Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

75. fundur
6. mars 2024 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Bartek Andresson Kass
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Beiðni um aðgang að gangstétt á Hafnarbraut
Málsnúmer 202402118
Ásgrímur Ingólfsson óskar eftir að bætt verði aðgengi að botnlagnanum á Hafnarbraut (47, 47A og 49). Óskað er eftir að sveitarfélagið settji upp tröppur í bröttustu brekkuna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að skoða hvernig bæta megi aðgengi gangandi vegfarenda um svæðið.
2.
Lög nr.113/2023 um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur og fleiri lögum
Málsnúmer 202402128
Farið er yfir minnisblað byggingarfulltrúa um lög nr. 113/2023 um breytingar á ýmsum lögum, m.a. lögum um mannvirki nr. 160/2010 og lögum um brunavarnir nr. 75/2000. Helstu breytingar fela í sér heimildir byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra að beita stjórnvaldssektum þeim sem brjóta í bága við lög um mannvirki og lög um brunavarnir. Sem dæmi má nefna að heimild er að beita sektum þeim sem hefja framkvæmdir án leyfis, taka mannvirki í notkun án þess að úttekt hafi farið fram, eða fylgja ekki fyrirmælum slökkviliðsstjóra.
Lagt fram til kynningar.
3.
Silfurbraut 44-46 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202402162
Sótt er um að byggja þriggja hæða hús á Silfurbraut 44 og 46 með inndreginni efstu hæð. Óskað er eftir að hámarks byggingarmagn þrefaldist og íbúðafjöldi verði 7-9 íbúðir á hvorri lóð. Í gildi er deiliskipulag Innbæjar frá 2021 sem gerir ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð á hvorri lóð með nýtingahlutfallið 0,35.
Elías Tjörvi Halldórsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Stafafellsfjöll 23, frístundahús
Málsnúmer 202402116
Sigríður Guðbjörg Garðarsdóttir og Aðalsteinn Guðmundsson óska eftir heimild til að víkja frá kröfum deiliskipulags frístundasvæðis Stafafellsfjöll í Lóni fyrir lóð nr. 23 vegna nýs húss sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni. Frávik varðar mænisstefnu.Í greinargerð deiliskipulagsins er miðað við að húsin falli sem best að landi og að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum. Staðsetning fyrirhugaðs húss er sýnd á uppdráttum, og er mænisstefna ekki samsíða hliðum.
Þar sem húsið er á sama stað og með sömu mænisstefnu og fyrra hús leggur Umhverfis- og skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að samþykkt verði að víkja frá kröfu um skipulagsbreytingu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 2, breyting á notkun
Málsnúmer 202403005
Funaborg ehf. sækir um leyfi til að breyta hluta 1. hæðar Víkurbrautar 2. Um er að ræða að breyta núverandi veitingasal og salernum í stigagangi hússins í 4 íbúðir og núverandi eldhúsi í þvottahús. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en samkvæmt aðalskipulagi er lóð staðsett á miðsvæði M1. Samþykki eiganda aðrar eignar í húsi liggur fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda, samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 og afstaða annarra eigenda í húsinu liggur fyrir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Málsnúmer 202302007
Melatangi hefur óskað eftir breytingum vegna uppbyggingar á lóð þeirra við Álaugaveg 10. Fyrirhugað er að sameina hluta lóðar í lóð nr. 8 og öðrum hluta í lóð nr. 12. Númer lóðar 12 yrði þá breytt í 10. Lóðarhafar þessara lóða eru sammála um að með nýju fyrirkomulagi munu nýtingarmöguleikar lóðanna aukast.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til fyrir bæjarráð að samþykkja erindi umsækjanda.
7.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Lögð eru fram drög að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í landi Hofs í Öræfum.Sameiginleg skipulagslýsing fyrir breytingu aðalskipulags og deiliskipulags svæðisins var í kynningu frá 18. september til 2. október 2023.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að undirbúa samráðsfund með landeigendum um málið í samræmi við bókun nefndarinnar frá 9. október 2023.
8.
Hvalvörðugilslækur í landi Hofs - Deiliskipulag
Málsnúmer 202403001
Lögð eru fram drög að deiliskipulagi svæðis við Hvalvörðugilslæk í landi Hofs í Öræfum. Sameiginleg skipulagslýsing fyrir breytingu aðalskipulags og deiliskipulags svæðisins var í kynningu frá 18. september til 2. október 2023.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að undirbúa samráðsfund með landeigendum um málið í samræmi við bókun nefndarinnar frá 9. október 2023 og óska eftir áliti Veðurstofunar á hættumati.
9.
Sandbakkavegur 1-3 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202402161
Sótt er um að byggja þriggja hæða hús á Sandbakkavegi 5. Óskað er eftir að hámarks byggingarmagn aukist sem því nemur og heildar fjöldi íbúða verði 6. Í gildi er deiliskipulag Miðbæjar Hafnar, frá 1988 en gerð var breyting fyrir svæðið árið 2023. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir tveggja hæða húsi með nýtingahlutfalli 0,7 og að íbúðir geti verið á bilinu 30-90 m2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umbeðinni breytingu þar sem hún fellur ekki að heildarsvip svæðisins og markmiðum skipulagsins. Uppbygging á svæðnu skal vera í samræmi við gildandi deiliskipulag.
10.
Flatatún í Öræfum - Deiliskipulag
Málsnúmer 202311123
Deiliskipulag Hjáleigu og Flatatúns í Öræfum var auglýst frá 10. janúar með athugasemdarfresti til 21. febrúar 2024. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu þar til fornleifakönnun liggur fyrir á öllu svæðinu.
11.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Málsnúmer 202310146
Deiliskipulag Smyrlabjarga var auglýst með athugasemdarfresti frá 22. janúar til 4. mars 2024.Engar athugasemdir eða umsagnir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að á deiliskipulagi Smyrlabjarga skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
12.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Málsnúmer 202310161
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Verslunar- og þjónustusvæðis við innkomu í bæinn, austan við Hafnarbraut. Megintilgangur með deiliskipulagsvinnunni er að móta nýtt svæði fyrir stærri verslanir og aðra rýmisfreka verslunar- og þjónustustarfsemi á Höfn til þess að koma til móts við þá þróun sem átt hefur sér stað síðustu ár.Gert ráð fyrir þremur lóðum undir verslunar og þjónustustarfsemi á skipulagssvæðinu. Í deiliskipulaginu eru skilgreindir byggingarreitir og settir fram skilmálar um byggingar og uppbyggingu í samræmi við lög og reglur þar að lútandi. Lagður er grunnur að vönduðum frágangi byggðar og umhverfis innan skipulagssvæðisins.
Umhverfis- og skpulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Umhverfis- og skpulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Málsnúmer 202201107
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7.
Starfsmanni falið að láta vinna breytingar á mörkum aðliggjandi skipulagsáætlana og breytingu á aðalskipulagi.
15.
Fyrirspurn um deiliskipulag útbæjar á Höfn
Málsnúmer 202111005
Lögð er fram tillaga vegna viðbyggingar við Ásgarð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu í vinnslu breytingar á deiliskipulagi Útbæjar.
16.
Ósk um framkvæmdaleyfi úr Fjarðará
Málsnúmer 202403006
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr Fjarðará í Lóni [E16 og E17] vegna framkvæmdarinnar „Hringvegur 1 um Hornafjörð.“ Náman er tilgreind í MÁU fyrir verkefnið (náma 8,). Sótt er um leyfi fyrir efnistöku á tveimur stöðum, norðan og sunnan þjóðvegar samtals 49.900 m3. Efnistaka mun fara fram í samræmi við leyfi Fiskistofu og ábendingarSkipulagsstofnunar. Með þessari efnistöku er ætlunin, m.a. að hlífa námunni Friðsæld [E28] eins og kostur er, en Skipulagsstofnun benti á það atriði á sínum tíma í MÁU þó svo að leyfi hafi verið gefið fyrir talsverðri efnistöku úr námunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdarleyfi verð samþykkt.
17.
Kuðungurinn - tilnefningar
Málsnúmer 202403008
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2023. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og hefur sú breyting verið gerð á að tilnefningaflokkarnir eru nú tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki.Óskað er eftir því að greinargerð fylgi með tilnefningunni, en við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að tilnefna Skinney Þinganes og Glacier Adventures til Kuðungsins.
18.
Hvammur, ferðaþjónustusvæði - Deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 202403009
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi Hvamms í Lóni. Markmið breytingarinnar er að auka umsvif ferðaþjónustu á svæðinu. Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipula, landnotkunarreit VÞ34.
Umhverfis- og skpulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.