Umhverfis- og skipulagsnefnd
90. fundur
4. desember 2024
kl.
14:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Landris og leirur við Hornafjörð
Lagt er fram minnisblað um landris og sjávarstöðubreytingar og mögulegar afleiðingar á leirurnar í Hornafirði og Skarðsfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar minnisblaðinu í vinnslu við endurskoðun aðalskipulags.
2.
Flateyjarbúið, kaup jarða - beiðni um umsögn
Erindi dagsett 27. nóvember 2024 þar sem Matvælaráðuneytið óskar eftir umsögn sveitarstjórnar vegna óskar um að ráðuneytið samþykki kaup Flateyjarbúsins á jörðum í Hornafirði. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum sveitarfélagsins, landsskipulagsstefnu eða annarri stefnu um landnýtingu eftir því sem við á. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni og hvort ráðstöfunin styrki landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur fyrirhuguð áform um nýtingu jarðanna séu í samræmi við aðalskipulag og gerir ekki athugasemd við kaup jarðanna. Nefndin bendir á að á hluta landsins séu verðmæt vistkerfi sem huga þarf að við breytingu á landnotkun. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Skaftárhrepps 2023-2043
Skaftárhreppur óskar eftir umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á tillögu að aðalskipulagi Skaftárhrepps 2023-2043.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu aðalskipulags Skaftárhrepps 2023-2043 en áréttar fyrri athugasemdir um að deilt hafi verið um sveitarfélagamörk.
4.
Skriða - beiðni um umsögn vegna ákvörðunar um matsskyldu
Tekin er fyrir tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Um er að ræða matsskyldufyrirspurn um ferðaþjónustu í landi Skriðu en fyrirhugað er að byggja upp í áföngum 200 herbergja hótel og baðlón, 200 herbergja vegahótel og allt að 90 stakstæð smáhýsi. Einnig verður gert ráð fyrir fastri búsetu starfsmanna með 10 starfsmannaíbúðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur telur að ágallar séu á matsfyrirspurninni og telur að frekari gögn þurfi til að taka ákvörðun um uppbygginguna. Engin umfjöllun er um mögulega valkosti, hvort sem er í stærð eða fyrirkomulagi, lítil umfjöllun um áhrif á samfélag og ekkert fjallað um vöktun umhverfisáhrifa.
5.
Hoffellslambatungur, stjórnunar og verndaráætlun
Unnið er að stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs í Hoffellslambatungum. Lögð er fram verkefnalýsing til upplýsingar.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að unnið sé að stjórnunar- og verndaráætlun svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að unnið sé að stjórnunar- og verndaráætlun svæðisins.
6.
Hlíðartún 12, umsókn um breytingu á götukanti
Í mái 2023 sótti Óskar Arason um breytingu á götukanti til að koma fleiri bílastæðum við Hlíðartún 12. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti tillögur umsækjanda á fundi 15.5.2023 og bókaði að heimilt verði að taka niður götukant fyrir tvo bíla til viðbótar. Gert var ráð fyrir að ný bílastæði verði aðgreind frá núverandi innkeyrslu í samráði við starfsmann sveitarfélagsins. Vorið 2024 tók lóðarhafi niður 9 m kantstein og gangstétt í landi sveitarfélagsins án þess að hafa samband við starfsmenn sveitarfélagsins. Staða í dag er sú að hluti Hlíðartúns framan við hús nr.12 er án gangstéttar og innkeyrsla við húsið er 13 m að breidd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd skorar á lóðarhafa að lagfæra gangstétt og götukant nú þegar. Að öðrum kosti mun sveitarfélagið vinna lagfæringar á kostnað eiganda.
7.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 38
Vegna mikillar eftirspurnar eftir hleðsluinnviðum innan sveitarfélagsins er óskað eftir samstarfi með aðstöðu frá sveitarfélaginu til að koma upp hleðsluinnviðum fyrir rafbíla. ON leitar að hentugum svæðum í sveitarfélaginu, hvort sem er á lóð eða á bílastæði í eigu sveitarfélagsins, til að koma fyrir hleðsluinnviðum fyrir íbúa og viðskiptavini sveitarfélagsins. ON hefur óskað eftir að koma inn á fundinn vegna umsóknar um nýja lóð fyrir hraðhleðslustöð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og hvetur ON til að sækja um aðrar lóðir fyrir uppbygginguna í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Landeignaskrá Skaftafell 3 - uppskipting 3 landeigna
Stefán Benediktson óskar eftir skiptingu 3 landeigna úr jörð Skaftafell III.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeigna. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Landeignaskrá Svínafell 1 Öræfum - útskipting 2 landeigna, breyting á lóðarmörkum
Hafdís S. Roysdóttir óskar eftir staðfestingu sveitarfélagsins vegna landskipta þar sem tveimum nýjum spildum er skipt út frá jörðinni Svínafelli 1 í Öræfum. Breyting á afmörkun Nýjatúns F2218222 vegna aðkomuvegar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta kom inn á fundinn og fór yfir stöðu endurskoðunarinnar og tímaáætlun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á tímaáætlun. Nú er gert ráð fyrir að vinnslutillaga verði kynnt í apríl. Enn er gert ráð fyrir að endanlegt skipulag verði staðfest í lok árs 2025.
11.
Hvalvörðugilslækur í landi Hofs - Deiliskipulag
Deiliskipulag ferðaþjónustu við Hvalvörðugilslæk var auglýst í Lögbirtingablaðinu, skipulagsgátt mál nr. 870/2024 og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 11. júlí til 30. ágúst 2024. Samhliða var auglýst breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Umsagnir bárust frá RARIK, Veðurstofu Íslands og Minjastofnun Íslands.Umhverfis- og skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins á fundi 4. september 2024 þar til staðbundið hættumat liggur fyrir.Lagt er fram staðbundið hættumat ásamt uppfærðum skipulagsgögnum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Hvalvörðugilslækjar skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.