Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

82. fundur
19. júní 2024 kl. 16:00 - 19:00
Freysnesi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Xiaoling Yo umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Útbær - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202406060
Lögð er fram beiðni frá Marina Travel um heimild til breytingar á deiliskipulagi Útbæjar á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að láta vinna óverulega breytingu a deiliskipulagi.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Kynning á stöðu skipulagsvinnunnar, umræða um valkosti ofl.
Matthildur Kr. Elmarsdóttir kom inn á fundinn og kynnti stöðu vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
3.
Almannavarnir Svínafellsjökull
Málsnúmer 201807008
Umhverfis- og skipulagsstjóri fundaði með Veðurstofunni og Almannavörnum. Veðurstofan fyrirhugar að gefa út hættumat vegna berghlups í Svínafellsjökli á haustmánuðum. Hættumat hefur verið útfært fyrir allt hættusvæðið. Í samráði við Almannavarnir þarf að vinna rýmingaráætlun fyrir svæðið í samráði við íbúa.
Lagt fram til kynningar.
4.
Horn 1 159500, viðbygging við veitingahús, ný gistiálma - krafa um endurupptöku
Málsnúmer 202406051
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.Beiðni um endurupptöku máls vegna synjunar á veitingu byggingarleyfis við Horn 1 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar beiðni um endurupptöku til bæjarráðs í samræmi við samþykktir sveitarfélagsins en tekur jafnframt jákvætt í það að heimild til að vinna deiliskipulag verði veitt.
5.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401096
Lögð er fram skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags og breytingu aðalskipulags fyrir Skriðu í Nesjum. Fyrirhuguð er uppbygging á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Nefndin leggur áherslu á að í matsfyrirspurn verði reifaðir þeir valkostir sem skoðaðir voru í ferlinu þar með talið áhrif á innviði og samfélag.
6.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401077
Bæjarstjórn samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér að skilmálar breytast á svæði VÞ44 sem nær bæði til Skaftafells III og IV. Byggingarheimildir skv. aðalskipulagi eru fullnýttar á Skaftafelli III. Breytingin felur í sér að skilmálar breytast þannig að sambærileg uppbygging geti einnig átt sér stað á landi Skaftafells IV og verður því um tvöföldun á uppbyggingu að ræða. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 5. júní 2024 var óskað eftir viðbrögðum umsækjenda og ásýndarmyndum af svæðinu sem nú eru lagðar fram.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Skaftafell III og IV - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202309100
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu deiliskipulags Skaftafells III og IV. Í breytingunni fellst að byggingarheimildir aukast úr 35 gisti- og þjónustuhúsum í 70 hús með samtals 70 gistirýmum sem jafngildir 140 gistirúmum. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. apríl til 27. maí 2024. Nefndin fjallaði um innkomnar umsagnir á fundi 5. júní 2024 var óskað eftir viðbrögðum umsækjenda og ásýndarmyndum af svæðinu sem nú eru lagðar fram.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Skaftafell III og IV skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
8.
Hagahverfi - Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hagahverfi, sem hefur vinnuheitið ÍB5, sem er staðsett við hlið tjaldsvæðis. Megintilgangur með deiliskipulaginu er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið aðalskipulags Hornafjarðar. Með uppbyggingunni er verið að koma til móts við íbúðaskort í þéttbýlinu á Höfn þar sem íbúum hefur fjölgað hratt undanfarin ár. Á svæðinu er gert ráð fyrir sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum ásamt fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara. Alls er gert ráð fyrir um 200 íbúðareiningum á svæðinu. Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024. Nefndin fjallaði um innkomnar umsagnir á fundi 5. júní 2024.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Hagahverfis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
9.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Málsnúmer 202310161
Tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis við innkomu á Höfn, austan við Hafnarbraut. Markmið með deiliskipulaginu er að móta nýtt svæði fyrir stærri verslanir og aðra rýmisfreka verslunar- og þjónustustarfsemi á Höfn. Íbúafjölgun og vaxandi fjöldi ferðamanna hefur skapað forsendur fyrir meiri verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir þremur lóðum undir verslunar- og þjónustustarfsemi á skipulagssvæðinu. Lagður er grunnur að vönduðum frágangi byggðar og umhverfis innan skipulagssvæðisins. Tillaga að deiliskipulaginu var auglýst með athugasemdarfresti frá 8. apríl til 24. maí 2024. Nefndin fjallaði um innkomnar umsagnir á fundi 5. júní 2024.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.
Skilti, vörumerki og fleira - Tillögur fyrir SVH
Málsnúmer 202211067
Unnið er að uppsetningu skiltis við innkomuna í sveitarfélagið, byrjað verður við þjóðveginn vestantil og síðan austantil í kjölfarið. Útlit skiltisins liggur fyrir en unnið er að nánari hönnun og nákvæmri staðsetningu þess. Óskað er eftir áliti umhverfis- og skipulagsnefndar vegna staðsetningu skiltisins og fyrirkomulagi verksins.
Málinu er frestað.
11.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202406050
Erindi dagsett 10. júní 2024 þar sem Heppu veitingar óska eftir heimild til að nýta staura sem standa á lóð sveitarfélagsins á gatnamótum Víkurbrautar og Heppuvegar undir skilti sem vísar á veitingastaðinn og brugghúsið. Stærð skiltis er um 150 x 115 cm.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að leysa málið með umsækjendum.
12.
Loftslagsbókhald SVH 2022 og 2023
Málsnúmer 202405009
Unnið er að gerð loftslagsbókhalds fyrir sveitarfélagið.
Xiaoling kynnti drög að loftslagsbókhaldi sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að hafin sé vinna við að taka þessi gögn saman. Nefndin felur starfsmanni að taka saman frekari upplýsingar og birta bókhaldið.