Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

81. fundur
5. júní 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Horn 1 159500 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi,
Málsnúmer 202405073
Litlahorn ehf sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við veitingahús á Horn 1. Um er að ræða 63,6 fm viðbyggingu með 15,3 fm vindfangi fyrir matsal og anddyri. Fyrirhugað er einnig að stækka tæknirými um 9,6 fm. Ennfremur er sótt um byggingarleyfi fyrir 141 fm gistiálmu með 6 herbergjum. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði á reitt VÞ 36 þar sem gert er ráð m.a. fyrir ferðaþjónustu, gistingu, tjaldsvæði, þjónustuhús með veitingum. Í skilmálum fyrir reitt kemur fram að uppbygging skal heimil skv. deiliskipulagi. Gert er ráð fyrir allt að 120 gesti. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi skal uppbygging á umræddu svæði vera samkvæmt deiliskipulagi. Frekari uppbygging á svæðinu er því óheimil án deiliskipulagsgerðar og á undanþáguákvæði í 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga 123/2010 ekki við, þar sem skilyrði um samræmi við aðalskipulags er ekki uppfyllt. Umhverfis- og skipulagsnefnd getur því ekki fallist á að heimilt sé að veita leyfi til framkvæmda án deiliskipulagsgerðar og hvetur umsækjanda að vinna deiliskipulag fyrir svæðið.
2.
Landeignaskrá Flatatún - sameining lóða
Málsnúmer 202405105
Suðureignir ehf. óska eftir samþykki bæjarstjórnar fyrir sameiningu landeigna Flatatún L233486 og Flatatún spilda L236204.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við sameiningu landeignaa. Nefndin telur að sameining lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401096
Lögð er fram uppfærð skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags og breytingu aðalskipulags fyrir Skriðu í Nesjum. Fyrirhuguð er uppbygging á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu.
Inn á fundinn komu Gunnar Sverrir Harðarson fyrir Steinar Resort ehf, Brynja Rán Egilsdóttir og Ásgeir Jónsson frá Eflu og kynntu uppbyggingaráform á Skriðu. Einnig kom inn á fundinn Árni Geirsson frá Alta sem ráðgjafi sveitarfélagsins við endurskoðun aðalskipulags.
Starfsmanni falið að afla frekari gagna.
4.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202310064
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Um að ræða nýtt 10,3 ha verslunar- og þjónustusvæði á Rauðabergi 2 Lóð 1. Þar verður m.a. heimilað að reisa hótel/gistihús með allt að 50 gistirýmum.Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401077
Bæjarstjórn samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi.Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér að skilmálar breytast á svæði VÞ44 sem nær bæði til Skaftafells III og IV. Byggingarheimildir skv. aðalskipulagi eru fullnýttar á Skaftafelli III. Breytingin felur í sér að skilmálar breytast þannig að sambærileg uppbygging geti einnig átt sér stað á landi Skaftafells IV og verður því um tvöföldun á uppbyggingu að ræða.Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Veðurstofu Íslands, Vatnajökulsþjóðgarði og Umhverfisstofnun.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Í samræmi við umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs óskar umhverfis- og skipulagsnefnd eftir viðbrögðum umsækjenda og ásýndarmyndum af svæðinu.
6.
Skaftafell III og IV - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202309100
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Skaftafells III og IV.Í breytingunni fellst að byggingarheimildir aukast úr 35 gisti- og þjónustuhúsum í 70 hús með samtals 70 gistirýmum sem jafngildir 140 gistirúmum.Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vatnajökulsþjóðgarði og Veðurstofu Íslands.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Í samræmi við umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs óskar umhverfis- og skipulagsnefnd eftir viðbrögðum umsækjenda og ásýndarmyndum af svæðinu.
7.
Hagahverfi - Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hagahverfi, sem hefur vinnuheitið ÍB5, sem er staðsett við hlið tjaldsvæðis. Megintilgangur með deiliskipulaginu er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið aðalskipulags Hornafjarðar. Með uppbyggingunni er verið að koma til móts við íbúðaskort í þéttbýlinu á Höfn þar sem íbúum hefur fjölgað hratt undanfarin ár. Á svæðinu er gert ráð fyrir sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum ásamt fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara. Alls er gert ráð fyrir um 200 íbúðareiningum á svæðinu.Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni.
Umhverfis- og skiplagsstjóra falið að bregðast við umsögn Vegagerðarinnar og gera tillögur að svörum.
8.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Málsnúmer 202310161
Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis við innkomu á Höfn, austan við Hafnarbraut. Markmið með deiliskipulaginu er að móta nýtt svæði fyrir stærri verslanir og aðra rýmisfreka verslunar- og þjónustustarfsemi á Höfn. Íbúafjölgun og vaxandi fjöldi ferðamanna hefur skapað forsendur fyrir meiri verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir þremur lóðum undir verslunar- og þjónustustarfsemi á skipulagssvæðinu. Lagður er grunnur að vönduðum frágangi byggðar og umhverfis innan skipulagssvæðisins.Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Umhverfis- og skiplagsstjóra falið að bregðast við umsögn Vegagerðarinnar og gera tillögur að svörum.
9.
Birnudalur vatnsaflsvirkjun - Deiliskipulag
Málsnúmer 202405107
Erindi dagsett 2. maí 2024 þar sem Vesturorka-WesTide ehf. óskar eftir heimild til að hefja deiliskipulagsgerð fyrir 1 MW vatnsaflsvirkjun sem nær frá rótum Staðardals og inn Birnudal á Kálfafellsstaðarjörð í Suðursveit. Matsskyldufyrirspurn hefur verið send til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu þar sem framkvæmdin er í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.Í gildandi aðalskipulagi er heimild fyrir 950 kW virkjun.Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvort aðkomuvegur að virkjuninni skuli vera innan skipulagssvæðis eða einungis framkvæmdarleyfisskyld framkvæmd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að fyrirhuguð virkjun samkvæmt umsókn er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag. Nefndin óskar eftir að fá gögn sem send voru Skipulagsstofnun til ákvörðunar um matsskyldu. Verði fallist á uppbyggingu á svæðinu er aðkomuvegur ekki deiliskipulagsskyldur, einungis framkvæmdaleyfisskyldur.
10.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Smyrlabjargarvirkun-Reynivellir
Málsnúmer 202405070
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi til að plægja og leggja há- og lágspennustrengi auk uppsetninga spennistöðva í Suðursveit. Verkefnið er á þremur aðsklildum svæðum frá Smyrlabjargarvirkjun að Reynivöllum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi með fyrirvara um að brugðist verði við umsögn Minjastofnunar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.