Umhverfis- og skipulagsnefnd
64. fundur
11. september 2023
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Lögð eru fram drög að skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu vegna nýs verslunar- og þjónustusvæði á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.
Hjáleiga í Öræfum - Breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu aðalskipulags þar sem áréttað og skýrt betur þær heimildir til uppbyggingar á landbúnaðarlandi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan er til að árétta þær heimildir sem eru til staðar í gildandi aðalskipulagi og því einungis um skýrari skilmála að ræða en ekki efnislega breytingu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Deiliskipulag Hnappavellir 1 - Hjáleiga
Suðureignir ehf leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hjáleigu, að Hnappavöllum í Öræfum. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Fyrirhugað er að gera breytingar á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Krossey á Höfn og var skipulagslýsing kynnt frá 8. til 29. ágúst.Engar umsagnir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta vinna nýtt deiliskipulag byggt á lýsingunni. Eldra deiliskipulag á svæðinu mun falla úr gildi við gildistöku þess nýja.
5.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Lögð hafa verið fram gögn sem eru undirskriftir landeigenda og samningur um afnot.
Fyrir liggur heimild allra landeigenda til Rhýólít ehf um verslunar og þjónustustarfsemi á svæðinu við Hvalvörðugilslæk í landi Hofs. Óskað hefur verið eftir breytingu á aðalskipulagi í samræmi við það og unnið er að gerð deiliskipulags. Nefndin telur mikilvægt að skipulagsvinna vinnist samkvæmt áætlun. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að á meðan á skipulagsvinnu stendur eru allar framkvæmdir á svæðinu óheimilar með öllu. Komi til þess að framkvæmt verði á svæðinu verður farið fram á að hin ólöglega framkvæmd á óskiptu landi Hofs vestan við Hvalvörðugilslæk verði fjarlægð, jarðrask afmáð og starfsemi hætt.
6.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Lögð er fram tillaga að skipulagslýsingu vegna breytingar aðalskipulags og nýs deiliskipulags við Hvalvörðugilslæk í Öræfum. Einnig eru lögð fram drög að deiliskipulagi svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu í samræmi við 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga.
7.
Lóð fyrir mótorcrossbraut, afmörkun
Óskað hefur verið eftir stækkun á lóð mótorcrossklúbbsins í samræmi við uppdrátt sem lagður var fram. Stækkunin nær til fjögurra svæða sem alls eru um 2 ha.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.