Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

100. fundur
10. mars 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stefán Birgir Bjarnason
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Emilía Alís Karlsdóttir
Isold Andrea Andrésdóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð sameiginlegur fundur með bæjarráði
Málsnúmer 202211033
Komið er að árlegum fundi ungmennaráðs og bæjarráðs Hornafjarðar.Markmið ungmennaráðs á þessum fundi er að halda bæjarráði upplýstu um sjónarmið, hugmyndir og málefni sem brenna á ungu fólki. Ungmennaráð leggur áherslu á að rödd unga fólksins heyrist og að þau mál sem skipta þau máli séu tekin til skoðunar í þágu framtíðaruppbyggingar bæjarins.Fyrir mánuði átti ungmennaráð fund með fræðslu- og frístundarnefnd þar sem svipuð málefni voru til umræðu. Á þessum árlega fundi með bæjarráði verður áfram unnið með þau mál ásamt öðrum sem ungmennaráð telur brýn.
Ungmennaráð þakkar bæjaráði fyrir áhuga þeirra og uppbyggilegar umræður á fundinum. Rætt var um mikilvæg málefni tengd sveitarfélaginu, þar á meðal starfsemi félagsmiðstöðvar, samfélagsmiðstöð, hugmyndir um leikvelli og útisvæðið við Horssabithaga. Jafnframt var fjallað um Barnvænt sveitarfélag, framhaldsskólann og heimsókn forseta Íslands.

Ungmennaráð leggur til að kynning á framangreindum málefnum verði tekin til umræðu í bæjarráði og vísar kynningunni þangað og þakkar þeim kærlega fyrir komuna og samtalið.

Ungmennaráð væntir þess að fá svör um málefni sem rædd voru á fundinum á næsta fundi ungmennaráðs, mánudaginn 7. apríl.
2.
Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar
Málsnúmer 202502056
Forseti Íslands kemur í fyrstu opinberu heimsókn sína innanlands til Hornafjarðar 12. - 13. mars. Það er sannur heiður fyrir Austur-Skaftfellinga að fá að taka á móti frú Höllu Tómasdóttur og í heimsókninni gefst íbúum tækifæri til að varpa ljósi á fjölbreytta starfsemi og framtíðarsýn sveitarfélagsins. Ungmennaráð hefur hlutverk í heimsókn forsetans og ætlar m.a. að segja frá starfi ungmennaráðs og sýna myndband sem það lét gera. Einnig gefst ungmennaráði tækifæri á að koma skoðunum sínum á framfæri.
Lagður var fram texti af ræðu ungmennaráðs til kynningar. Fundarmenn fóru yfir textann og var hann samþykktur samhljóða. Tveir fulltrúar ungmennaráðs munu flytja ræðuna fyrir forseta Íslands á viðburði í Nýheimum, þann 12. mars næstkomandi.
3.
Barnvænt sveitarfélag lokaskýrsla fyrstu aðgerðaráætlunar 2025
Málsnúmer 202412118
Verkefnastjórar Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF hafa óskað eftir að koma til Hafnar í Hornafirði til að veita sveitarfélaginu formlega viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag. Ungmennaráð leiðir skipulagningu viðburðarins með stuðningi frá fræðslu- og frístundasviði ásamt öðru starfsfólki sveitarfélagsins.
Verkefnastjóri kynnti fyrirhugaðar hugmyndir að viðburði sem ungmennaráð tók vel í.
Dagsetning og tímasetning hafa ekki verið ákveðnar en stefnt að því að það verði snemma í apríl.
Vinnufundur verður þegar nær dregur