Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

48. fundur
12. desember 2022 kl. 16:00 - 18:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Bartek Andresson Kass byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Málsnúmer 202209031
Skinney-Þinganes hf. óskar eftir breytingu á gildandi skilmálum deiliskipulags Hafnarsvæði við Krossey fyrir reit á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús. Deiliskipulag gerir ráð fyrir 10 m mænishæð, en óskar er eftir að mænishæð verði færð í 17 metra. Umhverfis- og skipulagsnefnd bókaði á fundi sínum þann 14. nóvember 2022 að vísa málinu til hafnarstjórnar og óska umsagnar slökkviliðsstjóra.Hafnarstjórn Hornafjarðar tók erindið fyrir á fundi 28. september og aftur 28. nóvember 2022.Umsögn slökkviliðsstjóra lá fyrir 29. nóvember 2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar í ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lögð er fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó.
Starfsmanni falið að láta vinna tillögur áfram og undirbúa til auglýsingar.
3.
Hornafjarðarhöfn við Ósland - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202104021
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Hornafjarðarhöfn, Ósland lögð fram. Megin markmið með breytingunni er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu. Bæjarstjórn samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu og sendi skipulagstillöguna í kynningu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið var auglýst með athugasemdarfresti frá 30. september til 11. nóvember 2022.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, MAST, Vegagerðinni og Náttúrustofa Suðausturlands ses. Ein athugasemd barst.Umhverfis- og skipulagsnefnd bókaði á fundi sínum þann 14. nóvember 2022 að vísa málinu til hafnarstjórnar sem tók málið fyrir 28.11.2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hornafjarðarhafnar við Ósland skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að hún samþykki fyrirliggjandi drög nefndarinnar að svörum við athugasemdum.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Málsnúmer 202209021
Drög að deiliskipulagi Kyljuholts á Mýrum lagt fram ásamt minnispunktum til umfjöllunar og ákvörðunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur umhverfis- og skipulagsstjóra að vinna málið áfram með umsækjanda.
5.
Skipulag íbúðarsvæðis
Málsnúmer 202003026
Skipulagsvinna á ÍB 5 er í undirbúningi. Nefndin þarf að leggja línurnar.
Umræður á fundinum snerust um þéttleika byggðar og íbúðagerðir, tengingar við náttúru og vistvæna ferðamáta. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
6.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202204007
Lögð eru fram frekari útfærsla á hugmyndum á lóðum J og K við Ósland.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
7.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Fagurhólsmýri
Málsnúmer 202212056
Landeigendur á Fagurhólsmýri hyggja á uppbyggingu á jörðinni. Lögð fram fyrirspurn landeigenda um skipulagsferli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur æskilegt að unnið sé deiliskipulag fyrir torfuna alla m.v. fyrirliggjandi uppbyggingaráform. Hins vegar hefur sveitarfélagið heimilað minniháttar uppbyggingu á landbúnaðarjörðum án deiliskipulagsgerðar.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Vesturbraut 6, raðhús
Málsnúmer 202212052
Mikael ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir gistiheimili á lóð Vesturbraut 6. Um er að ræða um 460 fm steinsteypt eina hæða hús með 8 íbúðum. Mænishæð er allt að 4,29m frá gólfplötu og þakhalli 14°. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en um er að ræða verslunar- og þjónustu svæði VÞ3 samkvæmt aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir gistihús, eldsneytissölu og tilheyrandi þjónustu, verslun. Um er að ræða 2,6ha svæði fyrir allt að 40 gistirými.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fyrirhuguð byggingaráform verði grenndarkynnt í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
9.
Stöðuleyfisumsókn Skaftafell - endurnýjun stöðuleyfis fyrir söluaðstöðu
Málsnúmer 202211009
Straumhvarf ehf. sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir torgsöluhús í Skaftafelli. Vatnajökulsþjóðgarður samþykkti að veita leyfi landeigenda til endurnýjunar. Stöðuleyfi eru veitt til allt að 12 mánaða og eru ekki gefin út aftur fyrir sömu lausafjármuni á sömu landeign nema með samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar. Umsóknir verða þá metnar m.t.t.: landnotkunar, útsýnis, skuggavarps, innsýnar, öryggis og hávaða.
Gunnlaugur og Helga véku af fundi undir þessum lið. Umhverfis - og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við endurnýjun stöðuleyfis.
10.
Verkefni - Samtaka um hringrásarhagkerfi
Málsnúmer 202203003
Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til fjarfundar sveitarfélaga undir yfirskriftinni Aðventufundur sveitarfélaga um hringrásarhagkerfi föstudaginn 16. desember kl. 10:00 til 12:00. Tilefnið eru breytingar á meðhöndlun úrgangs og kröfum til úrgangsstjórnunar sveitarfélaga sem innleiddar voru í íslenskt regluverk í júní 2021 og koma til framkvæmda um næstu áramót. Á fundinum verða umræður um stöðu innleiðingar nýju laganna og þær áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir.https://www.samband.is/vidburdir/samtaka-um-hringrasarhagkerfi-opinn-fundur/
Lagt fram til kynningar.
11.
Umferðaröryggisáætlun - ábendingar frá íbúum
Málsnúmer 202108096
Framlagt minnisblað um ábendingar frá íbúum í tengslum við umferðaröryggi í sveitarfélaginu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar ábendingarnar og felur starfsmönnum að skoða úrbætur. Málinu er vísað til vinnu við endurskoðun aðgerðaráætlunar umferðaröryggisáætlunar. Nefndin leggur áherslu á að bæta lýsingu við fjölfarnar gangbrautir s.s. við gatnamót Víkurbrautar og Hafnarbrautar og að sett verði upp gangbraut við gatnamót Víkurbrautar og Bugðuleiru.
12.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2022
Málsnúmer 202212047
Framlagt minnisblað um endurskoðun umferðaröryggisáætlunar sveitarfélagsins og aðgerðarlista hennar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að koma á samráðshóp vegna endurskoðunar umferðaröryggisáætlunar og aðgerðarlista hennar og vinna málið áfram.
13.
Byggingarleyfisumsókn - Fiskhóll 11, breyting inni, fjölgun íbúða
Málsnúmer 202211112
Sveinbjörn Imsland f.h. Imsland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingu á húsi að Fiskhól 11. Um er að ræða breytingar að innan. Fyrirhuguð er að fjölga íbúðum í húsinu úr 3 í 4. Lóðin er á íbúðarsvæði ÍB6 sem gerir ráð fyrir 10-15 íbúðum á svæði. Með breytingu sem hér um ræðir fer fjöldi íbúða á svæðinu úr 11 í 12. Í gildandi deiliskipulagi er ekki skilgreindur hámarksfjöldi íbúða í húsinu en þar kemur fram að lóðir við Fiskhól séu fullbyggðar.
Helga vék af fundi undir þessum lið. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslagslaga.