Umhverfis- og skipulagsnefnd
66. fundur
9. október 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Jóhanna Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingarheimild - Reynivellir, starfsmannabúðir
Suðurhús ehf. sækir um byggingarheimild fyrir starfsmannabúðir á einni hæð úr verksmiðjuframleiddum húseiningum frá Ela Containers. Um er að ræða 30 fullinnrétuð herbergi ásamt sameiginlegum rýmum samkvæmt framlögðum teikningum. Búðirnar eru settar upp í tengslum við byggingu hótels Reynivalla en þær framkvæmdir munu standa yfir í allt að 3 ár. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi heimild án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. laganna. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Þórisdalur, fjarskiptamastur
Sótt er um heimild til þess að reisa 21,3 metra mastur fyrir farsímaþjónustu til að sinna nærumhverfinu í landi Þórisdals skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en skv. aðalskipulagi er svæði á landbunarðasvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Hraðhleðslustöðvar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Fyrirspurn um uppsetningu hraðhleðslustöðva fyrir tvær 150 kw stöðvar á hafnarsvæðinu.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda um mögulegar staðsetningar hleðslustöðvar.
4.
Stafafell 20A - Breyting á deiliskipulagi
Erindi dagsett 27. september 2023 þar sem Gunnlaugur B. Ólafsson sækir um f.h. Megin ehf. breytingu á lóðamörkum Stafafells 20A. Á svæðinu er í gildi deiliskipulag Stafafellsfjalla í Lóni frá 2014.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðamörkin verði lagfærð í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjenda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Landeignaskrá - Stafafellsfjöll 37 - breyting á lóðamörkum
Óskað er eftir breytingum á lóðamörkum lóðar Stafafellsfjöll 37 án breytinga á deiliskipulagi. Samningur milli landeigenda vegna stækkunar liggur fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðamörkum verði breytt án breytingar á deiliskipulagi. Breytt lóðamörk verði grenndarkynnt fyrir aðliggjandi lóðarhöfum skv. 44. gr. skipulagslaga.
6.
Landeignaskrá Skaftafell 4A - stofnun landeigna úr landi Skaftafell 4
Árni Benediktsson eigandi Skaftafells 4 óskar eftir stofnun nýrrar lóðar úr jörðinni. Fyrirhuguð er að stofna viðskipta- og þjónustulóð í samræmi við aðalskipulag svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Skaftafell III og IV - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 26. september 2023 þar sem Þingvangur ehf. óskar eftir afstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar á breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 og vinnslu deiliskipulags. Skipulagsáætlanirnar myndu taka til lóða í Skaftafelli III og IV verði áformað að byggja 35 stakstæð frístundahús í landi Skaftafells IV.
Umhverfis- og skipulagsnefnd setur sig ekki upp á móti framlögðum áformum en bendir jafnframt á að tillaga þar að lútandi þarf að fara í gegnum skipulagsferli við breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Skipulagslýsing vegna breytingar Aðalskipulags Hornafjarðar var auglýst frá 18. september til 2. október 2023. Um er að ræða afmörkun nýs verslunar- og þjónustusvæði á Höfn þar sem koma megi fyrir rýmisfrekri verslunar- og þjónustustarfsemi, auk ný deiliskipulags fyrir svæðið. 4 umsagnir bárust.Ath Sjá umsögn MÍ
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum í vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar og deiliskipulags.
9.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Skipulagslýsing vegna breytingar Aðalskipulags Hornafjarðar þar sem afmarka á nýtt verslunar- og þjónustusvæði við Hvalvörlugilslæk í landi Hofs í Öræfum auk ný deiliskipulags fyrir svæðið, var auglýst frá 18. september til 2. október 2023. 2 umsagnir bárust og 1 athugasemdi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum í vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar og deiliskipulags. Nefndin leggur til að þegar tillaga að aðaskipulagsbreytingu og deiliskipulagi liggur fyrir verði haldinn samráðsfundur landeigenda um málið þar sem Umhverfis- og skipulagsstjóri verði boðaður.
10.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Erindi dagsett 11. september 2023 þar sem Össur Imsland óskar eftir breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól frá árinu 2017. Sótt er um að fjölga íbúðum í Fiskhól 11 úr 4 í 6 og byggja við núverandi hús.Erindið var áður tekið fyrir í umhverfis- og skipulagsnefnd þann 25. september 2023 þar sem óskað var eftir nánari gögnum.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið og Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir kom inn í hennar stað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að láta vinna óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi gögn og grenndarkynna áformin samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að láta vinna óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi gögn og grenndarkynna áformin samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
11.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Borist hefur svar frá Umhverfisráðuneyti vegna lagalegrar stöðu í sambandi við berghlupí Svínafellsheiði og hættumat þar. Fundað hefur verið með Skipulagsstofnun og óskað frekari gagna frá Veðurstofunni í kjölfarið.
Umhverfis- og skipulagsstjóri fór yfir stöðu málsins. Lagt fram til kynningar.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Hamarendi, einbýlishús
Þorsteinn Óskarsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hamarenda, lóð úr Fagurhólsmýrajarða. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en skv. aðalskipulagi lóðin er á landbúnaðarsvæði. Grenndarkynning fór fram frá 14.08 til 11.09 sl. og engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.