Umhverfis- og skipulagsnefnd
65. fundur
25. september 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
2. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Nýlega var hafist handa við að uppfæra jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og leitar velferðarnefnd nú eftir umsögn og athugasemdum frá öðrum fastanefndum.
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti drög að uppfærðri jafnréttisáætlun. Nefndin þakkar fyrir kynninguna og gerir ekki athugasemdir við drögin.
2.
Hagatún 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi,
Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Lárus Páll Pálsson sækir um að byggja einnar hæðar parhús á lóð Hagatúns 16 samkvæmt framlögðum teikningum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna fyrirliggjandi teikningar í samræmi við 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
3.
Kynningarefni vegna sorpflokkunar
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að uppfæra upplýsingar á heimasíðu og setja kynningarefni í Eystrahorn. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt nýjum lögum er það skylda að flokka úrgang frá heimilum og fyrirtækjum og hvetur því íbúa til að kynna sér vel hvernig flokkun fer fram í sveitarfélaginu.
4.
Umhverfisviðurkenning 2023
Auglýst hefur verð eftir tilnenfningum vegna umhverfisviðurkenninga 2023 og var frestur til að skila inn tilnefningum til 24. september 2023. Engin tilnefning barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að auglýsa eftir tilnefningum einstaklinga og fyrirtækja/ stofnana sem hafa unnið ötullega að umhverfis- og loftslagsmálum í sveitarfélaginu. Horft verði til breytinga sem viðkomandi hafi gert á sinni starfsemi eða heimilishaldi í þeim tilgangi að draga úr áhrifum á umhverfi og loftslag.
5.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Vinna við endurskoðun aðalskipulags er í fullum gangi. Íbúafundur verður haldinn um þróun þéttbýlis á Höfn þann 11. október n.k. kl 17.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur íbúa til að nota tækifærið til að hafa áhrif á framtíðarþróun Hafnar og vonast eftir góðri mætingu.
6.
Drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla
Drög að hvítbók um skipulagsmál hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er lögð fram endurskoðuð landsskipulagsstefna til fimmtán ára ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 31. október nk. Stefnudrögin verða einnig kynnt og rædd á Skipulagsdeginum sem haldinn verður 19. október.sjá: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3539
Lagt fram til kynningar.
7.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Deiliskipulag Kyljuholts var auglýst frá 4. maí til 15. júní 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið tekur yfir 4 ha svæði innan jarðar Kyljuholts. Afmarkaðar eru raðhúsalóðir fyrir nýbyggingar og afmörkuð lóð fyrir núverandi íbúðarhús á svæðinu. Skipulagið var sent til Skipulagsstofnunar til yfirferðar en í svari dagsett 28. júlí kemur fram að Skipulagsstofnun geti ekki tekið afstöðu til efnis deiliskipulagsins þar se ekki hafði verið brugðist við umsögn Minjastofnunar Íslands. Ný umsögn Minjastofnunar liggur nú fyrir.
Þar sem ný umsögn Minjastofnunar Íslands hefur engin efnisleg áhrif á þegar samþykkt skipulagsgögn felur umhverfis- og skipulagsnefnd starfsmanni að upplýsa Skipulagsstofnun um það og óska eftir heimild til að auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
8.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Lögð er fram skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar og ný deiliskipulags við Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Erindi dagsett 11. september 2023 þar sem Össur Imsland óskar eftir breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól frá árinu 2017. Sótt er um að fjölga íbúðum í Fiskhól 11 úr 4 í 6 og byggja við núverandi hús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að settar séu upp teikningar með samanburði á ásýnd fyrir og eftir breytingar og ásýnd frá Hafnarbraut, Víkurbraut og Hagaleiru. Einnig skal leggja fram samþykkt meðeiganda um fyrirhugaðar breytingar.
10.
Seljavellir 2E - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir jarðvegsskipti
Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Reynir Ásgeirsson f.h. Gistihússins Seljavalla, sækir um framkvæmdarleyfi til að jarðvegsskipta undir tveimur húsum í landi Seljavalla 2E.
Í umsókn kemur ekki fram hvar innan byggingarreits jarðvegsskiptin fari fram en vakin er athygli á að innan hans eru fornminjar sem ekki er heimilt að raska nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Heimilt er, skv. umsögn Minjastofnunar við gildandi deiliskipulag, að lagt sé púkk yfir skráðar fornleifar innan skipulagssvæðisins með því skilyrði að tekið sé fullt tillit til upphlaðins vegar við þær framkvæmdir og annarra framkvæmda innan svæðisins, s.s. lagna- eða veituframkvæmdum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar jarðvegsskipti fyrir tvö hús í samræmi við gildandi deiliskipulag Seljavalla 2 að uppfylltu skilyrði Minjastofnunar Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar jarðvegsskipti fyrir tvö hús í samræmi við gildandi deiliskipulag Seljavalla 2 að uppfylltu skilyrði Minjastofnunar Íslands.