Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

92. fundur
22. janúar 2025 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Agða Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Dagskrá
1.
Bugðuleira 6 - umsókn fyrir íbúðir
Málsnúmer 202501004
Erindi Fauska ehf. vegna starfsmannaíbúða að Bugðuleiru 6 lagt fram. Óskað er eftir heimild til heilsársnýtingu fyrir starfsmenn í húsnæðinu. Í bókun skipulagsnefndar frá 7. febrúar 2018 var samþykkt að heimila fyrirhugaða notkun húsnæðis tímabundið til tveggja ára eða þar til deiliskipulag á svæðinu hefur öðlast gildi. Ekki lá þá fyrir deiliskipulag á lóðinni en fyrirhugað var að hefja þá vinnu árið 2018. Í þeirri vinnu átti að taka afstöðu til starfsmannaíbúða á svæðinu.Deiliskipulag hefur enn ekki verið gert en svæðið er á skilgreindu athafnasvæði AT1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til endurskoðunar aðalskipulags.

2.
Umsögn vegna umsóknar um lögbýlisrétt - Nýbýli á 280 ha land í Skaftafelli 3 til skógræktar og ferðaþjónustu
Málsnúmer 202501060
Tekið fyrir erindi þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um lögbýlisskráningu Skaftafells 3 L222633. Skv. gildandi aðalskipulagi er svæðið landbúnaðarsvæði.
Nefndin gerir ekki athugasemd við að Skaftafell 3 verði að lögbýli en bendir á að á staðnum er enginn íbúi né starfssemi. Nefndin bendir einnig á að áður en landbúnaður hefst, svo sem skógrækt, þarf að sækja um framkvæmdaleyfi.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að fela starfsmanni að skila inn umsögn sveitarfélagsins til ráðuneytisins.
3.
Landeignaskrá - Breiðabólsstaður 5 - merkjalýsing
Málsnúmer 202501043
Óskað hefur verið eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Breiðabólsstað 5. Í merkjlýsingunni er lóðin uppmæld og afmörkuð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að hún hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Hafnarbraut 47 - Stækkun lóðar
Málsnúmer 202501010
Tekin er fyrir umsókn Einars Bjarna Gunnarssonar um stækkun lóðar Hafnarbraut 47 til norðurs. Lóðin er skráð 900 m2 skv. lóðaleigusamningi frá 2017. Óskað er eftir að lóðin verði um 1.100 m2 í samræmi við eldri uppdrátt. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að grenndarkynna erindið í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.
Landeignaskrá: Seljavellir - Seljavellir 2D, stofnun landeignar
Málsnúmer 202412119
Ásgeir Núpan Ágústsson og Valgerður Egilsdóttir óska eftir staðfestingu á merkjalýsingu sem gerir ráð fyrir stofnun nýrrar lóðar í landi Seljavella. Um er að ræða 1.050 fm lóð utan um íbúðarhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Landeignaskrá Skaftafell 3 - skipting landeignar
Málsnúmer 202411097
Stefán Benediktson óskar eftir skiptingu landeignar úr jörð Skaftafell III.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Farið yfir stöðu aðalskipulagsins og næstu skref. Lagt fram minnisblað um landnotkun á jaðri þjóðgarðs og samráð við Vatnajökulsþjóðgarðs.
Lagt fram til kynningar.
8.
Pakkhús, Krosseyjarvegur 3 garðhús - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202501057
Tekin er fyrir fyrirspurn um hvort leyfi fáist til að reisa 30 m2 garðhús á lóð Pakkhússins, Krosseyjarvegi 3. Í gildi er deiliskipulag Hafnarvík - Heppa frá 2011.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í vinnslu við deiliskipulagsbreytingu Hafnarvík-Heppu og óskar eftir afstöðumynd af fyrirhugaðri framkvæmd.

9.
Skipulag - Fráveita áfangi 4B, byggingarreitur
Málsnúmer 202501067
Til stendur að hefja hönnunarvinnu fyrir áfanga 4B við endurbætur á fráveitukerfi Hafnar. Framkvæmd mun fela í sér m.a. endurnýjun búnaðar á túni vestan við Nýheima. Í gildi er deiliskipulag miðbæjar Hafnar frá 1988.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram.

10.
Deiliskipulag Hafnarvík-Heppu, endurskoðun lóðarmarka
Málsnúmer 202312092
Tekin fyrir drög að deiliskipulagsbreytingu fyrir Hafnarvík-Heppu.
Málinu frestað.
11.
Hafnarbraut 23 -25 - Deiliskipulag
Málsnúmer 202411024
Tekin fyrir beiðni um að lóðirnar Hafnarbraut 23 og 25 verði sameinaðar í eina svo að reisa megi þar tveggja hæða gistiheimili með 10-14 litlum íbúðum.Hafnarbraut 23 og 25 eru innan miðsvæðis í aðalskipulagi. Í gildi er deiliskipulag miðbæjar Hafnar frá 1988.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki áformum um uppbyggingu miðbæjarins en við skipulag og byggingu svæðisins skal leggja áherslu á að styrkja heildaryfirbragð byggðarinnar, fylla í bæjarmyndina svo hún verði samfelld.
12.
Hvalvörðugilslækur - Umsókn um framkvæmdarleyfi
Málsnúmer 202501058
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi til að plægja og leggja háspennustreng frá Hofi að Hvalvörðugilslæk í Öræfum. Strengurinn er ætlaður til uppbyggingar aðstöðu fyrir starfsmenn og ferðamenn við Hvalvörðugilslæk.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga, með fyrirvara um jákvæðar umsagnir Fiskistofu og Minjastofnunar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Hlíðarberg 1 - borun eftir heitu vatni
Málsnúmer 202501025
Tekin er fyrir fyrirspurn um hvort sveitarfélagið þurfi að hafa aðkomu að máli er varðar borun eftir heitu vatni til heimanotkunar undir 3,5 MW varma í landi Hlíðarbergs 1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd álítur að framkvæmdin sé ekki framkvæmdaleyfisskyld.

14.
Borgarhöfn 2-3 Neðrabæ - endurnýjun á framkvæmdaleyfi vegar
Málsnúmer 202411076
Sótt er um endurútgáfu framkvæmdaleyfis vegna breytingar á vegi að Borgarhöfn 2-3 Neðribæ. Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti að veita framkvæmdarleyfi til vegarins þann 12. nóvember 2020 með þeim skilmálum sem fram koma í umsögn Minjastofnunar Íslands frá 27. október 2020. Endurnýja þarf framkvæmdarleyfið þar sem ekki var byrjað á framkvæmdum innan árs frá því það var samþykkt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja framkvæmdaleyfi vegna vegarins með þeim skilmálum sem fram koma í umsögn Minjastofnunar. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Beiðni um upplýsingar varðandi umhverfismál
Málsnúmer 202412095
Innviðaráðuneytið í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið vinnur að kortlagningu á verkefnum á sviði umhverfismála hjá sveitarfélögum. Óskað eftir að sveitarfélagið taki saman og sendi eftirfarandi upplýsingar.Hvaða stefnum á sviði umhverfismála býr sveitarfélagið að (umhverfis-, hringrásar-, náttúruverndar-, loftlags- eða aðrar)?Ef stefnur á sviði umhverfismála eru til staðar:- hvenær voru þær síðast uppfærðar?- fylgir þeim aðgerðaáætlun?Hver eru helstu lögbundnu verkefni á sviði umhverfismála sem sveitarfélagið sinnir að staðaldri?Hver eru helstu sértæku verkefni á sviði umhverfismála sem sveitarfélagið hefur kosið að vinna að?Hver eru helstu verkefni á sviði umhverfismála sem sveitarfélagið hefur hug á að sinna en ekki haft tök eða bolmagn til að sinna?
Lagt fram til kynningar.
16.
Kæra á ákvörðun bæjarstjórnar frá 02.10.2024 vegna mænisstefnu á lóð Stafafellsfjöll 1D
Málsnúmer 202411003
Lögð var fram kæra vegna ákvörðun bæjarstjórnar frá 2. október þar sem vikið er frá kröfum í deiliskipulagi fyrir frístundasvæði Stafafells Lóni, um mænisstefnu og ásýnd hússins á lóðs nr. 1D. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp í málinu þann 21. janúar sl.Að teknu tilliti til málsatvika er ekki álitið að grenndarréttur kæranda sé skertur með þeim hætti að hann teljist hafa lögvarða hagsmuni í málinu. Kröfu kæranda um ógildingu hinnar kærðu ákvörðunar var vísað frá úrskurðarnefndinni.
Lagt fram til kynningar.