Umhverfis- og skipulagsnefnd
95. fundur
5. mars 2025
kl.
14:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Verk- og matslýsing Kerfisáætlun
Landsnet hvetur sveitarfélagið að upplýsa um stöðu á aðalskipulagi og fyrirhugaða landnotkun sem getur haft áhrif á mótun kerfisáætluna.
Starfsmanni falið að svara Landsneti og koma því á framfæri að umtalsverð uppbygging sé áætluð í sveitarfélaginu á næstu árum. Mikilvægt er að tryggja afhendingaröryggi og næga raforku til starfsemi og heimila innan sveitarfélagsins.
2.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Lögð fram drög að niðurstöðum úr C.10 verkefninu. Taka þarf ákvörðun um hvort vinna eigi áfram með einhver verkefni og koma inn í umsókn um LIFE styrk vegna aðlögunar Íslands að loftslagsbreytingum.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að rita minnisblað fyrir bæjarráð um tillögur sem fram komu á fundinum.
3.
Umhverfisviðurkenning 2024
Lagðar fram tilnefningar til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2024.
Xiaoling Yu kom inn á fundinn undir þessum lið.
Nefndin samþykkir framlagðar tillögur.
Nefndin samþykkir framlagðar tillögur.
4.
Fyrirspurn vegna áforma um uppbyggingu á Hafnarbraut 11
Reynir Ásgeirsson óskar eftir, fyrir hönd Andreyn ehf, heimild til að byggja 10 herbergja gistiheimili á lóðinni Hafnarbraut 11.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir upplýsingum um fyrirkomulag bílastæða og framtíðaráform fyrir aðliggjandi lóð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, í samræmi við samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, í samræmi við samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.
Byggingarleyfisumsókn Smyrlabjargavirkjun 3A - Spennistöð
Rarik hyggst reisa spennistöð við Smyrlabjargarvirkjun. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar byggingu spennistöðvar á lóðinni. Fallið er frá grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar byggingu spennistöðvar á lóðinni. Fallið er frá grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
6.
Umsókn um lóð fyrir hleðslustöð
ON sækir um lóð við Óslandsveg við höfnina fyrir hleðslustöð. Deiliskipulag er til fyrir svæðið og er lóðin skipulögð sem dvalarsvæði/opið grænt svæði.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að vinna áfram að málinu. Nefndin mælir með úthlutun lóðarinnar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Lóð fyrir hárgreiðslustofu - fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Karl Guðni Ólafsson sækir um lóð fyrir hárgreiðslustofu á horni Hafnarbrautar og Litlubrúar þar sem gamla Sindrahúsið stóð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að mikilvægt sé að nýta lóðina betur en fyrirspurnin gerir ráð fyrir. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að ræða við umsækjanda.
8.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Undirbúningur fyrir vinnufund 14. mars. Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta kom inn á fundinn.
Lagt fram til kynningar.
9.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram vinnslutillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu á Skriðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hugnast ekki stærðargráða byggingaráformanna og telur svæðið og samfélagið ekki bera þennan fjölda gesta. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að taka saman upplýsingar um gistirými í sveitarfélaginu í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Borgarhöfn 2-3 - Deiliskipulag
Sótt er um heimild til að leggja fram breytingu á deiliskipulagi Borgarhafnar - Neðribæjar. Breytingin felst í stækkun á tjaldsvæði og byggingarreiti fyrir smáhýsi og þjónustuhúsi. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint fyrir verslun og þjónustu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi en bendir á að uppbyggingaráætlanir þurf að vera í samræmi við heimildir í aðalskipulagi.
11.
Stækkun byggingar, Fiskhóll 11, deiliskipulag
Imsland ehf. óskar eftir afstöðu byggingaryfirvalda vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Fiskhól 11 samkvæmt meðfylgjandi fyrirspurnarteikningum. Í gildandi deiliskipulagi fyrir Fiskhól 11 er lóðarstærð 2028,9 m². Óskað er eftir fjölgun íbúða um eina og stækkun á byggingarreið fyrir bílskúr og sólstofu og aukning á byggingarmagni í nýtingarhlutfall 0,6. Einnig er óskað eftir fjölgun bílastæða úr 10 í 13. Lögð fram samantekt um byggingarmagn á lóðum á Fiskhól.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að fyrir liggur heimild til viðbyggingar á húsnæðinu þar sem nýtingarhlutfall er hækkað úr 0,3 í 0,5. Miðað við það telur nefndin að búið sé að fullnýta það byggingarmagn sem heimilt er að byggja á lóðinni. Umsækjanda er bent á að hægt er að óska eftir breytingu á fyrirhuguðum byggingaráformum innan þess nýtingarhlutfalls sem kemur fram í deiliskipulagi með s.br.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að fyrir liggur heimild til viðbyggingar á húsnæðinu þar sem nýtingarhlutfall er hækkað úr 0,3 í 0,5. Miðað við það telur nefndin að búið sé að fullnýta það byggingarmagn sem heimilt er að byggja á lóðinni. Umsækjanda er bent á að hægt er að óska eftir breytingu á fyrirhuguðum byggingaráformum innan þess nýtingarhlutfalls sem kemur fram í deiliskipulagi með s.br.