Umhverfis- og skipulagsnefnd
67. fundur
1. nóvember 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Níels Brimar Jónsson
varamaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Sorpmál 2023
Kynning á stöðu sorpmála, breytingum á tunnum og næstu skref.
Unnið er að breytingum á sorphirðu, merkingum og tunnum. Áætlað er að nýtt kerfi taki gildi um áramót.
2.
Gjaldskrár Umhverfis- og skipulagssviðs
Almenn umræða um gjaldskrár sviðsins og breytingar fyrir næsta ár.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að uppfæra gjöld á heimasíðu skv. vísitölubreytingum um áramót þar sem það á við og undirbúa endurskoðun á þeim liðum sem voru til umræðu á fundinum.
3.
Umsókn um lóð - Krosseyjarvegur 8
Verkfærni ehf. óskar eftir úthlutun lóðar við Álaugarey. Fyrirhuguð er að reisa ca. 500 fm geymslu- / atvinnuhúsnæði fyrir starfsemi fyrirtækis og því æskilegt að stærð lóðar sé um 2.000 fm. Þar sem lóðin er ekki á skipulagsáætlun sveitarfélagsins er erindi sett fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.
Starfsmanni falið að skoða svæðið m.t.t. fornminja og byggingarhæfis málinu vísað til endurskoðunar deiliskipulags í Krossey.
4.
Landeignaskrá - Breiðabólsstaðir, ný lóð
Óskað er eftir að gerð verði breyting á deliskipulagi Breiðabólstaðar og lóð skilgreind undir fjarskiptamastur þar sem nú er sameignarland.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að lóðinni verði skipt út og heimilar að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004
5.
Umsókn um lóð - Sæbraut 4
Bæjarráð samþykkti umsókn Eimskipa um lóð að Sæbraut 4 og lét grenndarkynna lóðina og óska eftir umsögnum. Ein umsögn barst, frá Landsneti, sem gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar en leggur áherslu á samráð þegar til hönnunar á lóðinni kemur vegna 132 kV jarðstrengs sem um hana liggur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til lóðarhafa að fullt tillit verði tekið til jarðstrengsins og helgunarsvæðis hans og samráð haft við Landsnet um frágang á lóðinni. Starfsmanni falið að stofna lóðina.
6.
Landeignaskrá: Hólar - útskipting nýrrar landeignar Hólar 2
Akurnesbúið ehf. og Stefán Trausti Sigurðsson óska eftir uppskiptingu landeignar Hólar 2 úr jörðinni Hólar L159498, skv. framlögðum uppdráttum. Um er að ræða nýja u.þ.b. 42 ha lóð sem stofnuð verður að öllu leyti úr landi Hóla. Við stofnun nýrrar landeignar er ekki verið að hnitsetja eða breyta núverandi afmörkun Stöðuls 1 og Ártúns.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeignar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Bogaslóð 15 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 25. október 2023 þar sem Róbert Marvin Gunnarsson óskar eftir heimild til að gera 3 bílastæði innan lóðar sinnar við Bogaslóð 15.
Gangstétt er aftan við svæðið sem um ræðir og getur það aukið hættu fyrir gangandi vegfarendur á svæðinu. Þó er talið vega þyngra sú hætta að þvera Bogalóð til að fara í bílastæði gegnt lóðinni. Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar því að bætt verði við tvöföldu bílastæði, að hámarki 6m breitt skv. meðfylgjandi teikningu innan lóðamarka Bogaslóðar 15.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Borgartún 20, einbýlishús
Rhýólít ehf. sækir um leyfi til að byggja 325 fm einbýlishús á lóð Borgartún 20. Um er að ræða stálgrindarhús hús á einni hæð með tíu svefnherbergjum sem öll hafa eigið baðherbergi. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir lóðir á svæði B er gert ráð fyrir allt að 250m² íbúðarhús með allt að 50m² bílskúr, og því er fyrirhuguð framkvæmd ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags. Umsækjandi bendir á að þrátt fyrir stærð hússins, rúmast það vel innan uppgefins byggingarreits. Hann óskar þess að við afgreiðslu málsins verði litið til þeirra fordæma sem nú þegar hafa verið gefin í hverfinu m.v í stærðir húsa. Hann bendir á að nú þegar hefur verið samþykkt að heimila stærri byggingar á lóðum við Borgartún 1, 2, 3, 5 og 14 en allar þær lóðir eru sömu stærðar og Borgartún 20, eða 2278.1 m2 .
Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ekki fallist á þær breytingar sem óskað er eftir. Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda.
9.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hafnarbraut 34, breyting á notkun
Karl Jóhann Guðmundsson sendir fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir hönd Nailed It ehf. er varðar skipulagsskilmála lóðar Hafnarbraut 34. Spurt er hvort núgildandi skilmálar deiliskipulags heimila notkun hluta húsnæðis í eigu fyrirtækisins sem gististaður í flokki 2, að öðrum skilyrðum uppfylltum.
Í gildandi skilmálum deiliskipulags fyrir svæði kemur m.a. fram að "Meðfram Hafnarbraut eru hús 1-2ja hæða. Æskilegt stærð húseininga er 200 fm. Nýting 1. hæðar er bundin við verslun og þjónustu. 2. hæð er óbundin og getur hýst t.d. skrifstofur eða smáíbúðir."
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að gististarfsemi í flokki II rúmist í gildandi skilmálum aðal- og deiliskipulags og telur að breyting á notkun sé heimil. Nefndin bendir á að breyting á notkun mannvirkis er byggingarleyfisskyld skv. 9. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að gististarfsemi í flokki II rúmist í gildandi skilmálum aðal- og deiliskipulags og telur að breyting á notkun sé heimil. Nefndin bendir á að breyting á notkun mannvirkis er byggingarleyfisskyld skv. 9. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
10.
Álaugarey - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 10. október 2023 þar sem Ólöf Gísladóttir og Jóhann Gunnarsson óska eftir afstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar til byggingar 50-60 m2 gistihúsnæðis í Álaugarey. Einnig eru lagðar fram áhyggjur af úthlutun lóða á svæðinu til rekstrar þungavinnuvéla.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í vinnslu endurskoðunar deiliskipulags fyrir Krossey.
11.
Rauðaberg 2Lóð 1 - Breyting á deiliskipulagi
Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Sigurður Guðmundsson f.h. South East ehf. sækir um að lóð Rauðabergs 2/Lóð 1 verði breytt úr sumarhúsalóð í verslunar- og þjónustusvæði. Fyrirhugað er að byggja upp gistiheimili eða hótel með allt að 50 herbergjum.
Umrædd lóð er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi. Sveitarfélagið vinnur að endurskoðun aðalskipulags og vísar málinu í það ferli.
12.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er í vinnslu þar sem markmiðið er að afmarka nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn þar sem koma megi fyrir rýmisfrekri verslunar- og þjónustustarfsemi.Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta kemur á fundinn til að ræða framhaldið.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
13.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Unnið er að deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði við innkomuna í bæinn. Jóhanna Helgadóttir, Vilhjálmur Leví Egilsson og Pála Minný Ríkharðsdóttir frá Nordic kynntu uppfærða tillögu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
14.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Áform um fyrirhugað deiliskipulag ÍB5 lagt til umræðu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og undirbúa kynningu á tillögunni fyrir íbúum í nóvember.
15.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. júní 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið var áður auglýst frá 24. febrúar til 11. apríl 2022 en ekki náðist að ljúka skipulagsferlinu innan árs frá því auglýsingartíma lauk og því er skipulagið auglýst að nýju. Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir gistihús og skemmu fyrir tæki og aðstöðu fyrir ferðaþjónustu. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum. Tillagan var endurauglýst frá og með 30. ágúst til 11. október 2023. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Náttúrufræðistofnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Reynivellir Efribær samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem Minjastofnun leggur til og senda það til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Erindin dagsett 27. október 2023 þar sem Vigfús Halldórsson sækir um heimild til að leggja fram deiliskipulag fyrir hluta lóðar Smyrlabjarga með það að markmiði að fjölga starfsmannahúsum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjanda. Nefndin telur að deiliskipuleggja skuli allt bæjarhlaðið og setja fram heildarmynd af svæðinu.
17.
Lenging vegslóða í Þröng - Framkvæmdarleyfi
Erindi dagsett 24. október 2023 þar sem Glacier Adventure sækir um f.h. 12 fyrirtækja, framkvæmdarleyfi til að lengja vegslóða inní Þröng sem nemur rúmum 966 m. Leiðin mun að mestu leyti liggja eftir núverandi gönguslóða.Einnig er óskað eftir að núverandi vegslóði verði uppfærður í opinberum gögnum og aflagður vegslóði verði aflagður.Umsóknin er unnin í samráði við starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framvkæmdaleyfi fyrir lengingu vegslóða í samræmi við framlögð gögn með fyrirvara um umsagnir Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar. Sveitarfélagið heldur engar vegaskrár, ábendingu um aflagðan veg er vísað til endurskoðunar aðalskipulags.
18.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Samantekt frá íbúafundi
Nefndin þakkar fyrir frábæra þátttöku á fundinum og vonast eftir jafn góðri mætingu í dreifbýli. Nefndin hvetur íbúa til að kynna sér innihald samantektarinnar. Ljóst er að vinnan á fundinum nýtist vel inn í endurskoðun aðalskipulagsins.
19.
Ábending um eldstæði
Endurupptaka þar sem samþykkt var að setja niður eldstæði á svæði þar sem verið er að vinna að hönnun vegna líkamsræktartækja.
Starfsmanni falið að skoða útfærslur í samræmi við umræður á fundinum og fá kostnaðarmat á hugmyndinni.
20.
Drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla
Drög að hvítbók um skipulagsmál hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er lögð fram endurskoðuð landsskipulagsstefna til fimmtán ára ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 31. október nk. Stefnudrögin voru einnig kynnt og rædd á Skipulagsdeginum sem haldinn var 19. október 2023.https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3539
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin.
21.
Lóðamál - Sniðmát lóðarleigusamninga fyrir geymslulóðir
Í gildandi deiliskipulagi Hornafjarðarhafnar við Ósland er gert ráð fyrir því að lóðir á Óslandi geta verið notaðar sem geymslulóðir. Til umræðu eru lagðir áherslupunktar við gerð nýrra lóðarleigusamninga.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.