Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

39. fundur
8. ágúst 2022 kl. 16:00 - 18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 2. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Styrkir til eflingar hringrásarhagkerfisins 2022
Málsnúmer 202204013
Framlagt svar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins við umsókn sveitarfélagsins um styrk til eflingar hringrásarhagkerfisins. Ekkert sveitarfélag fékk úthlutun úr sjóðnum á þessu ári og því hlaut verkefnið "Borgað þegar hent er á Höfn í Hornafirði" ekki styrk.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar svarið en lýsir um leið yfir vonbrigðum með að verkefnið hafi ekki hlotið styrk.
2.
Móttökustöð fyrir úrgang
Málsnúmer 202208013
Framlagt minnisblað um rekstur móttökustöðvar sveitarfélagsins fyrir úrgang og lagðar fram tillögur að breyttum opnunartíma.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta opnunartíma móttökustöðvar sveitarfélagsins fyrir úrgang. Nýr opnunartími verður frá 13:00 - 17:00 mánudaga til fimmtudaga og 11:00 - 15:00 á laugardögum. Áfram verður lokað á föstudögum og sunnudögum.
3.
Byggingarleyfisumsókn - Bugðuleira 9 Álaleira 11, tvö raðhús
Málsnúmer 202111031
Mikael ehf. óskar eftir frávik frá deiliskipulagi til að heimila raðhús 4,66 m að hæð. Í gildi er deiliskipulag frá 1993 ásamt breytingum á því frá 2016 og 2022, sem gera ráð fyrir allt að 4,5m hátt raðhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn heimili að byggja 4,7 m. hátt raðhús skv. framlögðum teikningum og að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 12 (Draumaland), stækkun og endurnýjun
Málsnúmer 202112071
Gunnlaugur vék af fundi undir þessum dagskrálið. Skrýmir Árnason og Halldóra Jónsdóttir sækja um leyfi til að breyta íbúðarhús á Miðtún 12. Um er að ræða niðurrif viðbyggingar suðvestan við húsið, stækkun austan megin, hækkun þaks, og nýbyggingu fyrir geymslu og vinnustofu samkvæmt framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði. Framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Grenndarkynning fór fram frá 24. maí til 24. júní 2022. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir að heimila framkvæmdir á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 11, óupphituð sólstofa
Málsnúmer 202207044
Sigurjón Gunnarsson sækir um heimild til að byggja 19m² óupphitaða sólstofu við hús á Sandbakka 11. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en þar kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Með sólstofu mun nýtingarhlutfall vera 0,31. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
6.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 2 - sólskáli
Málsnúmer 202206068
Kristjón Elvar Elvarsson sækir um leyfi til að setja kaldan sólskála við hús á Miðtúni 2. Framleiðandi er PGV Framtíðarform ehf. Skálinn verður um 13,5 m², um 2,5m að hæð og fylgir honum yfirlýsing NMÍ um nothæfi fyrir íslenskar aðstæður. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna umsókn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
7.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Víkurbraut 1, stækkun á þjónustustöð N1
Málsnúmer 202207041
N1 fyrirhugar að byggja viðbyggingu við þjónustustöð N1 á Höfn. Á þessu stigi hefur ekki verið tekin ákvörðun um nákvæmt ytra eða innra fyrirkomulag. Óskað er eftir stækkun lóðarinnar til suðurs og afstöðu sveitarfélagsins til stækkunar þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því enginn byggingarreitur á lóðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir stækkun lóðarinnar til suðurs. Starfsmanni falið að ræða við lóðarhafa um afmörkun stækkunar og stækkun byggingar. Æskilegt væri að samhliða umsókn um stærri lóð og byggingarheimildir væri gert grein fyrir framtíðarskipulagi á lóðinni þ.m.t. fyrirkomulagi rafhleðslu fyrir bíla.
8.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Sauðanes 3, beiðni um umsögn vegna lögbýlis
Málsnúmer 202207043
Ósk um umsögn um stofnun Lögbýlis. Fyrirhugað er að stofna lögbýli á landeign á L230376 sem búið er að hnitsetja og þinglýsa og gefa út afsal til okkar fyrir. Til stendur á næstu misserum að fara í uppbyggingu þarna m.t.t. til þess að geta búið þar og verið með landbúnaðartengda starfsemi á jörðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar uppbyggingu í dreifbýli og að unnið sé að uppbyggingu landbúnaðartengdrar starfsemi í sveitarfélaginu og veitir jákvæða umsögn.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Framkvæmdaleyfi - Göngubrú yfir Hólmsá á Mýrum
Málsnúmer 202208014
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi við gerðar göngubrúar yfir Hólmsá á Mýrum sbr. meðfylgjandi teikningar. Skal verkefnið unnið fyrir árslok 2022.Landið sem um ræðir er í einkaeigu og liggur leyfi landeigenda fyrir framkvæmdunum. Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við hagaðila.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Framkvæmdaleyfi - Göngubrýr yfir Svínafellsá og Skaftafellsá í Öræfum
Málsnúmer 202208015
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi við gerðar göngubrúar yfir Svínafellsá og Skaftafellsá í Öræfum sbr. meðfylgjandi teikningar. Skal verkefnið unnið fyrir árslok 2022.Landið sem um ræðir er í einkaeigu og liggur leyfi landeigenda fyrir framkvæmdunum. Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við hagaðila.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Framkvæmdaleyfi - Efnistaka á Suðurfjörum
Málsnúmer 202204014
GYG ehf óskar eftir framkvæmdarleyfi vegna efnistöku til rannsóknar á Suðurfjörum innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samtals um 2000m3 eða um 3500 tonn! Einnig er óskað er eftir að framkvæmdaleyfi taki gildi strax og hafi gildi til janúar 2024 eins og kemur fram í bréfi frá Ríkiseignum.Efnið verður tekið á nokkrum stöðum frá austur enda lóðar Borgar og inná land Eskey (Skinney) við ósa Hólmsár eins og kemur fram í meðfylgjandi fylgiskjali.Efnið verður tekið í flæða málinu á ströndinni og því þarf ekki að ganga frá eða laga svæðið eftir efnistökuna.
Málinu er frestað.
12.
Breyting á aðalskipulagi við Hrollaugsstaði
Málsnúmer 202102046
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030, samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Í breytingunni felst m.a. að skilgreint er nýtt 2,9 ha svæði fyrir íbúðarbyggð við félagsheimilið Hrollaugsstaði í Suðursveit og svæði fyrir verslun og þjónustu minnkar sem því nemur. Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 31 íbúð auk þess sem mögulegt verður að taka hluta af félagsheimilinu undir leikskóla.Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 5. apríl til 17. maí.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og HAUST.Engar athugasemdir bárust.
Málinu er frestað.
13.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Málsnúmer 202002001
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi að Hrollaugsstöðum í Suðursveit samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Í deiliskipulaginu er m.a. skilgreindar 5 nýjar lóðir og byggingarreitir fyrir rað og parhús ásamt viðbyggingu við félagsheimilið. Gerð er grein fyrir byggingarmagni, aðkomu og bílastæðum. Markmiðið er að fjölga íbúðum á svæðinu og móta hverfi sem hengar ólíkum fjölskyldugerðum.Tillaga að deiliskipulagi var auglýst með athugasemdarfresti frá 5. apríl til 17. maí.Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun, HAUST, RARIK og Minjastofnun Íslands. Ein athugasemd barst.
Málinu vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
14.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Málsnúmer 202201032
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir frístundahús, smáhýsi og skemmu fyrir búfé og vinnuvélar. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum og á svæði fyrir stöðuhýsi.Tillagan var auglýst frá 24. febrúar með athugasemdarfresti til 11. apríl 2022.5 umsagnir bárust.
Málinu er frestað.
15.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Tekið er fyrir deiliskipulag miðsvæðis Hafnar. Tillaga skipulagsins var auglýst með athugasemdarfresti frá 13. apríl til 5. júní. Engar athugasemdir bárust.Umsögn barst frá Minjastofnun dags. 12. júlí 2022. Þar segir að sjö minjastaðir eru skráðir á skipulagssvæðinu og að uppfæra þurfi greinargerð skipulagsins þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum fornleifaskráningarinnar en fjórir staðir teljast til fornleifa. Uppfæra þarf skipulagsuppdrátt þar sem fram koma skráðar minjar. Þörf er að vinna húsakönnun fyrir svæðið.
Starfsmanni falið að funda með Vegagerðinni og láta uppfæra gögn.
16.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Málsnúmer 202201106
Tekin er fyrir breyting á deiliskipulagi Leira á Höfn og samhliða breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn. Breytingin var auglýst með athugasemdarfresti frá 17. maí til 28. júní 2022.Ein athugasemd barst sem snéri m.a. að áhyggjum vegna aukinnar umferðar, raski, skerðingu á birtu og útsýni og áhyggjum af leigu/gistingu í nýju húsi.Minjastofnun skilaði inn umsögnum dags. 11. júlí 2022. Í umsögn um deiliskipulagsbreytingu íbúðarsvæðis á Leirum kemur fram að engar þekktar fornminjar eru innan svæðisins sem breytingin nær yfir en rétt utan við hin nýju skipulagsmörk er ummerki um minjar sem taka þarf tillit til við framkvæmdir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leira á Höfn og tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að hún samþykki fyrirliggjandi drög umhverfis- og skipulagsstjóra að svörum við athugasemd.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Deiliskipulag - gamla sláturhúsið
Málsnúmer 202208012
Óskað er heimildar til að breyta geymslu í norðurhluta gamla sláturhússins í íbúðarhúsnæði. Nú er verið að breyta starfsemi sláturhússins í heild í íbúðir, verslanir, veitingahús og annað. Við viljum gjarnan fylgja áætlunum annara eigenda hvað varðar útlit og hlutverk hússins og teljum að núverandi geymsla hæfi ekki heildarímynd og starfsemi hússins né nýju deiliskipulagi í kringum framkvæmdina sem telur Heppuna miðsvæðis.
Húsnæðið er á miðsvæði og samræmast áformin því aðalskipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd fyrir fyrirhuguð áform.
18.
Deiliskipulag austan Víkurbrautar, svæði S3- breyting Leikskóli
Málsnúmer 202208016
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi í þeim tilgangi að stækka núverandi leikskóla og koma fyrir tímabundnu húsnæði á lóðinni fyrir tvær leikskóladeildir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar í ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Skipulag íbúðarsvæðis
Málsnúmer 202003026
Lögð fram gögn til umræðu um stöðu og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Höfn.
Farið var yfir gögn og forsendur fyrir uppbyggingu íbúðarbyggðar á Höfn. Málinu vísað í áframhaldandi vinnu.
20.
Ráðhús aðgengi utanhúss
Málsnúmer 202207054
Unnið er að því að bæta aðgengi og lagfæra aðkomu að ráðhúsi Hafnarbraut 27 á Höfn og tryggja aðgengi fyrir alla. Lagðar eru fram teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum til kynningar.
Lagt fram til kynningar.