Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

68. fundur
15. nóvember 2023 kl. 16:00 - 18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Eftirlit 2023 - Sveitafélagið Hornafjörður, urðun í Lóni
Málsnúmer 202311026
Sveitarfélaginu hefur borist samantekt á niðurstöðum reglubundinnar skoðunar á vegum Umhverfisstofnunar á urðunarstaðnum í Lóni sem rekinn er af Sveitarfélaginu Hornafirði. Þessi skoðun fór fram 2. ágúst 2023. Umhverfisstofnun gerir athugasemdir við nokkur atriði sem taka þarf á og leggja fram aðgerðaáætlun fyrir. lögð fram tillaga að aðgerðaráætlun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykir framlagða tillögu að aðgerðaráætlun.
2.
Landeignaskrá: Kyljuholt - stofnun nýrra lóða
Málsnúmer 202311070
Jón Kristinn Jónsson og Sigurlaug Gissurardóttir óska eftir stofnun fjögurra lóða úr jörð Kyljuholt. Um er að ræða lóðir Kyljuholt 1, Kyljuholt 2, Kyljuholt 3 og Kyljuholt 5 í samræmi við deiliskipulag.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeigna, enda samræmast þær gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202311087
Ice Cave Iceland óskar eftir afstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar til uppbyggingar gistirýma í átta smáhýsum í Holtsenda. Lagt fram hugmynd að fyrirkomulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir breytingunni og samþykkir að vísa málinu í endurskoðun aðalskipulags. Nefndin bendir umsækjanda á að vinna þurfi deiliskipulag fyrir svæðið.
4.
Byggingarleyfisumsókn - Hagi 3, einbýlishús
Málsnúmer 202307033
Guðmundur Davíð Sigurðsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús með innbyggðri bilgeymslu á u.þ.b. 1,5 ha. landareign Haga 3 (L231921). Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, samkvæmt aðalskipulagi er lóðin á landbúnaðarsvæði.Erindið var grenndarkynnt 10. október með athugasemdarfresti til 7. nóvember 2023.Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni grenndarkynntra gagna í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr 123/2010.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Hagatún 16, parhús
Málsnúmer 202309063
Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Lárus Páll Pálsson sækir um að byggja einnar hæðar parhús á lóð Hagatúns 16 samkvæmt framlögðum teikningum.Erindið var grenndarkynnt frá 10. október með athugasemdarfresti til 7. nóvember 2023.Athugasemd með 7 undirskriftum barst.
Stefán Birgir Bjarnason vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni láta vinna breytingar á tillögunni, ræða við lóðarhafa og svara umsögnum í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Rauðaberg 2Lóð 1 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202310064
Erindi dagsett 5. október 2023 þar sem Sigurður Guðmundsson f.h. South East ehf. sækir um að lóð Rauðabergs 2/Lóð 1 verði breytt úr sumarhúsalóð í verslunar- og þjónustusvæði.Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu í endurskoðun aðalskipulags á fundi 1. nóvember 2023.Nýtt erindi dagsett 10. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir að málið verði tekið upp á ný og óskað eftir að breyting verði gerð á gildandi aðalskipulagi.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir að breyting verði gerð á gildandi aðalskipulagi og bendir á að vinna þurfi deiliskipulag fyrir lóðina.
7.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Málsnúmer 202205085
Aðalskipulagsbreyting fyrir Leiðarhöfða var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga frá 25. september með athugasemdarfresti til 6. nóvember 2023. Umsagnir bárust frá Náttúrustofu Suðausturlands, Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 202309040
Breytingar á lóð Fiskóls 11 voru grenndarkynntar skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2011 frá 11. október með athugasemdarfresti til 8. nóvember 2023.Engin athugasemd barst vegna fyrirhugaðra framkvæmda en ábendingar komu fram um að ekki verði samþykkt að rekin verði hverskonar verslun- eða þjónusta sem fæli í sér aukna umferð. Brýnt er að gera ráð fyrir nægum bílastæðum við fjölgun íbúða.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Breyting á skipulagi gerir ekki ráð fyrir breytingu á landnotkun. Gert er ráð fyrir 13 bílastæðum innan lóðar. Bætt verði inn skilmálum um að bílastæðum verði fjölgað samhliða stækkun húsnæðis og skilmálum um frágang á lóðamörkum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Ferðamannastaðir, skipulag og stígar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202311009
Erindi dagsett 31. október 2023 frá Gunnlaugi Ólafssyni þar sem hann fer yfir umsókn Megins ehf til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Sótt er um styrki fyrir: 1) Svæðisskipulagsvinnu og deiliskipulagsvinnu útivistarsvæðis. Óskað er eftir að vinnan fari inn í endurskoðun aðalskipulags.2) Byggingu klettabrúa3) Stígagerð að aðliggjandi stígum.4) Byggingu léttkamraÓskað er eftir samstarfi, velvild og leyfum varðandi ofantalda þætti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og bendir á að öll skipulagsvinna og undirbúningur framkvæmda þarf að vera unnin í samstarfi við landeigendur, Umhverfisstofnun og forsætisráðuneytið þar sem um þjóðlendu er að ræða. Leyfi til framkvæmda þarf að berast sveitarfélaginu í gegnum íbúagátt þar sem fylgja þurfa viðeigandi gögn. Nefndin vísar meðfylgjandi gögnum í vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
10.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Málsnúmer 202201107
Skipulagslýsing fyrir skipulagssvæði fyrir Víkurbraut 1, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7, var auglýst frá 19. október til 2. nóvember 2023. Tvær umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun og RARIK.Einnig er lagt fram minnisblað frá deiliskipulagshönnuðum vegna verndargildi Víkurbrautar 1 sem er metið hátt í húsakönnun sem hafa veruleg áhrif á framhald deiliskipulagsins ef húsin verða hverfisvernduð eins og mælst er til í húsakönnuninni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum í vinnslu deiliskipulagsins.
Í húsakönnun kemur fram að húsin hafi hátt menningarsögulegt gildi og hafa hátt umhverfisgildi þar sem þau mynda einstaka götumynd sem endurspeglar staðaranda fyrri tíma á Höfn. Aðalskipuag sveitarfélagsins er í endurskoðun og þar verður hverfisvernd endurskoðuð. Það er mat umhverfis- og skipulagsnefndar að húsin falli ekki undir að vera varðveisluleg heild sem ber að viðhalda. Nefndin tekur undir niðurstöðu skipulagshönnuða um að með hverfisvernd á þessum geymsluskemmum væri verið að svæfa þennan hluta miðbæjar, þ.e. festa þær í sessi sem geymsluhús eða fyrir grófa atvinnustarfsemi. Nauðsynlegt er að gera mjög afgerandi breytinga á yfirbragði þessara húsa ef innrétta ætti verslun, þjónustu, íbúðir eða aðra hreinlega starfsemi eins og stendur í skilgreiningu fyrir Miðsvæði.
Nefndin leggur til að skilyrt verði í deiliskipulagi að varðveita suðurbraggann, eins og gert er ráð fyrir í tillögu að deiliskipulagi svæðisins.
11.
Deiliskipulag Hnappavellir 1 - Hjáleiga
Málsnúmer 202304032
Deiliskipulag Hjáleigu í Öræfum var auglýst frá 22. september með athugasemdarfresti til 3. nóvember 2023.Umsagnir bárust frá RARIK, Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands.Lögð er fram tillaga að breyttri legu lóða vegna fornminja.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum til frekari vinnslu deiliskipulagsins og heimilar að unnin verði breyting í samræmi við tillögu C.
12.
Stafafellsfjöll, lóð 11 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202304068
Erindi dagsett 19. apríl 2023 þar sem Sveinbjörn Imsland óskar eftir að gerð verði breyting á Deiliskipulagi Stafafellsfjalla, þar sem byggingarreitur verður stækkaður og byggingarmagn aukið á lóð Stafafellsfjalla 11.Erindinu var frestað á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 2. maí 2023 og óskað eftir gögnum og rökstuðningi fyrir ósk um breytingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir uppfærðum gögnum til grenndarkynningar þar sem byggingarreitir fyrir hvort hús eru nánar afmarkaðir. Settir verði fram skilmálar þar sem heimilað verði að byggð verði tvö aðalhús í stað aðal- og aukahúss skv. núverandi skilmálum. Leggja skal fram heimild landeiganda vegna áformaðra breytinga.
13.
Freysmörk 5 og 11 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202311025
Erindi dagsett 3. nóvember 2023 þar sem sótt er um að lóðir 5 og 11 í Freysmörk verði skráðar sem íbúðarlóðir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að leitað sé leiða til að byggja upp íbúðabyggð í Öræfum. Lóðirnar Freysmörk 5 og 11 eru á frístundasvæði F17. Föst búseta er óheimil í frístundabyggðum og óheppilegt að blanda saman íbúðabyggð og frístundabyggð. Starfsmanni falið að vinna með umsækjanda að útfærslu og hafa samráð við Veðurstofuna.
14.
Framkvæmdaleyfi - Kyljuholt vegagerð
Málsnúmer 202311103
Landeigendur í Kyljuholti óska eftir leyfi til að hefja framkvæmdir við vegagerð og bílastæði í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Vegurinn verður lagður þannig að sem best fari í landinu og minnst rask verði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki framkvæmdaleyfisskyld með tilliti til umfangs framkvæmdar, varanleika og áhrifa á landslag og ásýnd umhverfisins og önnur umhverfisáhrif. Nefndin bendir á að áður en framkvæmdir hefjast skal hafa samband við Minjastofnun í samræmi við umhverfismat deiliskipulagsins.