Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

103. fundur
10. júní 2025 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Smári Óliver Guðjónsson
Dagmar Lilja Óskarsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Graffíll
Málsnúmer 202505023
Þann 20. maí 2025 samþykkti bæjarráð Hornafjarðar að veita listahátíðinni Graffíl fjárhagslegan stuðning að upphæð 2.500.000 kr., sem rúmast innan samþykktra fjárheimilda. Forsvarsmenn hátíðarinnar óska eftir áframhaldandi samstarfi við sveitarfélagið í tengslum við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar.Ungmennaráð Hornafjarðar óskar eftir stöðukynningu á verkefninu.
Ungmennaráð þakkar kærlega fyrir góða kynningu og óskar Graffíl velfarnaðar með verkefnið.
Ráðið hvetur alla til að kynna sér heimasíðu þeirra sem fer í loftið á næstu dögum:
www.graffill.com

Við hvetjum alla til að taka virkan þátt!

2.
Samfélagsmiðstöð
Málsnúmer 202504014
Kynning og samtal ungmennaráðs við forsvarsmenn Nýheima. Hver er framtíðarsýn Nýheima? Er hægt að efla Nýheima sem samfélagsmiðstöð fyrir ungt fólk og samfélagið í heild?
Ungmennaráð Hornafjarðar kynnti fyrir Jónu Benny hugmyndir sínar um hvernig þróa mætti Nýheima sem öflugan samfélagsvettvang þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, unnið, lært og átt innihaldsrík samskipti.

Ráðið bendir á að Nýheimar gegni þegar mikilvægu hlutverki í samfélaginu en tækifæri séu til að nýta rýmin þar á markvissari hátt og gera þau aðgengilegri og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytta notkun.
Fram komu hugmyndir um að samnýta og opna rými þannig að þau geti stutt við daglega viðveru, samstarf og samveru íbúa ekki síst námsfólks og ungs fólks sem leitar að vettvangi til að vera hluti af samfélaginu og þróa eigið framtak.
Ungmennaráðið leggur áherslu á að slíkar breytingar þurfi að gerast í samvinnu við alla hagsmunaaðila og hvetur þá sem bera ábyrgð á þróun hússins til að eiga samtal við ungt fólk og hlusta á þeirra sýn og þörf. Slík samræða getur leitt til rýmis sem nýtist samfélaginu í heild og eykur tengsl, þátttöku og vellíðan íbúa.
3.
Humarhátíð 2025
Málsnúmer 202502071
Dagskrá Humarhátíðar var kynnt og samstarfsmöguleikar ræddir frekar.
Ungmennaráð lýsir yfir mikilli ánægju og eftirvæntingu vegna komandi Humarhátíðar. Ráðið mun koma að skipulagningu hátíðarinnar og sjá um tiltekin verkefni í tengslum við viðburðinn.
4.
Ungmennaráð 2024-2025
Málsnúmer 202408106
Lokafundur ungmennaráðs Hornafjarðar 2024-25.Hverju vill núverandi ungmennaráð koma á framfæri til samfélagsins og til næsta ungmennaráðs?
Ungmennaráð vill færa innilegar þakkir fyrir afar gott samstarf á liðnu starfsári. Það hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi að vinna að fjölbreyttum verkefnum með frábæru fólki innan samfélagsins.

Við hlökkum til að sjá næsta ungmennaráð taka við keflinu og vinna áfram að þeim hugmyndum og málum sem enn eru í þróun.

Við viljum jafnframt hvetja nýtt ráð til að vera óhrætt við að koma hugmyndum sínum á framfæri og láta til sín taka. Það er mikilvægt að raddir ungs fólks heyrist og ekki bíða eftir að einhver annar geri hlutina heldur vera frumkvöðullinn sjálfur.

Engin hugmynd er of lítil eða ómerkileg, allar hugmyndir eiga rétt á sér og geta haft áhrif.

Við hvetjum líka öll ungmenni á Hornafirði til að fylgja draumum sínum, taka þátt og treysta því að þeirra sjónarmið skipta máli. Framtíðin er ykkar og þið hafið afl til að móta hana.