Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

50. fundur
23. janúar 2023 kl. 16:00 - 18:13
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Ákvörðun um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 202209045
Lögð fram tillaga að samantekt vegna ákvörðunar um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samantektin er unnin á grundvelli vinnufunda bæjarstjórnar og umhverfis- og skipulagsnefndar. Matthildur Elmarsdóttir og Árni Geirsson frá Alta koma inn á fundinn. Undir þessum lið sátu einnig fulltrúar úr bæjarstjórn og varamenn í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Gildandi aðalskipulag var staðfest árið 2014 og á því hafa verið gerðar hátt í 50 breytingar. Þær breytingar eru vitni um ákveðna þróun sem bregðast þarf við. Á þeim 9 árum sem liðin eru frá samþykkt skipulagsins hafa forsendur breyst með auknum fjölda ferðamanna, fjölgun íbúa og breyttri samsetningu. Þörf er á lóðum fyrir íbúðarhúsnæði og gera þarf ráð fyrir aukinni umferð. Huga þarf að stækkun þéttbýlis á Höfn og hvernig hægt sé að mæta íbúafjölgun og eftirspurn eftir húsnæði í dreifbýli svo eitthvað sé nefnt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins Hornafjarðar á kjörtímabilinu í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Málsnúmer 201804015
Framlögð til samþykktar gjaldskrá fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í samræmi við meðfylgjandi minnisblað um gjaldskránna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í samræmi við minnisblað um gjaldskrána. Starfsmanni falið að lagfæra gjaldskránna í samræmi við athugasemdir á fundinum. Vísað til bæjarráðs.
3.
Borgað þegar hent er - Innleiðing við heimili
Málsnúmer 202301015
Framlagt til upplýsingar minnisblað um erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um innleiðingu "Borgað þegar hent er" við heimili.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.
4.
Sérstök söfnun - Greiðslur til sveitarfélaga - Framlengd framleiðendaábyrgð
Málsnúmer 202301065
Framlagt til upplýsingar minnisblað um greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar á pappa-, pappírs- og plastumbúðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að sveitarfélög fái til sín greiðslur fyrir söfnun á endurvinnsluefnum og bindur vonir við að fyrirkomulagið gefi góða raun.
5.
Erindi frá Hirðingjunum
Málsnúmer 202301062
Framlagt erindi frá Hirðingjunum um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi nytjamarkaðarins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mikilvægt að styðja við hringrásarhagkerfið og þá góðu starfsemi sem Hirðingjarnir standa fyrir. Nefndin felur starfmönnum að vinna málið áfram. Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Umsögn - Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss
Málsnúmer 202212133
Framlögð drög að sameiginlegri samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST. Ekki er um efnislegar breytingar að ræða heldur er verið að bregðast við sameiningu sveitarfélaga sem þurfa að setja sér nýjar samþykktir svo fljótt sem við verður komið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við samþykktina. Málinu vísað til bæjarráðs.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Hálsasker 3, íbúðarhús
Málsnúmer 202301013
Laurent Jégu sækir um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Hálsaskeri 3 í Svínafelli. Um er að ræða 84 fm íbúðarhús á einni hæð. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði. Landeigendur hafa þegar sent fyrirspurn til nefndarinnar og þann 28.11.2022 samþykkti nefndin að heimild verði að nýta ákvæði 44. gr. skipulagslaga vegna framkvæmda á lóð Hálsasker 3 en verði um frekari uppbyggingu að ræða á svæðinu skuli vinna deiliskipulag.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Vesturbraut 6, raðhús
Málsnúmer 202212052
Mikael ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir gistiheimili á lóð Vesturbraut 6. Um er að ræða um 460 fm steinsteypt eina hæða hús með 8 íbúðum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum þann 12.12.2022 grenndarkynna fyrirhuguð byggingaráform á lóð Vesturbraut 6 í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Athugasemdarfrestur var til 13. janúar 2023.Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að veita byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar, sbr. 44.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Dalbraut, stækkun íbúðarsvæðis ÍB9 - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202301060
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags þar sem íbúðarsvæði ÍB9 norðan Dalbrautar er stækkað til norðurs um 10 m eða sem nemur 0,2 ha. Íþróttasvæði minnkar að sama skapi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta lagfæra gögnin. Nefndin samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stórt svæði. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lögð er fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó. Tillagan hefur verið unnin áfram í samvinnu við umhverfis- og skipulagsstjóra frá fundi 12. desember 2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
11.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - breytt fyrirkomulag lóðar Borgartún 16
Málsnúmer 202301064
Fjallsárlón ehf. óskar eftir afstöðu/álits Umhverfis- og skipulagsnefndar Hornafjarðar varðandi staðsetningu þriggja nýrra smáhýsa innan byggingarreits lóðar Borgartún 16 samkvæmt framlögðum teikningum. Smáhýsin að Borgartúni 16 yrðu nýtt sem íbúðarhúsnæði. Samkvæmt deiliskipulagi sem gildir fyrir lóðina er gert ráð fyrir allt að 250 m² íbúðarhús ásamt allt að 50 m² bílskúr, en á lóðinni er nú þegar 154,8 m² íbúðarhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrirhugað áform víki frá útliti og formi viðkomandi svæðis. Nefndin leggur til að umsækjandi skoði aðra kosti sem falla betur að byggðamynstri í deiliskipulagi. Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda.
12.
Landeignaskrá - Reyðará, skipting landeigna
Málsnúmer 202301066
Reyðarártindur ehf óskar eftir uppskiptingu jarðarinnar Reyðará. Fyrirhuguð er að stofna tvær lóðir samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum. Um er að ræða landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóða, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.