Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

79. fundur
6. maí 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Xiaoling Yo umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Hraðhleðslustöðvar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202310003
Tekin er fyrir fyrirspurn frá Orkusölunni vegna hraðhleðslustöðva við verslunarmiðstöðina á Höfn. Lögð er fram tillaga um að tvö stæði verði hleðslustæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu. Málinu vísað til bæjarráðs.
2.
Skaftafell III og IV, hótel og starfsmannahúsnæði - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202404114
Erindi dagsett 29. apríl 2024 þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 og vinnslu deiliskipulags í landi Skaftafells III og IV til að skipuleggja 8 ha svæði undir þjónustu- og gististarfsemi auk heimildar til að skipuleggja um 25 ha lóðir undir íbúða-/starfsmannahúsnæði og þjónustu- og hótelstarfsemi að Skaftafelli III og IV.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Vegna umfangs beiðninnar vísar Umhverfis- og skipulagsnefnd erindinu í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að undirbúa og halda íbúafund í Öræfum í samráði við íbúaráð um fyrirhugaða uppbyggingu og staðsetningu íbúðarsvæðis vestan Sandfells.
3.
Skaftafell IV, landnotkun í endurskoðuðu aðalskkipulagi - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202404118
Erindi dagsett 29. apríl 2024 þar sem Árni Benediktsson óskar eftir að landsvæði jarðarinnar Skaftafells IV verði í endurskoðun aðalskipulags að mestu skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði, frístundasvæði og svæði fyrir skógrækt og landgræðslu.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Vegna umfangs beiðninnar vísar Umhverfis- og skipulagsnefnd erindinu í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að undirbúa og halda íbúafund í Öræfum í samráði við íbúaráð um fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu vestan Sandfells.
4.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í landi Hofs í Öræfum ásamt ofanflóðamati. Samhliða er lögð fram tillaga að deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
5.
Hvalvörðugilslækur í landi Hofs - Deiliskipulag
Málsnúmer 202403001
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi svæðis við Hvalvörðugilslæk í landi Hofs í Öræfum. Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 41. gr. sömu laga.

6.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Málsnúmer 202211036
Sveitarfélagið Hornafjörður er þátttakandi í verkefninu aðgerð C.10 í byggðaráætlun - aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftlagsbreytinga. Lagt er fram til kynningar vinnuskjal til hliðsjónar fyrir áframhaldandi vinnu, kynning á jöklabreytingum við sunnanverðan Vatnajökul og kynning á vinnustofu sem haldin var 26. febrúar 2024.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ný urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Málsnúmer 202404065
Verkefnastjóri umhverfismála kynnti áform um nýja urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar Xiaoling fyrir kynninguna.
8.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2023
Málsnúmer 202404066
Verkefnastjóri umhverfismála kynnti grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Lóni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar Xiaoling fyrir kynninguna.
9.
IceNAP - Umsókn um styrk í LIFE áætlun ESB
Málsnúmer 202404105
Áframhaldandi umræða um mögulega þáttöku sveitarfélagsins í styrkumsókn til Evrópusambandsins.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að skrifa ítarlegra minnisblað byggt á umræðum á fundinum og vísa til bæjarráðs.