Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

53. fundur
6. mars 2023 kl. 16:00 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Þróunarsvæði vestan við Nýheima
Málsnúmer 202303003
Bergdís Bjarnadóttir frá Nordic og Berglind Hallgrímsdóttir frá Eflu komu inn á fundinn og kynntu greiningu sína á svæðinu og þeim möguleikum sem eru fyrir hendi.
Fyrstu grunndrög að mögulegri uppbyggingu á svæðinu vestan við Nýheima kynnt og rædd í nefndinni. Farið var yfir mögulega aðkomu gangandi og akandi umferðar um svæðið. Starfsmanni falið að vinna áfram að tillögu í samræmi við umræður á fundinum.
2.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Málsnúmer 202211036
Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin þátttaka í aðgerð C.10 í byggðaáætlun - Áhrif loftlagsbreytinga og sveitarfélög.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar boði um þátttöku í verkefninu. Fyrir hönd Umhverfis- og skipulagsnefndar munu Helga Árnadóttir og Ásgerður Gylfadóttir fylgja verkefninu eftir.
Málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Náma við Breiðárlón á Breiðamerkursandi - framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 202303019
Erindi dagsett 3. mars 2023 þar sem Sveinn Sveinson f.h. Vegagerðarinnar sækir um framkvæmdaleyfi í námu við Breiðarlón á Breiðamerkursandi.
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið.
Beiðni Vegagerðarinnar um efnistöku er í samræmi við fyrirspurn Vegagerðarinnar um matsskyldu, álit Skipulagsstofnunar og Aðalskipulag sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Umsagnir vegna efnistökunar liggja fyrir frá Forsætisráðuneytinu, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarði.
Með tilvísun í töflu 20.1 í greinargerð aðalskipulags telur umhverfis- og skipulagsnefnd að ekki sé þörf á að deililskipuleggja námuna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir 78.000 m3 af grjóti til framkvæmda á Breiðamerkursandi á næstu 10 árum með þeim skilmálum að fylgt sé þeim mótvægisaðgerðum sem gert er grein fyrir í fyrirspurn um matsskyldu og að gengið sé frá námunni eftir hvert skipti sem farið er í námuna. Settur er fyrirvari um afstöðu Minjastofnunar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Leyfi fyrir salernisgám við Víkurbraut 3
Málsnúmer 202302083
Fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar er óskað eftir að svæði á lóð Víkurbraut 3 merkt á meðfylgjandi uppdrætti verði skilgreint á lóðauppdrætti sem skipulagt svæði fyrir WC-gám. Ljóst er að salernisaðstaða er nauðsynlegt á umræddu íþróttasvæði og að fyrirhuguð staðsetning hentar henni betur.
Þar sem fyrirhuguð staðsetning gámsins er við lóðarmörk lóðar Víkurbraut 7, skal kynna erindi lóðarhöfum þessarar lóðar. Starfsmönnum falið að breyta 5. gr. Reglna um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði í samræmi við umræður á fundi.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5, nýtt iðnaðarhús
Málsnúmer 202111055
Breytingar á áður innsendum teikningum vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar á lóð Álaleira 5 lagðar fram. Breytingar fela í sér eftirfarandi: lenging á húsi um u.þ.b. 3m, húsinu verður skipt upp í þrjú bil í stað tveggja áður, allt húsið verður á einni hæð, byggingarefni hafa breyst, gluggar og hurðir hafa verið færðar til á útliti hússins, húsið hefur hækkað um 0,74 m, húsið hefur snúist um 180°, t.a.m. snúa innkeyrsluhurðir og bílastæði nú í austur að Álaleiru, húsið hefur verið fært innan lóðarinnar og nær nú lengra út fyrir byggingarreit. Fyrri útgáfa á teikningum var grenndarkynnt árið 2021, engar athugasemdir bárust. Bæjarstjórn samþykkti á 287. fundi að heimilt verði að veita byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar á grundelli 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna nýja útgáfu af teikningum, þar sem þær fela í sér umtalsverðar breytingar á stærð og útlit hússins, sbr. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga, sbr. einnig 4.mgr. 44.gr. sömu laga þar sem byggingarleyfi hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Dalbraut, stækkun íbúðarsvæðis ÍB9 - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202301060
Aðalskipulagsbreyting vegna stækkunar ÍB9 á Höfn var send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og staðfestingar 13. febrúar 2023. Í tölvupósti frá stofnuninni þann 23. febrúar kom fram að Skipulagsstofnun gæti ekki tekið afstöðu til málsmeðferðar og óskaði eftir að sveitarstórn færði fram rök fyrir því að breytingin teljist óveruleg með hliðsjón af því að athugasemd hefur borist vegna málsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd undrast afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Fyrirhuguð breyting gengur um 10 m. inn á ónotað íþróttasvæði. Skv. aðalskipulagi hefur svæðið verið skilgreint sem íbúðabyggð og lóðir verið auglýsta til úthlutunar árum saman. Vísað er í rökstuðning nefndarinnar í gátlista sem fylgir breytingunni. Nefndin bendir einnig á að skortur er á íbúðum innan þéttbýlismarka og því mikilvægt að málið fái framgang.
7.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202209054
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. desember 2022 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í landi Seljavalla 2 í Nesjahverfi og samhliða að auglýsa nýtt deiliskipulag á svæðinu í samræmi við 1. og 2. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillögurnar voru auglýstar frá 19. janúar með athugasemdarfresti til 2. mars 2023.Ein athugasemd barst.Umsagnir bárust sem fjallað er um undir deiliskipulagi svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv.32. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Seljavellir 2 - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205087
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. desember 2022 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í landi Seljavalla 2 í Nesjahverfi og samhliða að auglýsa nýtt deiliskipulag á svæðinu í samræmi við 1. og 2. mgr. 41. gr. sömu laga.Tillögurnar voru auglýstar frá 19. janúar með athugasemdarfresti til 2. mars 2023. Ein athugasemd barst. Umsagnir bárust frá RARIK, Haust og MÍ.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Seljavalla 2 skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim lagfæringum sem ræddar voru á fundinum. Jafnframt leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að hún samþykki framlögð svör við athugasemdum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.