Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

10. fundur
15. apríl 2015 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þorlákur Helgi Pálmason varaformaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir formaður
Ágúst Máni Aðalsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesler Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing
Málsnúmer 201501025
Ákveðin hefur verið ný dagsetning fyrir ungmennaþing þar sem síðastliðin dagsetning fell niður. Ný dagsetning er því þriðjudagurinn 21. apríl klukkan 13:00 í Nýheimum. Einnig var ákveðið að Margrét Gauja, námsráðgjafi FAS verði ráðinu til halds og traust við undirbúning og framkvæmd þingsins þar sem Dagbjört Ýr, tómstundafulltrúi verður frá vinnu þangað til í mai. Þá hefur verið ákveðið að hafa samband við Ingu Auðbjörgu, formann LÆF og sjá hvort hún geti komið í stað Unnsteins, framkvæmdastjóra LÆF til að opna ráðstefnuna. Öðrum verkum er skipt niður á meðlimi ráðsins sem síðan vinna úr þeim í samráði við starfsmann. Ákveðið að meðlimir ráðsins hittist ásamt varamönnum á mánudaginn 20. apríl til að fara yfir umræðuhópa og hvers er ætlast til af hverjum og einum er varðar þingið.
2.
Ungt fólk og lýðræði - ráðstefna
Málsnúmer 201502007
Þorlákur Helgi og Sigríður Þórunn kynna niðurstöður ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði sem haldin var í Stykkishólmi dagana 25.-27. mars. Það er samhljóða álit þeirra að ráðstefnan hafi verið skemmtileg en þó gagnlegri yngri aldurshópi. Þá þótti þeim Dale Carnegie námskeiðið virkilega uppbyggilegt sem og VR-skóli lífsins, ef um fólk sem ekki væri komið inn á vinnumarkað væri að ræða. Ráðið er sammála um að ráðstefnan ætti að vera fastur liður í starfi ungmennaráðs Hornfjarðar.
3.
Ráðstefna Evróu unga fólksins í Búlgaríu
Málsnúmer 201504031
Dagbjört Ýr, tómstundafulltrúi kynnir ráðstefnuna ,,Give power to empower" sem haldin verður í Ribaritsa, Búlgaríu dagana 26. apríl-5. mai. Ráðstefnan byggist upp á því að kenna þátttakendum að byggja upp verkefnamiðað æskulýðsstarf og því ætti námsefnið að koma að góðu gagni fyrir ungmennaráð á næsta ári.