Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

44. fundur
12. október 2022 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Umsögn - Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
Málsnúmer 202210029
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 188/2022 - "Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir". Boð um umsögn er hér með sent, en öllum er frjálst að taka þátt í samráðinu. Niðurstöður samráðsins verða birtar í gáttinni þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.
Sveitarfélagið tekur undir þá lykilþætti er fram koma um friðlýst svæði en vill auk þess koma eftirfarandi á framfæri: Sveitarfélagið Hornafjörður telur að verulegt aukið fjármagn þurfi að koma til friðlýstra svæða til að vernda fyrir átroðningi. Leyfisveitingar til uppbyggingar þjónustu og starfsmannaaðstöðu þarf að einfalda og auðvelda. Bæta þarf inn í lykilþætti umsjón með vegum sem liggja að friðlýstum svæðum, t.d. þjóðgörðum, og tryggja fjármagn til viðhalds og uppbyggingar þeirra.
Mikilvægt er að uppbygging innviða sé í samræmi við áfangastaðaáætlun og aðalskipulag sveitarfélaga.
2.
Refa- og minkauppgjör 2021 - 2022
Málsnúmer 202209070
Framlagt minnisblað um refa- og minkaveiðar yfir tímabilið 2021 - 2022 og áætlunargerð til næstu þriggja ára.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna að gerð áætlunar í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Verkefni - Samtaka um hringrásarhagkerfi
Málsnúmer 202203003
Framlagt minnisblað um stöðu verkefnisins "Samtaka um hringrásarverkefnið". Farið er yfir helstu atriðin sem fram komu á ráðstefnu Umhverfisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um hringrásarhagkerfið sem haldin var þann 7. október.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsögn - Náma í Almannaskarði
Málsnúmer 202209093
Jarðfræðistofan Stapi hefur sent Skipulagsstofnun tilkynningu um efnistöku í Almannaskarði skv. 19. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Í samræmi við 20. gr. laga nr. 111/2021 er hér með óskað eftir að Sveitarfélagið Hornafjörður gefi umsögn um ofangreinda framkvæmd.Í umsögninni skal koma fram eftir því sem við á, hvort þið teljið að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og vöktun eftir því sem við á. Jafnframt hvort og þá hvaða atriði þið teljið þurfa að skýra frekar og hvort þau kalli að hans mati á að framkvæmdin fari í umhverfismat að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Jafnframt skal í umsögn gera grein fyrir leyfum sem framkvæmdin er háð og eru á starfssviði umsagnaraðila.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að í skýrslunni sé nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og vöktun og því ekki þörf á frekara mati á umhverfisáhrifum. Nefndin leggur áherslu á góða umgengni á vinnslutíma og að dregið verði úr sjónrænum áhrifum eins og frekast er kostur. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að til þess að hægt sé að taka áfram efni úr námunni þarf að gera breytingu á aðalskipulagi. Tryggja þarf að leiðin um Almannaskarð sé opin fyrir umferð í neyðartilvikum og þeim tilvikum þar sem ökutæki komast ekki um göngin. Vegurinn um Almannaskarð er einnig vinsæl gönguleið og mikilvægt að tekið sé tillit til þess við vinnslu í námunni.
5.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku
Málsnúmer 202210042
Malarnám í skilgreindum námum í landi Setbergs í Nesjum, Sveitarfélaginu Hornafirði, landnúmer 159516. Námurnar eru annars vegar í árfarvegi, Grjótá, og í skriðu hinsvegar. Efnismagnið sem verður unnið úr námunum er innan marka þeirra sem sett eru í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Efnisnám hefst 2022. Ástand námunnar verður metið árlega á framkvæmdatímanum og um leið ákvörðun um áframhaldandi vinnslu og umfang endurmetið. Við lok framkvæmdatíma verður námunum lokað í samráði við landeigendur og yfirborð lagað að umhverfinu. Vegir og slóðar afmáðir og landinu skilað.Óskað eftir að taka efni á eftirfarandi hátt: E32 - Heimilt að taka allt að 10.000 m3. Unnið hefur verið lítillega úr námunni árum saman. Tekið úr árfarvegi og aurkeilum við Grjóta á þremur stöðum (Svæði 1 um 0,8 ha, svæði 2 um 0,6 ha og svæði 3 um 0,6 ha. Samtals um 2 ha) þar sem aðgengi er gott og mikilvægt er að losa úr ánni efni til að halda farveginum opnum og minnka hættu á að flæði yfir gróðursvæði. Um er að ræða ógrónar áreyrar og flóðasvæði og því engar líkur á að þar séu fornminjar. Sótt er um leyfi til að taka 1000-1400 m3 á ári í 6 ár eða samtals 8400 m3. E33 ? heimilt að taka allt að 149.999 m3. Unnið hefur verið úr námunni í áraraðir. Gert er ráð fyrir að haldið sé áfram að taka úr námunni á sama hátt og verið hefur. Síðastliðin ár hefur tiltölulega lítið efni verið unnið úr námunni og því hefur efni sem fallið hefur niður skriðuna dreift sér talsvert og runnið yfir gróin svæði og tún með tilheyrandi tjóni á girðingum. Við vinnsluna verður reynt að forma námuna þannig að skriðan dreifi sér minna og að meira efni rati ofan í námusvæðið. Heildarstærð námusvæðis verður um 2 ha. Sótt er um heimild til að taka um 8.000 m3 á ári í 6 ár ? samtals 48.000 m3.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga ef skilað verður inn jákvæðri umsögn Fiskistofu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Framkvæmdaleyfi vegna efnisskipta og aðkomu Seljavellir II
Málsnúmer 202210044
Ósk um framkvæmdaleyfi vegna efnisskipta á lóð við fyrirhuguð 10 smáhýsi. Svæðið verður grófjafnað strax að loknum framkvæmdum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag eru ekki samþykkt.
7.
Landeignaskrá - Svínafell 2 og 4 - Hálsasker 3, stofnun landeignar
Málsnúmer 202210033
Ármann Karl Guðmundsson og Hólmfríður Guðlaugsdóttir óska eftir stofnun lóðar úr Svínafelli 2 og 4. Um er að ræða 1.500 m² lóð fyrir heilsárshús - Hálsasker 3. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Skv. aðalskipulagi er svæðið á skógræktar- og landgræðslusvæði/landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeignar, enda samrýmist hún skipulagsáætlun, sbr. 6.gr. jarðalaga nr. 81/2004. Nefndin beinir því til umsækjanda að verði um frekari uppbyggingu að ræða á svæðinu skuli vinna deiliskipulag. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Umsókn um byggingarheimild - Hlíðartún 7, bílskúr
Málsnúmer 202208044
Karl Heimir Einarsson sækir um byggingaheimild fyrir 60m² bílskúr á lóð Hlíðartún 7. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.Erindið var grenndarkynnt 6. september með athugasemdarfresti til 10. október 2022.Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að heimila framkvæmdir á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Hagaleira ÍB1, leiðrétting - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202209053
Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Leiðrétt er misræmi milli mældrar stærðar íbúabyggðarinnar ÍB1 Leirusvæði 1 og uppgefinnar stærðar í greinargerð. Auk þess sem heimilaður er aukinn þéttleiki byggðar á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hafi ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Málsnúmer 202201106
Tekin er fyrir breyting á deiliskipulagi Leira á Höfn og samhliða breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn. Breytingin var auglýst með athugasemdarfresti frá 17. maí til 28. júní 2022. Ein athugasemd barst sem snéri m.a. að áhyggjum vegna aukinnar umferðar, raski, skerðingu á birtu og útsýni og áhyggjum af leigu/gistingu í nýju húsi. Minjastofnun skilaði inn umsögnum dags. 11. júlí 2022. Í umsögn um deiliskipulagsbreytingu íbúðarsvæðis á Leirum kemur fram að engar þekktar fornminjar séu innan svæðisins sem breytingin nær yfir en rétt utan við hin nýju skipulagsmörk eru ummerki um minjar sem taka þarf tillit til við framkvæmdir.Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leira á Höfn og tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga á fundi sínum 8. ágúst 2022 en tekur það hér með fyrir aftur samhliða aðalskipulagsbreytingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leira á Höfn og tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að hún samþykki fyrirliggjandi drög umhverfis- og skipulagsstjóra að svörum við athugasemd.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.

11.
Deiliskipulag Skjólshólar
Málsnúmer 201709318
Deiliskipulagstillaga að Skjólshólum tekin fyrir. Deiliskipulagið nær yfir um 1 ha en fyrirhugað er að útbúa aðstöðu fyrir ferðafólk og koma upp allt að sjö litlum gistihúsum til útleigu.Deiliskipulagstillagan fór áður í auglýsingaferli árið 2017. Skipulagstillagan var ekki kláruð og er því hér með tekið fyrir á ný.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Deiliskipulag Hafnarnes
Málsnúmer 201903015
Deiliskipulagstillaga að Hafnarnesi tekin fyrir. Deiliskipulagið nær yfir 3.665 m² lóð í Hafnarnesi í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skipulagið tekur til uppbyggingar ferðarþjónustu, veitingareksturs, gistiaðstöðu, þvottahúss, verslun, minni gistihús, íbúðarhúsa, aðstöðuhús og starfsmannaaðstöðu.Deiliskipulagstillagan fór áður í auglýsingaferli árið 2020. Skipulagstillagan var ekki kláruð og er því hér með tekið fyrir á ný.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Breyting á deiliskipulagi fyrir lóðir J og K Útbæ
Málsnúmer 202204007
Góð framkvæmd kynnir hugmyndir að breytingum á deiliskipulagi á lóðum J og K í Útbæ.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og óskar eftir frekari útfærslu á hugmyndunum.
14.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202210041
Gunnlaugur B. Ólafsson hefur sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða fyrir léttri 16 m hengibrú milli kletta yfir Víðidalsá.Þetta opnar á mikilvægar hringleiđir í Stafafelli í Lóni. Annarsvegar úr byggđ um Hnappadal og hinsvegar umhverfis Kollumúla um Flár og Víðidal. Úthlutun styrkja er háð leyfum fyrir framkvæmdum. Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til framkvæmdarinnar og leyfi. Svæðið er innan friðlands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en fullnægjandi gögn hafa borist. Bent er á að auk heimildar frá forsætisráðuneyti þarf að liggja fyrir heimild frá Umhverfisstofnun.