Umhverfis- og skipulagsnefnd
86. fundur
2. október 2024
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varamaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Xiaoling Yo
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn - Silfurbotn 1, 3, 5 - raðhús
Berglind Gerða Libungan sækir um byggingarleyfi til að reisa steinsteypta þriggja íbúða raðhús á lóðum Silfurbotn 1, 3 og 5. Áform um framkvæmdir og frávik frá deiliskipulagi var grenndarkynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 2. september með athugasemdarfresti til 30. september 2024.Athugasemdir bárust frá Húsfélagi Silfurbrautar 19-29, Ara Jónssyni og frá Jóhönnu Stígsdóttur Schramm og Reynis Arnar Ólasonar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar umsögnum til hönnuðar og lóðarhafa og óskar eftir viðbrögðum.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Stafafellsfjöll 1D, frístundahús og gestahús
Hafin er bygging sumarhúss á lóð 1D í Stafafellsfjöllum. Óskað eftir undanþágu á deiliskipulagi frístundasvæðis í Stafafellsfjöllum í Lóni. Breytingin nær til lóðar nr. 1D í Stafafellsfjöllum. Óskað var eftir áliti landeigenda. Birkir Birgisson mætti á fundinn og gerði grein fyrir afstöðu landeigenda í Brekku. Aðrir landeigendur sendu skrifleg svör.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita undanþágu frá tilmælum um mænistefnu í skilmálum deiliskipulags frístundasvæðis í Stafafellsfjöllum í Lón í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Mælst er til þess að við frágang húss og lóðar verði litaval þannig að húsið falli vel að umhverfinu.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lega þjóðvegar í þéttbýli. Vegagerðin hefur lagt fram tillögur að tveimur valkostum til umræðu sem byggja á forsendum í gildandi aðalskipulagi og núverandi byggð. Umræður um forsendur fyrir færslu vegarins og stefnu um þróun byggðarinnar til lengri framtíðar og hvort kalla þarf eftir fleiri valkostum frá Vegagerðinni.
Umræður um legu þjóðvegar í þéttbýli. Starfsmanni falið að koma ábendingum til Vegagerðarinnar.
4.
Hagaleira 12, bílastæði - Deiliskipulag
Sótt er um stækkun á bílastæði við Hagaleiru 12 þannig að stæðum fjölgi úr 2 í 4. Í gildi er deiliskipulag fyrir Leirur á Höfn frá 2007. Þar segir að almennt skuli gert ráð fyrir 2 bílastæðum á lóð fyrir hverja íbúð í sérbýli.Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar var hafnað 12 metra samfelldu bílastæði þar sem hámarks úrtak vegna bílastæða er 9 metrar við sérbýli.Erindið er lagt fyrir á ný í ljósi ábendinga sem hafa borist.
Í deiliskipulagi Leirusvæðis er almennt gert ráð fyrir tveimur bílastæðum á lóð við hverja íbúð í sérbýli. Í ljósi fordæma í breidd bílastæða á vestari hluta Leirusvæðis gerir umhverfis- og skipulagsnefnd ekki athugasemdir við að bílastæði geti verið allt að 12 m. En jafnframt hvetur nefndin húseigendur til að huga að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda við útfærslu bílastæða við hús sín.
5.
Stafafell, vegagerð - óleyfisframkvæmdir
Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 6. desember 2023 var bókað að öll frekari uppbygging á Stafafelli væri háð deiliskipulagsgerð. Framkvæmdir standa yfir þar sem verið er að leggja veg yfir óskipt land án deiliskipulags eða framkvæmdaleyfis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að óska skýringa og stöðva framkvæmdir.
6.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Fjárhúsavík, efnistaka fyrir afmörkun tippsvæðis
Sveitarfélagið Hornafjörður sækir hér með um framkvæmdarleyfi. Fyrirhugað er að afmarka tippsvæði við Sílavík með lágum grjótgarði ca. 170m að lengd, m.a. til að koma í vegg fyrir dreifingu efnis inn í víkina. Grjót verður sótt úr námi í Fjárhúsavík, svæði E86 í aðalskipulagi Hornafjarðar og gera má ráð fyrir um 150-300 m³ efnistöku.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Lokið við skipti á tunnum
Í upphafi árs 2024 hóf sveitarfélagið skráningarferli fyrir ruslatunnur hjá öllum heimilum og fylgdi því eftir með því að skipta um tunnur samkvæmt skráningunum. Þetta ferli hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir, en það er talið að því sé næstum lokið, og lokaúttekt frá Xiaoling á næstu dögum. Einhverjar breytingar gætu verið nauðsynlegar þegar íbúar byrja að nota tunnurnar og óska eftir breytingum, eins og þegar hefur komið upp hjá nokkrum heimilum. Við munum leyfa heimilum að gera breytingar á tunnum sínum án gjalds til ársloka, óskir um breytingar berist í gegnum íbúagátt eða á tölvupóstfang afgreidsla@hornafjordur.is. Í gjaldskrá er gert ráð fyrir gjaldi fyrir breytingar á tunnum, upp á 3500kr og gert ráð fyrir að það verði tekið upp frá og með næstu áramótum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar íbúum fyrir þolinmæði og skilning á meðan á breytingarferlinu stóð og Xiaoling fyrir vel unnin störf.
8.
Breytingar sem lagðar eru til fyrir flokkunarstöðina árið 2025
Lögð eru fram gögn vegna tillagna um breytingar á móttökustöð á Höfn.
Farið yfir tillögurnar og vísað í gerð fjárhagsáætlunar.
9.
Ný urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Sveitarfélagið gerði samning við Jökulfell um framkvæmdir við nýja urðunarrein sem áttu að fara fram frá júlí til 15. september. Á framkvæmdartímabilinu hafa komið upp ýmsar áskoranir sem hafa valdið töfum, en þessar tafir eru skiljanlegar miðað við aðstæður.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir upplýsingarnar. Framkvæmdum verður haldið áfram en nauðsynlegt er að meta reglulega stöðu verkefnisins og næstu skref.
10.
refa- og minkaveiðar 2024
Í sveitarfélaginu hafa verið ákveðin vandamál tengd refa- og minkaveiðum. Margir samningar við veiðimenn hafa týnst í gegnum árin og nýir samningar hafa ekki enn verið undirritaðir. Í fyrra kom ábending frá Íbúaráði þar sem lýst var áhyggjum af því hvernig refaveiðar eru stundaðar í sveitarfélaginu, þar á meðal auknum áhyggjum af tjóni á búfénaði í Nesjum og Lóni. Sveitarfélagið hefur þó ekki fengið formlegar tilkynningar um þessi tilvik og er því ekki meðvitað um stöðuna. Einnig hafa verið umræður fyrir 2-3 árum um hvort endurskoða ætti reglugerðir varðandi veiðar, með áherslu á að færast frekar yfir í minkaveiðar í stað refaveiða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur bændur sem verða fyrir tjóni af völdum minka og/eða refa að tilkynna tjónið til sveitarfélagsins í gegnum tölvupóstfang afgreidsla@hornafjordur.is. Starfsmanni falið að leggja fram drög að samningi.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Hagatún 14, garðhús
Bjarni Ólafur Stefánsson sækir um byggingarheimild til að reisa garðhús á lóð Hagatún 14. Um er að ræða u.þ.b. 30 fm stakstæða byggingu um 2,65 m að hæð. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Stefán Birgir Bjarnason vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna umsóknina íbúum að Hagatúni 13, 15, 20 og 16 og Miðtúni 15, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna umsóknina íbúum að Hagatúni 13, 15, 20 og 16 og Miðtúni 15, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
12.
Landeignaskrá Breiðabólsstaður 1 - útskipting 5 landeigna
Eigendur Breiðabólsstaðar 1 óska eftir stofnun 5 lóða úr jörðinni í samræmi við framlagða merkjalýsingu. Skipting er í samræmi við deiliskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Byggingarleyfisumsókn - Svínafell 1, breytingar á fjósi og hlöðu
Sótt er um breytingar á landbúnaðarmannvirkjum í Svínafelli 1. Framkvæmdin snýr að breytingu á fjósi og hlöðu í tvær u.þ.b. 20 m2 studio íbúðir, um 70 m2 viðburðarými, salerni fyrir viðburðarýmið og lítið iðnaðareldhús. Framkvæmdin inniheldur stækkun á bílastæði við bygginguna og nýja rotþró. Minniháttar breytingar verða utan á byggingunni, en breytingar á dyrum og gluggum verða nokkrar og húsið verður líklega klætt að utan. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á verslunar- og þjónustusvæði VÞ32.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hefur þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.