Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

80. fundur
22. maí 2024 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn - Dalbraut 2a til 2c, fjölbýlishús
Málsnúmer 202402102
Sótt er um byggingarleyfi fyrir þrjú fjölbýlishús við Dalbraut 2a, 2b og 2c. Grenndarkynnig hefur áður farið fram, en þar sem byggingarleyfi hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar fór hún fara fram að nýju sbr. 4.gr. 44.gr. skipulagslaga. Ný tillaga gerir ráð fyrir því að húsin munu nýta útsýni betur. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.Erindið var grenndarkynnt frá 11. apríl með athugasemdarfresti til 10. maí 2024.Engar athugasemdir bárust en umsögn barst frá Minjastofnun Íslands.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Smárabraut 10, viðbygging
Málsnúmer 202402044
Benni Albert Friðþórsson og Eik Aradóttir sækja um byggingarheimild fyrir stækkun á íbúðarhúsi að Smárabraut 10 skv. framlögðum teikningum. Um er að ræða u.þ.b. 50 fm tengibyggingu milli húss og bílskúr sem kemur til með að innihalda salerni og alrými. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Erindið var grenndarkynnt 11. apríl með athugasemdarfresti til 10. maí 2024.Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Málsnúmer 202211036
Sveitarfélagið Hornafjörður er þátttakandi í verkefninu aðgerð C.10 í byggðaráætlun - aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftlagsbreytinga. Unnið hefur verið að viðkvæmnimati í kjölfar samantektar á mögulegum atburðum.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401096
Lögð er fram skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags og breytingu aðalskipulags fyrir Skriðu í Nesjum. Fyrirhuguð er uppbygging á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og bjóða framkvæmdaraðilum á næsta fund nefndarinnar. Vegna umfangs fyrirhugaðrar uppbyggingar og samlegðaráhrifa með öðrum verkefnum telur nefndin mikilvægt að skoðuð séu áhrif á samfélag og innviði.
5.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Lagt er fram, eftir auglýsingu, deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga, miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir. Einnig er lögð fram húsakönnun skipulagssvæðisins.Skipulögin voru auglýst frá 2. apríl með athugasemdarfresti til 15. maí 2024. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi skóla- og íþróttasvæði Hafnar skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga ásamt aðliggjandi skipulögum; miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum.
6.
Flatatún í Öræfum - Deiliskipulag
Málsnúmer 202311123
Deiliskipulag Hjáleigu og Flatatúns í Öræfum var auglýst frá 10. janúar með athugasemdarfresti til 21. febrúar 2024. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands. Lögð eru fram uppfærð skipulagsgögn vegna minja á svæðinu. Einnig er lögð fram ný umsögn Minjastofnunar Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Flatatúns skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
7.
Friðsæld - umsókn um efnistöku
Málsnúmer 202401101
Lögð fram tillaga að frágangi fyrir Friðsæld sem felur í sér að efni verði flutt að og vestari hluti námunnar verði frágenginn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina falla undir útgefið framkvæmdarleyfi fyrir hringveg um Hornafjörð dagsett 12. nóvember 2021.