Umhverfis- og skipulagsnefnd
43. fundur
3. október 2022
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Sveitarfélagið áformar breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 í landi Seljavalla 2 land vegna fyrirhugaðra áforma landeiganda um uppbyggingu ferðaþjónustu. Lögð er fram uppfærð skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingarinnar og vegna deiliskipulags svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Breyting á aðalskipulagi - VÞ45 Reynivellir
Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem gistirýmum á reit VÞ45- Reynivellir II er fjölgað úr 100 í 150.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hafi ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Útbær Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Deiliskipulag fyrir um 13.000 m2 hótel í Útbæ var samþykkt til auglýsingar skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 21. júlí 2022. Tillagan var auglýst frá 12. ágúst með athugasemdarfresti til 23. september 2022. Tvær athugasemdir og tvær umsagnir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að hún samþykki fyrirliggjandi drög umhverfis- og skipulagsnefndar að svörum við athugasemdum.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Breyting á deiliskipulagi fyrir lóðir J og K Útbæ
Óskað er eftir heimild til að breyta skipulagi á lóðum K og J í Útbæ. Breytingar felast í : xBreyttum lóðarmörkum til að ávarpa tillögu að breyttir að komu á aðliggjandi lóðum.xBotnlangi hefur verið fjarlægður, og innkeyrsla inn á lóð er being inn af götu á austurhlið. xBreyttu nýtingarhlutfalli í samræmi við tillögur á aðliggjandi lóðum. xBreyttum byggingarreit í samræmi við tillögur á aðliggjandi lóðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í samtal um breytingu á skipulagsskilmálum lóðanna. Starfsmanni falið að boða lóðarhafa á næsta fund nefndarinnar.
5.
Reynivellir II, aðkoma - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu deiliskipulags Reynivalla II vegna breyttrar aðkomu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsbreytingin verði samþykkt í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Deiliskipulagstillaga Háhóll tekin fyrir til endurauglýsingar en skipulagið var áður auglýst frá 29. ágúst til 14. október 2019. Skipulagssvæðið er tvískipt og nær yfir um 37 ha. Svæðið er skammt norðan Hafnar og tekur yfir land Dilksness 1 og 2, Hjarðarness, Háhóls, Garðshorns og Hólaness. Ekki liggja fyrir formleg skipti milli Hjarðarness, Háhóls og Garðshorns. Skipulagssvæðið er nær algróið og liggur milli Suðurlandsvegar/Hafnarvegar að austanverðu og Hornafjarðar að vestanverðu. Hluti svæðisins er votlendur og um það kvíslast lækir. Land hefur verið framræst að hluta til. Heimalandið, næst byggingum, er að stærstum hluta til ræktað land en einnig hafa verið ræktuð tún á Hólanesi og víðar. Mannvirki standa á grónum klapparholtum sem eru hærra í landinu. Á jörðunum er stundaður landbúnaður, garðyrkjustarfsemi, steypustöð og ferðaþjónusta. Jarðirnar eru lögbýli í ábúð og rekstri.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar í ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Skipulag íbúðarsvæðis
Umræður um skipulag næsta íbúðarsvæðis á Höfn.
Starfsmanni falið að taka saman upplýsingar um forsendur og þær jarðvegskannanir sem hafa átt sér stað svo nefndin geti tekið upplýsta ákvörðun.
8.
Fylling í Sílavík - Framkvæmdaleyfi
Erindi frá Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi til uppfyllingar í Sílavík á Höfn við tjaldsvæði.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og deiliskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Ályktun - Stefna stjórnvalda um skógrækt á landsvísu
Bréf Skógræktarfélags Íslands um sveitarfélög, skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi til skógræktar. Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfis- og skipulagsnefndar
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur Skógræktarfélag Íslands til að aðstoða umsækjendur um skipulags- og framkvæmdaleyfi vegna skógræktar. Bent er á að um lögboðna ferla er að ræða sem geta tekið tíma og því mikilvægt að fullnægjandi gögn í samræmi við fyrrgreind lög, skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 skili sér tímanlega.
10.
Fjárhagsáætlun Umhverfis- og skipulagssviðs
Umræða um fjárhagsáætlun umhverfis og skipulagssviðs og áherslur næsta árs.
Lagt fram til kynningar.