Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

84. fundur
4. september 2024 kl. 16:00 - 16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Breyting Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis við Hvalvörðugilslæk var auglýst í Lögbirtingablaðinu, skipulagsgátt mál nr. 626/2024 og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 11. júlí til 30. ágúst 2024. Samhliða var auglýst deiliskipulag fyrir svæðið. Umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Hvalvörðugilslækur í landi Hofs - Deiliskipulag
Málsnúmer 202403001
Deiliskipulag ferðaþjónustu við Hvalvörðugilslæk var auglýst í Lögbirtingablaðinu, skipulagsgátt mál nr. 870/2024 og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 11. júlí til 30. ágúst 2024. Samhliða var auglýst breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Umsagnir bárust frá RARIK, Veðurstofu Íslands og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til staðbundið hættumat liggur fyrir.
3.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Málsnúmer 202201107
Lögð fram tillaga eftir auglýsingu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Samhliða eru lagðar fram breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða:Deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið við Krossey frá 2014.Deiliskipulag við Víkurbraut, Höfn-Knattleikjahús frá 2008.Deiliskipulag Hafnarvíkur-Heppa-Höfn frá 2012.Tillögurnar voru auglýstar frá 22. maí með athugasemdarfresti til 3. júlí 2024 í Lögbirtingablaðinu, skipulagsgátt mál nr. 762/2023 og á heimasíðu sveitarfélagsins. Umsagnir bárust frá RARIK og Minjastofnun Íslands.
Við gerð deiliskipulagsins var lögð áhersla á að taka tillit til staðaranda og sérstöðu í bæjarmynd Hafnar við mótun á götumynd og byggðamynstri. Til þess að tryggja að ný hús falli vel að nærliggjandi eldri byggð voru settir skilmálar til að tryggja uppbrot í ásýnd og takmörkun sett á flöt þök innan hverrar lóðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur ekki þörf á að vernda núverandi geymsluhús nema þá suðurbraggann.
Brugðist er við umsögn RARIK og lagnaleið tryggð um svæðið með helgunarsvæði fyrir stofnlagnir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Einnig er lagt til að samþykktar verði breytingar að skipulagsmörkum aðliggjani svæða: Deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið við Krossey, deiliskipulag við Víkurbraut, Höfn-Knattleikjahús og deiliskipulag Hafnarvíkur-Heppa-Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
4.
Breiðabólstaðatorfa, fjarskiptalóð - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202408102
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Breiðabólstaðatorfu þar sem er bætt við nýrri lóð fyrir fjarskiptamastur og tilheyrandi tæknibúnað. Allt að 15 m hátt farskipamastur verður heimilað innan hennar ásamt smáhýsi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga þar sem leyfi allra landeiganda liggur fyrir.
5.
Múlagljúfur, bílastæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 202408074
Fyrirspurn um skipulagsmál er varðar uppbyggingu bílastæðis og salerna við Múlagljúfur í landi Kvískerja í Öræfum. Svæðið er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi. Svæðið er á B-hluta náttúruminjaskrár
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrir huguð uppbygging bílastæða og salerna samræmist skilmálum aðalskipulags en telur framkvæmdina framkvæmdaleyfisskylda. Hvað varðar gjaldtöku óskar nefndin eftir því að aflað verði upplýsinga um hvaða áhrif það hefur þar sem svæðið hefur fengið opinbera styrki til uppbyggingar.
6.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2022
Málsnúmer 202212047
Umferðaröryggisáætlun var samþykkt í bæjarstjórn þann 11.apríl 2018. Markmið með gerð umferðaröryggisáætlunar er að auka vitund forráðamanna sveitarfélaga og íbúa um umferðaröryggi. Í umferðaröryggisáætluninni var leitast við að greina stöðu umferðaröryggis í sveitarfélaginu með gögnum um slys frá Samgöngustofu. Mikilvægt er að endurskoða umferðaröryggisáætlunina reglulega með tilliti til breytinga á umferð og þróun ökutækja.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að leggja mat á þörf á endurskoðun áætlunarinnar.
7.
Helsingjar í Austur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202409003
Umhverfisstofnun boðaði hagsmunaaðila til fundar vegna veiðistjórnunar á helsingja þann 16. ágúst sl. Austur-Grænlands-stofn helsingja, sem íslenski stofninn tilheyrir, hefur rýrnað mjög á allra síðustu árum. Bæði varð stofninn fyrir verulegum afföllum vegna bráðrar fuglaflensu en einnig hefur viðkomubrestur verið viðvarandi síðustu tvö sumur. Stofninn var metinn um 57.000 fuglar í mars 2024 og er því kominn nærri neðri viðmiðunarmörkum AEWA samningsins sem miðast við 54.000 fugla að vori. Taldar eru 24% líkur á að stofninn hafi nú þegar farið undir fyrrgreind mörk.Í júní á þessu ári sendi vinnuhópur EGMP (e. European Goose Management Platform), undir AEWA, skilaboð um að þær aðildaþjóðir sem bera ábyrgð á helsingjastofninum á varptíma, farleiðum og vetrarstöðvum (Ísland og Bretland) komist að samkomulagi um hvernig megi takmarka veiðar.Umhverfisstofnun sendi tillögur til ráðherra um aðgerðir sem felast í syttu veiðitímabili helsingja ásamt sölubanni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að hagsmunaaðilum sé boðið á fund og fái þannig aðkomu að mótun tillagna Umhverfisstofnunar til ráðherra. Engu að síður telur nefndin það miður að ekki hafi verið hluti af tillögunum að færa veiðitímabilið framar í V- og A- Skaftafellsssýslum til samræmis við aðra landshluta. Varp helsingja hefur aukist gríðarlega í sveitarfélaginu á síðustu árum og tjón bænda í samræmi við það. Tryggja þarf og einfalda farveg fyrir bændur til að sækja sér tjónabætur.
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
8.
Hafnarvegur 99-03 - breyting í vegaskrá
Málsnúmer 202409004
Vegagerðin tilkynnir um að endapunktur vegkafla 99-03 Hafnarvegar var innan hafnarsvæðis sveitarfélagsins en slíkt er ekki í samræmi við skilgreiningu stofnvega skv. vegalögum. Sveitarfélaginu er tilkynnt um að endapunktur hans hefur verið færður að mörkum hafnarsvæðisins og tók breytingin gildi 30. ágúst 2024.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að taka við veginum í því ástandi sem hann er og bendir jafnframt á að afmörkun hafnarsvæðis sé í endurskoðun við vinnslu aðalskipulags.