Umhverfis- og skipulagsnefnd
41. fundur
5. september 2022
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Guðbjörg Ómarsdóttir
2. varamaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Bæjarstjórn lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við siðareglur kjörinna fulltrúa.
2.
Umhverfisviðurkenning 2022
Auglýst er eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022. Óskað er tilnefninga á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu, starfi og rekstri eða hafa á annan hátt lagt sitt af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.Frestur til að senda inn tilnefningar er til 26. september.
Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar til umhverfisviðurkenninga.
3.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 11, óupphituð sólstofa
Finnur Smári Torfasson vék af fundi undir þessum lið. Sigurjón Gunnarsson sækir um heimild til að byggja 19m² óupphitaða sólstofu við hús á Sandbakka 11. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en þar kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Með sólstofu mun nýtingarhlutfall vera 0,31. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa grenndarkynningu á fundi þann 08.08.2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Hlíðartún 7, bílskúr
Karl Heimir Einarsson sækir um byggingaheimild fyrir 60m² bílskúr á lóð Hlíðartún 7. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna umsókn skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
5.
Tilkynning um framkvæmd - Vogabraut 4, PVC skjólþak yfir sólpall
Ásgeir Ingi Óskarsson sækir um leyfi til þess að byggja skjólþak úr PVC báruplasti yfir núverarndi sólpall að Vogabraut 4. 7 uppistöður eru steyptar niður í holur og er heildar-flatarmál 29m2. Opið er í báða enda (austur/vestur) og að hluta til að framan (suður). Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykkir að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Landeignaskrá - Miðsker, stofnun landeignar
Miðskersbúið ehf óskar um skipti á Miðskeri. Fyrirhuguð er að stofna nýja 0,85 ha lóð. Ný landeign verður á landbúnarðasvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeignar, enda samrýmist hún skipulagsáætlun, sbr. 6.gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsögn: Aðalskipulag Skaftárhrepps 2020-2032
Skaftárhreppur leitar umsagnar á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031 - Heildarendurskoðun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við auglýst skipulag. Bent er á að deilt hefur verið um sveitarfélagamörk.
8.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 34, breyting á notkun
Í kjölfar þess að veitingastaðnum Úps var lokað, óskar eigandi húsnæðisins eftir umsögn Umhverfis- og skipulagsnefndar varðandi fyrirhugaða breytingu á nýtingu hússins. Hugmyndin er að breyta húsnæðinu úr Veitingastað í Gistiheimili í flokki 2. Í húsinu yrðu standsettar þrjár stúdíó-íbúðir ætlaðar til útleigu í skemmri eða lengri tíma.Engar útlitsbreytingar yrðu gerðar á húsnæðinu aðrar en þær að bílskúrshurð sem nú er á vesturhlið hússins yrði lokað og þar yrði sett útihurð og gluggi með opnanlegu fagi.Engar breytingar yrðu gerðar á húsinu sem takmarka myndu nýtingamöguleika þess sem verslunarhúsnæði til frambúðar, enda ynni það á móti lengri tíma áætlunum eigenda um fyrirhugaða starfsemi í húsinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að gististarfsemi í flokki II rúmist í gildandi skilmálum aðal- og deiliskipulags og telur að breyting á notkun sé heimil.
Nefndin bendir á að breyting á notkun mannvirkis er byggingarleyfisskyld skv. 9. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Nefndin bendir á að breyting á notkun mannvirkis er byggingarleyfisskyld skv. 9. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
9.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2 a
Rúnar Þór Guðmundsson f.h. Útspark ehf gerði grein fyrir hugmyndum um uppbyggingu á lóðum Dalbraut 2A, 2B, og 2C. Fyrirhuguð er að reisa um 350 m² sex íbúða hús á hverri lóð fyrir sig. Vegna hæðarsetningar lóða er fyrirhuguð að reisa þriggja hæða hús með aðalinngangi á miðhæð. Fyrirhuguð er að mæni á húsum yrðu aðeins upp fyrir mænir á Dalbraut 4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd lýst vel á hugmyndir um uppbyggingu á lóðum og telur æskilegt að hámarkshæð húsa fari ekki upp fyrir mæni á Dalbraut 4.
Málinu vísað til bæjarráðs.
Málinu vísað til bæjarráðs.
10.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Árið 2014 fannst sprunga í Svínafellsheiði ofan við Svínafellsjökul. Sprungan hefur verið mæld og er vöktuð og drög að hættumati liggur fyrir og var kynnt fyrir íbúum vorið 2021. Skipulagsvinnu á svæðinu var frestað á árinu 2018 og hefur enn ekki hafist. Leiðbeininga hefur verið óskað frá Skipulagsstofnun vegna málsins en svör hafa ekki borist.
Lagt fram til kynningar.