Umhverfis- og skipulagsnefnd
46. fundur
14. nóvember 2022
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson
verkefnastjóri
Bartek Andresson Kass
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar
Framlögð til samþykktar uppfærð gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu og leggur til að við gjaldtöku vegna förgunar á dýraleifum verði lagt á gjald skv. búfjáreftirlitsskýrslu til að standa undir kostnaði við förgunina.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
2.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Drífa Árnadóttir frá Atla ráðgjöf fer yfir mat á tillögunni með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Þann 31.10.2022 stöðvaði umhverfis- og skipulagsstjóri framkvæmdir sem hafa farið fram á óskiptu landi Hofs vestan við Hvalvörðugilslæk, a grundvelli 1. mgr. 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða framkvæmdir sem hafa veruleg áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess töluvert, þ.e. framkvæmdir við aðkomuveg að svæðinu, bílaplan, staðsetning rotþróar og siturlagna, og innflutningur lausafjármuna tengda starfsemi fyrirtækis. Lagt fram til kynningar.
Umrædd framkvæmd er ekki í samræmi við aðalskipulag og ekki er til deiliskipulag, auk þess sem ekki hefur verð sótt um framkvæmdaleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því framkvæmdaraðila að fara að lögum og reglum og vinna skv. skipulagi sveitarfélagsins.
4.
Fyrirspurn - Vesturbraut 1, stækkun á þjónustustöð N1
Endurskoðið ósk frá N1 um stækkun á lóð þeirra að Vesturbraut 1
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir uppfærðum uppdrætti skv. eftirfarandi:
- lóðamörk við sleðabrekku verði færð til vesturs og þjónustubygging (rafmagn/loft/gas) sömuleiðis.
- við lóðamörk sé öryggi barna í sleðabrekku og við göngustíg tryggt t.d. með girðingu, mön eða gróðurbelti.
- kannað hvort mögulegt sé að snúa bílastæði til austurs- og vesturs og skapa þannig meira pláss fyrir sleðabrekku.
Lóðarhafi skal standa straum af kostnaði við færslu á göngustíg ef til þess kemur.
- lóðamörk við sleðabrekku verði færð til vesturs og þjónustubygging (rafmagn/loft/gas) sömuleiðis.
- við lóðamörk sé öryggi barna í sleðabrekku og við göngustíg tryggt t.d. með girðingu, mön eða gróðurbelti.
- kannað hvort mögulegt sé að snúa bílastæði til austurs- og vesturs og skapa þannig meira pláss fyrir sleðabrekku.
Lóðarhafi skal standa straum af kostnaði við færslu á göngustíg ef til þess kemur.
5.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Skinney-Þinganes hf. óskar eftir breytingu á gildandi skilmálum deiliskipulags Hafnarsvæði við Krossey fyrir reit á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús. Deiliskipulag gerir ráð fyrir 10 m mænishæð, en óskar er eftir að mænishæð verði færð í 17 metra.Umhverfis- og skipulagsnefnd bókaði á fundi sínum 19.09.2022 að fela starfsmanni að fá nánari útfærslu á staðsetningu og útliti fyrirhugaðrar byggingar og samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010. Við nánari vinnslu skipulagsbreytingarinnar varð ljóst að umfang hennar var ekki óveruleg. Er því tillaga að deiliskipulagsbreytingu lögð fyrir nefndina til ákvörðunar um málsmeðferð.
Málinu vísað til hafnarstjórnar. Nefndin óskar einnig umsagnar slökkviliðsstjóra.
6.
Hornafjarðarhöfn við Ósland - Breyting á deiliskipulagi
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Hornafjarðarhöfn, Ósland lögð fram. Megin markmið með breytingunni er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu. Bæjarstjórn samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu og sendi skipulagstillöguna í kynningu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Skipulagið var auglýst með athugasemdarfresti frá 30. september til 11. nóvember 2022.
Málinu vísað til hafnarstjórnar.
7.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Skipulagslýsing vegna vegna breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012 -2030 og nýs deiliskipulags var kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m frá 26. október til 8. nóvember 2022.Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Haust og Rarik.
Í skipulagslýsingu er gert ráð fyrir að á svæðinu verði gistirými fyrir allt að 200 gesti. Við nánari útfærslu er gert ráð fyrir færri herbergjum og því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin sé tilkynningarskyld til ákvörðunar um mat á umhverfisáhrifum, sbr. tl. 12.04 í 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í umsögn Skipulagsstofnunar kemur einnig fram að á hluta svæðisins er Starungsmýrarvist og votlendi sem hefur hátt verndargildi skv. vistgerðarkorti NÍ. Svæðið var framræst fyrir áratugum og hefur verið nýtt sem beitiland fyrir hross. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar því til framkvæmdaraðila að fá úttekt vistfræðings á svæðinu.
8.
Seljavellir 2 - Deiliskipulag
Skipulagslýsing vegna vegna breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012 -2030 og nýs deiliskipulags var kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m frá 26. október til 8. nóvember 2022. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Haust og Rarik.
Í skipulagslýsingu er gert ráð fyrir að á svæðinu verði gistirými fyrir allt að 200 gesti. Við nánari útfærslu er gert ráð fyrir færri herbergjum og því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin sé tilkynningarskyld til ákvörðunar um mat á umhverfisáhrifum, sbr. tl. 12.04 í 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Gera skal ráð fyrir spennistöð og fráveitumannvirkjum í deiliskipulagi skv ábendingum RARIK og HAUST.
9.
Framkvæmdaleyfi vegna efnisskipta og aðkomu Seljavellir II
Óskað eftir að málið sé tekið fyrir aftur í ljósi þess að athugasemdir við skipulagslýsingu eru óverulegar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem framkvæmdin er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd er óheimilt að veita framkvæmdaleyfi sem ekki er í samræmi við aðalskipulag eða deiliskipulag. Umsækjanda er bent á að endurnýja umsóknina þegar skipulagsferli er lokið.
10.
Landeignaskrá - Seljavellir 2 lóð, stofnun landeignar
Ásgeir Núpan Ágústsson og Valgerður Egilsdóttiróska eftir stofnun lóðar úr Seljavalla 2 lóð, landeignarnúmer L159514. Um er að ræða 2,8 ha verslunar og þjónustulóð. Deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi eru í ferli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppskiptingu lands, enda er hún í samræmi við þær skipulagsbreytingar sem eru í ferli. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Hringvegur, vinnubúðir Ístak
Ístak hf. sækir um byggingarheimild fyrir vinnubúðir vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót. Framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að að bæjarstjórn samþykki að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010, þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Fallið frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur óskað eftir þátttöku í verkefni Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í samstarfi viðByggðastofnun, Skipulagsstofnun og Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands.Um er að ræða aðgerð sem er hluti af núgildandi Byggðaáætlun 2022-2026 og snýr að því að móta heildstæða nálgun íslenskra sveitarfélaga að aðlögun að loftslagsbreytingum (aðgerð C.10.). Þegar kemur að loftslagsbreytingum hefur megináherslan hingað til verið lögð á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.Sveitarfélög koma til með að þurfa að taka aðlögun inn í alla ákvarðanatöku í framtíðinni, sérstaklega hvað varðar skipulagsmál, fjárfestingar og uppbyggingu, styrkingu innviða og félagslegra kerfa.Gert er ráð fyrir að 4-5 sveitarfélög verði þátttakendur í verkefninu. Lagt fram til kynningar.