar Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið til verkefnisins "Samtaka um hringrásarhagkerfi".
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu.
3.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Tillaga að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar lögð fram. Markmið með deiliskipulaginu er m.a. að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Tillögurnar eru byggðar á þarfagreiningum starfshópa um íþrótta-, skóla, og útivistarsvæði frá 2015 og 2017, Skipulagsforsögn og Forsendugreiningu sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann fyrir sveitarfélagið 2018 og 2019.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna fyrir íbúum og hagsmunaaðilum skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að útbúa kynningargögn, kynna fyrirhugaðar breytingar fyrir lóðarhöfum á svæðinu og boða til íbúafundar. Málinu vísað til Fræðslu- og tómstundanefndar, ungmennaráðs og stýrihóps um barnvænt samfélag.
4.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi v.leirusvæði
Málsnúmer 202202108
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarbyggð á Leirusvæði ÍB1 stækkar til suðvesturs og opið svæði OP2 minnkar að sama skapi. Markmið breytingarinnar er að skapa rými í íbúðarbyggðinni fyrir nýja raðhúsalóð neðan við Fiskhól.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytinguna og vísar henni í auglýsingarferli skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Kæra vegna ákvörðunar Bæjarstjórnar frá 11.nóvember 2021 vegna byggingar á lóð Stafafellsfjöll 8
Málsnúmer 202112026
Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 176/2021.Felld er úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar frá 11. nóvember 2021 um að víkja frá kröfu 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingar frístundahúss á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum. Samkvæmt úrskurðinum var sveitarfélaginu ekki heimilt að veita undanþágu frá breytingu á deiliskipulagi þar sem undanþáguákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga ber að túlka þröngt, enorðalag ákvæðisins ber skýrt með sér að hagsmunir kæranda mega í engu skerðast hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Þrátt fyrir að undanþágan snúi að því að byggja megi minna hús en deiliskipulagsskilmálar heimila og einnig telur úrskurðarnefndin að þrátt fyrir að skipulagsskilmáli deiliskipulagsins um mænistefnu sé til viðmiðunar verði að telja fyrirhugað frávik verulegt miðað við meginstefnu lands og hlíðar.
Lóðarhafi á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum hefur óskað eftir því að gerð verði skipulagsbreyting í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn lóðarhafa á lóð nr. 8 í Stafafellsfjöllum og grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
6.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Málsnúmer 202201106
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi þar sem bætt er við einni raðhúsalóð við Hagaleiru fyrir 6 íbúðir. Markmið með breytingunni er að koma til móts við eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Höfn. Samhliða verður breytt afmörkun deiliskipulags Tjaldsvæðis á Höfn og afmörkun íbúðarsvæðis ÍB1 í aðalskipulagi sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillögur að breytingum á deiliskipulögum og vísar þeim í ferli skv. 40 og 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lagt eru fram uppkast að tveimur útfærslum á breyttu skipulagi fyrir nýja lóð og byggingarreit fyrir hús með blandaða starfsemi. Unnið af EFLU verkfræðistofu, dagsett 25.02.2022.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 12, einbýlishús
Málsnúmer 202101016
Óskað er heimildar vegna frávika frá/breytinga á deiliskipulagi. Jóhannes Hjalti Danner sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á SA horni húss við Hagaleiru 12 óverulega út fyrir byggingarreit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 7 - skýli við hús
Málsnúmer 202201084
Birgir Árnason og Auður Lóa Magnúsdóttir sækja um heimild fyrir um 20m² skýli við hús á Sandbakka 7. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,39. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti.
Málinu er frestað.
10.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Lögð fram tillaga að lýsingu fyrir breytingar á deiliskipulagi Útbæjar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa lýsingu fyrir skipulagsbreytinguna skv. 40. gr. skipulagslaga. Framkvæmdaraðilum á svæðinu hefur verið boðið að kynna framkvæmdir á kynningarfundi um fyrirhugaða starfsemi á svæðinu. Fundurinn verður haldinn 28. mars nk.
11.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Málsnúmer 202111114
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hafnarvík Heppu. Byggingarreitir lóða við Hafnarbraut 4 og 6 stækka og verða samtengdir. Heimild verður fyrir þriggja hæða byggingu og kjallara á lóð nr. 6 og allt að tveggja hæða viðbyggingu og kjallara á hluta á lóð nr. 4. Gert er ráð fyrir um 20 bílastæðum í kjallara.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi og vísar henni í ferli skv. 40 og 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Deiliskipulag Skaftafell III og IV
Málsnúmer 202108101
Markmið með deiliskipulagi þessu er að sníða ramma utan um byggð lítilla húsa á jörðinni Skaftafell III og staðsetja grunninnviði. Deiliskipulagstillagan var í auglýsingu frá 19. nóvember 2021 til 3. janúar 2022. Umsagnir bárust frá Vatnajökulsþjóðgarði, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun, Vegagerðinni, HAUST og Árna Benediktssyni. Samráðsfundur vegna tillögunnar með Vegagerðinni og Vatnajökulsþjóðgarði var haldinn þann 15. febrúar 2022. Gerðar hafa verið eftirfarandi breytingar á tillögunni frá auglýsingu: * Texta um gróður á deiliskipulagssvæðinu hefur verið breytt lítillega. * Bætt hefur verið inn texta um útilýsingu á deiliskipulagssvæðinu. * Texta um tengingu við þjónustuhlað Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli með göngustíg og göngubrú hefur verið breytt. * Göngustígur og -brú/-brýr hefur verið afmáð af uppdráttum. * Texti um mögulega tengingu við vatnsveitur Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli hefur verið fjarlægður. * Það sem áður var kallað „veghelgunarsvæði“ á deiliskipulagssvæði á uppdráttum er nú „vegsvæði“. * Bætt hefur verið inn skýringu í texta um að lega rafstrengs sem sýnd er að deiliskipulagssvæðinu sé leiðbeinandi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið með þeim breytingum sem gerðar hafa verið til að bregðast við innkomnum umsögnum. Nefndin vísar skipulaginu í ferli skv. 42. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Lóðamál - Hafnarbraut 8 - ósk um stækkun lóðar
Málsnúmer 202112081
Lögð fram tillaga lóðarhafa að frágangi á lóðamörkum við göngustíg.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir stækkun lóðarinnar og felur starfsmanni að ræða við lóðarhafa um frágang.
14.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Mikligarður og Verðandi - breytingar á húsum
Málsnúmer 202201105
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hafnarvík Heppa vegan breytinga á Miklagarði, Verðandi og Graðalofti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.