Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

35. fundur
4. apríl 2022 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Þröstur Jóhannsson 1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Nefndir sveitarfélagsins hafa fjallað um umhverfis- og loftlagstefnu sveitarfélagsins og gera ekki athugasemdir við hana.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umhverfis- og loftslagsstefnu með smávægilegum breytingum.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Urðunarstaður: Grænt bókhald 2021
Málsnúmer 202201006
Framlögð drög að grænu bókhaldi fyrir urðunarstaðinn í Lóni fyrir árið 2021 ásamt fylgiskjölum.
Lagt fram til kynningar.
3.
Styrkir til eflingar hringrásarhagkerfisins 2022
Málsnúmer 202204013
Framlagt minnisblað um styrki umhverfis-, orku-, og auðlindaráðuneytisins til eflingar hringrásarhagkerfisins fyrir árið 2022.
Lagt fram til kynningar.
4.
Sorphirða í frístundabyggð í Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 202104013
Framlagðar niðurstöður könnunar meðal sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum í Lóni um sorphirðuþjónustuna sem boðið var upp á síðasta sumar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umferðaröryggi - Bílar á Kirkjubraut
Málsnúmer 202203070
Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar og vinnu við gerðar umferðaröryggisáætlunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu til vinnu við endurskoðun aðgerðaráætlunar fyrir umferðaröryggisáætlun sem fara þarf fram á næsta kjörtímabili.
6.
Grænt svæði milli Nýheima og Ráðhúss
Málsnúmer 202204011
Framlagðar hugmyndir Umhverfishóps Nýheima um möguleika á grænu svæði milli Nýheima og Ráðhússins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið. Verið er að vinna að uppbyggingu hjólaskýla við valdar stofnanir bæjarins.
7.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 24, viðbygging
Málsnúmer 202203032
Einar Jóhann Sigurðsson sækir um byggingarheimild til að byggja 59,2 m² bílskúr á lóð Miðtún 24 skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulagi fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi er lóð á íbúðarsvæði ÍB9. Mál hefur þegar verið tekið til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti grenndarkynningu og byggingaráform á 255. fundi þann 16.10.2018, en skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 skal grenndarkynning fara fram að nýju áður en leyfi er veitt, þar sem byggingar- eða framkvæmdaleyfi á grundvelli grenndarkynningar hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna umsókn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
8.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 7 - vindskýli við hús
Málsnúmer 202201084
Birgir Árnason og Auður Lóa Magnúsdóttir sækja um heimild fyrir um 20m² skýli við hús á Sandbakka 7. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,39. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera óverulegar breytingar á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Stöðuleyfisumsókn - Miðós 17, sex gámar - endurnýjun
Málsnúmer 202202090
Skinney-Þinganes hf. óskar eftir endurnýjun á stöðuleyfi fyrir sex gáma að Miðós 17 sem notaðir eru til framleiðslu á þurrkaða nagvöru fyrir gæludýr. Samkvæmt reglum um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði þarf samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar til að gefa út aftur stöðuleyfi fyrir sömu lausafjármuni á sömu landeign.
Umhverfis- og skipulagsefnd gerir ekki athugasemd við endurnýjun á stöðuleyfi.
10.
Landeignaskrá - Hnappavellir 1 - stofnun landeigna, landskipti
Málsnúmer 202110095
Gísli Sigurjón Jónsson óskar eftir samþykki fyrir skiptingu Hnappavalla 1 L160164 og staðfestingu á að skiptingin sé í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélagsins. Fyrirhuguð er að skipta út 3 landeignir úr jörðinni: Hjáleiga - landeignarnúmer L233485, Flatatún - landeignarnúmer L233486 og Mói - landeignarnúmer L233487. Samanlögð stærð þeirra er 2,21 ha. Hvorki hlunnindi né lögbýlisréttur fylgir lóðum. Landskipti mun ekki hafa áhrif á búrekstrarskilyrði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 15, viðbygging
Málsnúmer 202201007
Finnur vék af fundi undir þessum lið. Þórhallur Malmquist Einarsson óskar eftir heimild fyrir viðbyggingu við íbúðarhús á Sandbakka 15. Um er að ræða u.þ.b. 17 fm stækkun til vesturs skv. framlögðum teikningum. Fyrirhugað er að reisa viðbyggingu á þegar steyptan sökkul og plötu sem steypt voru með sökkli hússins á sínum tíma. Lóðin er á svæði C3 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,34. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga á fundi sínum þann 06.01.2022.
Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hefur farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Umsókn um byggingarheimild - Dalbraut 12, viðbygging, breyting á innra skipulagi
Málsnúmer 202203094
Golfklúbbur Hornafjarðar sækir um byggingarheimild fyrir litla viðbyggingu við hús að Dalbraut 12. Um er að ræða lokun innskots til að stækka anddýri skv. framlögðum teikningum. Auk þess eru kynntar breytingar á innra skipulagi og lögnum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði. Mannvirki er staðsett á ÍÞ2 svæði skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins og er því framkvæmd í samræmi við aðalskipulag.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi verið hafnar áður en leyfi hafi verið veitt. Að því sögðu leggur nefndin til að heimilt verður að veita byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. enda varðar framkvæmdin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Byggingarleyfisumsókn - Hraunhóll 1, einbýlishús
Málsnúmer 202204003
Verkfærni ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hraunhóll 1. Um er að ræða u.þ.b. 280 fm hús allt að 4,5 m að hæð samkvæmt framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Lóð er staðsett á ÍB10 svæði skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins og er því framkvæmd í samræmi við aðalskipulag.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna umsókn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
14.
Lóðamál - Hafnarbraut 8 - ósk um stækkun lóðar
Málsnúmer 202112081
Sótt er um stækkun lóðar fyrir bílastæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar stækkun lóðarinnar skv. framlögðum gögnum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Heimilað verði að fjölga bílastæðum um 8 og hækka upp lóðina um allt að 140 cm. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Tillaga - Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044
Málsnúmer 202203090
Tillaga að svæðisskipulagi Austurlands og umhverfismatsskýrsla hennar hefur verið birt til kynningar og umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og á vef Austurbrúar og verður aðgengileg þar til og með 21. apríl nk. Óskað er umsagnar sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að fjallað sé um jarðgöng um Lónsheiði í tillögunni, um er að ræða gríðarlega mikilvæga samgöngubót milli landsfjórðunga. Starfsmanni falið að skila inn umsögn.
16.
Breyting á aðalskipulagi - Hagaleira
Málsnúmer 202202108
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarbyggð á Leirusvæði ÍB1 stækkar til suðvesturs og opið svæði OP2 minnkar að sama skapi. Markmið breytingarinnar er að skapa rými í íbúðarbyggðinni fyrir nýja raðhúsalóð neðan við Fiskhól. Málið var áður tekið fyrir á fundi nefndarinnar 3. mars. Lagt er til að málið fái afgreiðslu sem óveruleg breyting á aðalskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breytingin fái málsmeðferð sem óveruleg breyting á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Málsnúmer 202002001
Íbúafundur var haldinn á Hrollaugsstöðum sem hluti af kynningu tillögunnar. Farið yfir athugasemdir og umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að færa staðsetningu sorpskýlis við félagsheimili.
18.
Deiliskipulagsbreyting Jökulsárlón - bílastæði við Nýgræðuöldur
Málsnúmer 202111081
Lögð fram tillaga að óverulegri breyting á deiliskipulagi Jökulsárlóns vegna færslu á bílastæði við Nýgræðuöldur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna færslunnar skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Deiliskipulag Borgarhöfn
Málsnúmer 202103128
Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að skilgreina tjaldsvæði, byggingarreit fyrir smáhýsi og lóðir og byggingarreiti fyrir frístundahús. Áform landeiganda er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða uppá möguleika til gistingar og afleidda þjónustu. Deiliskipulagið var auglýst frá 16. ágúst til 27. september 2021. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni og Minjastofnun.Borist hefur afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að gerð var aðalskipulagsbreyting vegna VÞ45 Borgarhöfn- Neðribær þar sem gert er ráð fyrir allt að 75 gistirýmum og 300 gestum á allt að 3 ha tjaldsvæði. Uppbygging skv. deiliskipulagi fellur innan þessa ákvæðis. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bætt sé inn í greinargerð frekari skilmálum um tjaldsvæði og skógrækt og að leitað verði aftur umsagnar frá Rarik og Minjastofnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga með ofangreindum breytingum í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar með fyrirvara um umsagnir Rarik og Minjastofnunar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
20.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Tillaga að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar lögð fram. Markmið með deiliskipulaginu er m.a. að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Tillögurnar eru byggðar á þarfagreiningum starfshópa um íþrótta-, skóla, og útivistarsvæði frá 2015 og 2017, Skipulagsforsögn og Forsendugreiningu sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann fyrir sveitarfélagið 2018 og 2019. Tillögurnar voru kynntar fyrir íbúum á opnum fundi þann 21. mars sl. í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málið hefur einnig hlotið umfjöllun í fræðslu- og tómstundanefnd, ungmennaráði og velferðarnefnd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
21.
Deiliskipulag - Reynivellir 2 Hótel
Málsnúmer 202203102
Lögð fram tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags Reynivalla II. Óskað er heimildar til að auka byggingarmagn úr 4.800 m2 í 6000 m2 og að hámarkshæð húss verði 11m frá aðkomugólfi í stað 10m.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
22.
Deiliskipulag - Breiðabólsstaður Hali
Málsnúmer 202003097
Deiliskipulag Breiðabólstaðatorfu var auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 26. janúar með athugasemdarfresti til 9. mars 2022.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Vegagerðinni, HAUST og Umhverfisstofnun. Engar athugasemdir bárust.
Ásgrímur vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins og felur umhverfis- og skipulagsstjóra að vinna málið áfram í samráði við landeigendur og umsagnaraðila.
23.
Breyting á deiliskipulagi fyrir lóðir J og K Útbæ
Málsnúmer 202204007
Óskað hefur verið eftir breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn. Á lóðum J og K er fyrirhuguð hótelstarfsemi sem byggir á smáhýsum með þjónustumiðstöð og móttöku, ásamt útilaug og sauna. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja þar smáhýsi á einni hæð. Lóðirnar skulu nýttar fyrir starfsemi þjónustufyrirtækja og stofnana sem sækja styrk í mikilfenglegt útsýni frá þeim. Til stendur að byggja samkvæmt deiliskipulagi en gera þarf lítilsháttar breytingar sem snúast um hækkun hámarkshæðar (1 hæð ris) og breytingar á skilmálum.Tillögur um uppbyggingu voru kynntar á íbúafundi þann 28. mars sl. og lýsing á breytingum kynnt á heimasíðu og gafst íbúum kostur á að leggja fram athugasemdir til 3. apríl. 3 athugasemdir bárust en engin þeirra snýr að breytingum á lóðum J og K.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að unnin verði breyting á deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn.
24.
Fyrirspurn um deiliskipulag útbæjar á Höfn
Málsnúmer 202111005
Óskað hefur verið eftir breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn. Icelandair hótel er staðsett á Ránarslóð 3. Til stendur að byggja við hótelið á lóðum A, B1 og B2. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja við hótelið og gert er ráð fyrir tveggja hæða húsum sem falla skulu að byggðarmynstri undir Afkastahól og umhverfis höfnina. Til stendur að byggja við hótelið samkvæmt deiliskipulagi en gera þarf lítilsháttar breytingar sem snúast um aukið byggingarmagn og breytingu á byggingarreit, kvöðum og skilmálumTillögur um uppbyggingu voru kynntar á íbúafundi þann 28. mars sl. og lýsing á breytingum kynnt á heimasíðu og gafst íbúum kostur á að leggja fram athugasemdir til 3. apríl. 3 athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að unnin verði breyting á deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn.
25.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Óskað hefur verið eftir breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn. Þar sem reist verði allt að Breytingin felur í sér sameiningu á framangreindum sex lóðum, aukið byggingarmagn um 3.490m2 og hækkun hámarkshæðar úr 6-8 m upp í um 11 m, sem og breytingu á byggingarreitum ogskilmálum. Tillögur um uppbyggingu voru kynntar á íbúafundi þann 28. mars sl. og lýsing á breytingum kynnt á heimasíðu og gafst íbúum kostur á að leggja fram athugasemdir til 3. apríl. 3 athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir aukinni uppbyggingu á lóðunum en telur að tryggja þurfi betra samræmi við gildandi skipulagsskilmála og óskar eftir upplýsingum um hótelbyggingar á vegum þessara aðila annarstaðar, í samræmi við upplýsingar sem fram komu á íbúafundi.
26.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara frá Skaftárhreppi að Skaftafelli
Málsnúmer 202102073
Orkufjarskipti óska eftir framlengingu á framkvæmdaleyfi til eins árs, en leyfið rann út 11 mars 2022. ástæðan eru tafir á framkvæmdinni af ýmsum ástæðum, meðal annars gerði Covid erfitt fyrir varðandi mannskap og efnisöflun frá byrgjum erlendis frá. Fyrirhugað er að byrja þessar framkvæmdir síðla sumars júlí/ágúst 2022. Enginn breyting hefur orðið á fyrirkomulagi framkvæmdarinnar.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
27.
Framkvæmdaleyfi - ljósleiðari milli Hóla og Almannaskarðsganga
Málsnúmer 202204015
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lagningu ljósleiðara milli Hóla og Almannaskarðsganga.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
28.
Deiliskipulagsbreyting - Víkurbraut 9, Miðbær Hafnar reitur A
Málsnúmer 202204019
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar, reitur A milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar vegna fyrirhugaðar framkvæmdar við líkamsræktarstöð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.