Umhverfis- og skipulagsnefnd
49. fundur
9. janúar 2023
kl.
16:00
-
17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson
verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Sorphirðudagatal 2023
Framlögð drög að sorphirðudagatali fyrir árið 2023.
Sorphirðudagatal fyrir árið 2023 hefur verið auglýst. Hirða í þéttbýli fer fram á þriggja vikna fresti en á fjögurra til fimm vikna fresti í dreifbýli. Ræðst það einna helst af sérsöfnun matarleifa í þéttbýli og minni ílátsstærðar undir endurvinnanlegan úrgang.
Viðbúið er að gera þurfi breytingar á sorphirðudagatalinu með innleiðingu fjórða flokksins við heimili í þéttbýli og þriðja flokksins við heimili í dreifbýli.
Viðbúið er að gera þurfi breytingar á sorphirðudagatalinu með innleiðingu fjórða flokksins við heimili í þéttbýli og þriðja flokksins við heimili í dreifbýli.
2.
Fyrirhugað sorpútboð 2022
Framlagt minnisblað um tilboð í gerð útboðsgagna fyrir úrgangskerfi sveitarfélagsins.
Starfsmönnum falið að ganga til viðræðna við bjóðendur og mynda rýnihóp í tengslum við gerð útboðsgagna. Málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Framlögð drög að breytingum á gjaldskrá fyrir móttökustöð sorps á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Málinu er frestað.
4.
Könnun um sorphirðu í þéttbýli
Framlagt til kynningar minnisblað um niðurstöðu könnunar um sorphirðu í þéttbýli sveitarfélagsins sem fram fór í desember.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Vegna dræmrar þátttöku íbúa í kosningunni felur nefndin starfsmönnum að endurtaka könnunina og vekja athygli á henni með auglýsingum í Eystrahorni, á heimasíðu og á samfélagsmiðlum.
5.
Umsókn um byggingarheimild - Mánabraut 2, stækkun, breyting inni og úti
Jakob Örn Guðlaugsson og Sædís Ösp Valdemarsdóttir sækja um byggingarheimild fyrir breytingar á húsi að Mánabraut 2 samkvæmt framlögðum teikningum. Um er að ræða stækkun á bílskúr, nýja tengibyggingu, stækkun á húsi, breytingar á þaki, breytingar á gluggum og hurðum, breytingar á innra skipulagi og nýja klæðningu bæði á þaki og veggjum. Lóð er inn á íbúðarsvæði ÍB9 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins, en ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fyrirhuguð byggingaráform verði grenndarkynnt í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
6.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Umhverfis- og skipulagsnefnd var falið að ganga formlega frá lóðarmörkum lóðar Hagatún 16.
Stefán Birgir Bjarnason vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fór yfir tillögu af lóðarblaði af Hagatúni 16. Starfsmönnum falið að kynna afmörkun lóðarinnar fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fór yfir tillögu af lóðarblaði af Hagatúni 16. Starfsmönnum falið að kynna afmörkun lóðarinnar fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða.
7.
Byggingamál - Dalbraut 2a til 2c, fyrirhugaðar framkvæmdir
Lóðarhafi lóða Dalbraut 2A til 2C hefur lagt fram frumhönnun af fyrirhuguðum framkvæmdum á lóðunum. Fyrirhugað er að reisa tveggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum á hverri lóð. Umrætt svæði er á íbúðarsvæði ÍB9 skv. aðalskipulagi en deiliskipulag liggur ekki fyrir. Fyrirhugaðar framkvæmdir voru grenndarkynntar með útsendu bréfi dags. 29. nóvember með athugasemdarfresti til 31. desember 2022. 4 athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrirhuguð uppbygging muni hafa óveruleg áhrif á íbúa og sé innan þeirra marka sem vænta má í þéttbýli. Nefndin samþykkir byggingaráformin án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að svara athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Deiliskipulag Háhóls - Dilksness var auglýst frá 3. nóvember með athugasemdarfresti til 15. desember 2022. Engin athugasemd barst en umsagnir bárust frá HAUST, Náttúrufræðistofnun Íslands og MÍ.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulag Háhóls - Dilksness skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
9.
Deiliskipulag Hafnarnes
Deiliskipulag Hafnarness var auglýst frá 3. nóvember með athugasemdarfresti til 15. desember 2022. Engin athugasemd barst en umsagnir bárust frá HAUST og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulag Hafnarness skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.
Deiliskipulag Skjólshólar
Deiliskipulag Skjólshóla var auglýst frá 3. nóvember með athugasemdarfresti til 15. desember 2022. Engin athugasemd barst en umsagnir bárust frá HAUST og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulag Skjólshóla skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - verslun og þjónusta við Hafnarveg
Batteríið Arkitektar f.h. Suðurhúsa ehf óska eftir heimild Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir úthlutun lóðar undir verslun og þjónustu auk heimildar til að vinna deiliskipulag fyrir lóðina. Lóðin sem um ræðir er við Hafnarveg á móts við gatnamót Dalbrautar. Stærð lóðarinnar er u.þ.b. 14.500m². Hugmyndin er að skipuleggja byggingar fyrir stórmarkað og aðra verslun og þjónustu sem þrifist getur í samneyti við slíkan markað. Um er að ræða landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjendur.
12.
Útbær Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Deiliskipulag fyrir um 13.000 m2 hótel í Útbæ var samþykkt í bæjarstjórn þann 25. október 2022. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við skipulagið við yfirferð og eru því lagfærð gögn lögð fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki á ný tillögu að breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Ákvörðun um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030
Matthildur Elmarsdóttir frá Alta kemur inn á fundinn og fer yfir verkefnisnálgun og kynnir drög að samantekt vegna ákvörðunar um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar og drög að skipulagslýsingu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.