Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

56. fundur
17. apríl 2023 kl. 16:00 - 16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri umhverfismála
Dagskrá
1.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar ákvað á fundi sínum þann 8. febrúar 2023 að hefja endurskoðun aðalskipulags. Lögð er fram verkefnislýsing sem er fyrsti áfangi þeirrar vinnu. Í lýsingunni er farið yfir viðfangsefni aðalskipulags og tilgreint þau helstu sem kalla á endurskoðun og frekari stefnumótun og skipulagsákvæði.Lýsingin er byggð á mati á þróun sem orðið hefur frá því gildandi aðalskipulag var staðfest árið 2014. Hún byggir einnig á frumgreiningu á stefnu og áætlunum á heims-, lands- og svæðisvísu sem eru tilkomnar eftir gildistöku aðalskipulagsins, auk nýrra stefnuskjala sveitarfélagsinssem kalla á samræmingu og nánari útfærslu m.t.t. skipulags.Í verkefnislýsingunni er farið yfir málaflokka aðalskipulags og tilgreind þau viðfangsefni sem kalla á að gildandi stefna og skipulagsákvæði aðalskipulags Hornafjarðar séu yfirfarin m.t.t. stöðu og þróunar eða nýrra áætlana og stefnuskjala á ríkis- og svæðisvísu og/eða hjá sveitarfélaginu sjálfu.Viðfangsefnin eru dregin fram með spurningum sem endurskoðun aðalskipulagsins mun fást við á sviðum vistkerfa og auðlinda, byggðar og samfélags og atvinnulífs og menningarlífs.Umhverfismat við endurskoðun aðalskipulagsins mun beinast að helstu breytingum á gildandi aðalskipulagsstefnu og landnotkunarákvæðum. Einkum mun matið beinast að þeim breytingum sem teljast líklegar til að hafa veruleg umhverfisáhrif.Tilgangur verkefnislýsingar er að tryggja að almenningur, hagsmunaaðilar og umsagnaraðilar komi að skipulagsferlinu á fyrstu stigum og stuðla þannig að gagnsæi í ferlinu og bæta upplýsingaöflun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Starfsmanni er falið að leita umsagnar hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur íbúa og hagsmunaaðila til þátttöku í skipulagsferlinu, kynna sér verkefnalýsinguna og koma með athugasemdir/ábendingar ef þurfa þykir.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Tekið er fyrir deiliskipulag miðsvæðis Hafnar. Tillaga skipulagsins var auglýst með athugasemdarfresti frá 13. apríl til 5. júní 2022. Ein athugasemd barst frá Kaffihorninu. Umsagnir bárust frá Minjastofnun og Vegagerðinni dags. 12. júlí 2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að lagfæringar verði gerðar á byggingarreit undir fyrirhugað íþróttahús. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
3.
Deiliskipulag Hnappavellir1 - Hjáleiga
Málsnúmer 202304032
Suðureignir ehf leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hjáleigu, að Hnappavöllum í Öræfum. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland
Lagt fram til kynningar. Starfsmanni falið að ræða við málsaðila.
4.
Ósk um umsögn við stofnun lögbýlis
Málsnúmer 202303128
Óskað er umsagnar sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis að Hellisholti á Mýrum í samræmi við 17. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir að fyrirætlanir um stofnun lögbýlis sé í samræmi við staðfest skipulag og að ekki sé raskað búrekstraraðstöðu nálægra jarða. Lagt er til að bæjarstjórn gefi jákvæða umsögn um stofnun lögbýlisins.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.