Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

89. fundur
20. nóvember 2024 kl. 16:00 - 17:30
Miðgarður
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Xiaoling Yo umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Hundahald og kattahald í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202411055
Lagt er fram yfirlit yfir hunda- og kattahald í sveitarfélaginu, ásamt tillögum til framfara árin 2024 og 2025. Í sveitarfélaginu eru skráðir 87 hundar og 37 kettir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gjaldið verði óbreytt og felur umhverfisfulltrúa að gera þjónustukönnun meðal hunda- og kattaeigenda. Nefndin hvetur hunda- og kattaeigendur til að skrá dýrin sín.
2.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2025-2036
Málsnúmer 202411056
Lagt fram minnisblað um helstu efnistök og tillögur um næstu skref í vinnu við svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2025-2036.
Umhverfisfulltrúa falið að kalla til samráðsfundar um meðhöndlun úrgangs og leiðir til að ná markmiðum um endurvinnsluhlutfall.
3.
Byggingarleyfisumsókn - Sandeyri 8 - 12 gistihús
Málsnúmer 202411010
Samkvæmt ákvæði í deiliskipulagi skal leggja lóðaruppdrátt og byggingaráform fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd til samþykktar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn þar sem þau eru í samræmi við gildandi skipulagsskilmála.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Hagatún 14, garðhús
Málsnúmer 202409091
Bjarni Ólafur Stefánsson sækir um byggingarheimild til að reisa garðhús á lóð Hagatún 14. Um er að ræða u.þ.b. 30 fm stakstæða byggingu um 2,65 m að hæð. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Erindið var grenndarkynnt 9. október með athugasemdarfresti til 6. nóvember 2024. Engar athugasemdir bárust.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarheimild á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Ný merkjalýsing milli Bæjar og Reyðarðár í Lóni
Málsnúmer 202411057
Erindi dagsett 15. nóvember 2024 þar sem Garðar Garðarsson f.h. landeigenda sendir inn fyrirspurn vegna nýrrar landamerkjalýsingar milli Bæjar og Reyðarár í Lóni. Óskað er eftir áliti sveitarfélagsins hvort fyrirhuguð breyting landamerkja jarðanna samrýmist skipulagsáætlunum sveitarfélagsins, sbr. 1. mgr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Svæðið er landbúnaðarland samkvæmt gildandi aðalskipulagi og ekkert deiliskipulag er í gildi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur fyrirhuguð landskipti samræmist skipulagsáætlunum. Nefndin telur að breytt jarðarmörk hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðanna, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
6.
Hringvegur um Hornafjörð, aukin eftnistaka úr Fjarðará - beiðni um umsögn
Málsnúmer 202411060
Tekin fyrir beiðni frá Skipulagsstofnun dags. 18. nóvember 2024 um umsögn vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna áforma um að auka efnistöku úr Fjarðará vegna gerðar hringvegar um Hornafjörð. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Nefndin telur að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Framkvæmdin er framkvæmdaleyfisskyld. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Sandbakkavegur 5 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202411063
Lögð er fram fyrirspurn til skipulagsstjóra um hvort fyrirliggjandi byggingaráform að Sandbakkavegi 5 krefjist breytingar á deiliskipulalagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að áformin kalli á breytingar á deiliskipulagi.
8.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Silfurbraut
Málsnúmer 202403090
Lögð er fram fyrirspurn til skipulagsstjóra um hvort fyrirliggjandi byggingaráform að Silfurbraut 44-46 krefjist breytingar á deiliskipulalagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að áformin kalli á breytingar á deiliskipulagi.
9.
Aðalskipulag Litlahorn - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202411064
Lagt er fram erindi frá Ómari Antonssyni á Horni dagsett 10. nóvember 2024 þar sem skorað er á sveitarfélagið um að fella niður skilyrði um deiliskipulag fyrir uppbyggingu gistirýma á einstaka jörðum samkvæmt aðalskipulagi Hornafjarðar.
Umhverfis og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið. Unnið er að endurskoðun aðalskipulags og skilmálum fyrir uppbyggingu í sveitarfélaginu. Meginreglan verður sú að krafist verður deiliskipulagsgerðar nema heildaruppbygging sé minniháttar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.