Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

40. fundur
22. ágúst 2022 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Málsnúmer 202108112
Framlagt minnisblað um fyrirhugað sorpútboð.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir nefndina að nýju.
2.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Framlögð drög að aðgerðaráætlun fyrir umhverfis- og loftslagsstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022-2030.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Málið verður lagt fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.
3.
Eftirlitsskýrsla - Opin leiksvæði 2022
Málsnúmer 202207035
Heilbrigðiseftirlit Austurlands fór í eftirlit á opin leiksvæði á Höfn í júní. Nokkrar athugasemdir bárust. Úrbætur eru komnar í ferli.
Lagt fram til kynningar. Starfsmanni falið að fylgja því eftir að brugðist verði við þeim athugasemdum sem koma fram í skoðunarskýrslu HAUST.
4.
Breyting á deiliskipulagi - Deiliskipulag austan Víkurbrautar, svæði S3
Málsnúmer 202205075
Jón Malmquist Guðmundsson leggur til frumdrög af teikningum á húsi og óskar eftir breytingum á skilmálum deiliskipulags austan Víkurbrautar varðandi lóð Víkurbraut 34. Bæjarráð samþykkti á fundi þann 22.06.2022 að víkið megi frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi vegna aukningu byggingarmagni lóðar í 360m² og breytingu á notkun íbúða úr "þjónustuíbúðir aldraða" í "íbúðir aldraða". Sótt er nú um aukningu byggingarmagns lóðar í 365m².
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn heimili að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hagatún 3, stækkun á bílastæði
Málsnúmer 202208034
Vigfús Vigfússon óskar eftir leyfi til stækkunar á bílastæði við hús að Hagatúni 3. Fyrirhuguð er að setja malarstæði fyrir tvo bíla skv. framlögðum teikningum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að bætt verði við bílastæðum á lóðinni í samræmi við framlögð gögn án þess að unnið sé deiliskipulag af svæðinu enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd fellur frá grenndarkynningu þar sem sýnt þykir að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
6.
Breyting á aðalskipulagi - stækkun miðsvæðis á Höfn
Málsnúmer 202208036
Lögð er fram skipulagslýsing í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag sem tekur til hluta miðsvæðis Hafnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.