Ungmennaráð Hornafjarðar
11. fundur
13. maí 2015
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þorlákur Helgi Pálmason
varaformaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
formaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Ingvi Þór Sigurðsson
aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesler
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing
Farið yfir niðurstöður frá ungmennaþingi og ákveðið að Dagbjört taki þær saman í töflur og kynni þær ásamt Sigríði, formanni á fundi fræðslu- og tómstundanefndar þriðjudaginn 19. mai. Það er samhliða álit allra embættismanna að þingið hafi gengið vel fyrir sig. Niðurstöðurnar eru ákaflega áhugaverðar og munu koma sér vel á næsta starfsári.
2.
Ráðstefna Evróu unga fólksins í Búlgaríu
Dagbjört kynnir niðurstöður frá námskeiðinu Give power to Empower og ræðir um þau verkefni sem þaðan spruttu. Upp kemur sú hugmynd að ungmennaráð Hornafjarðar sæki um styrk til Erasmus til að fara út og læra af öðru ungmennaráði og bæta sig enn fremur í því flotta starfi sem hingað til hefur verið unnið. Þá telja meðlimir ráðsins að slíkt verkefni verði einstaklega lærdómsrík reynsla þar sem ungmennaráð annarsstaðar frá séu ef til vill lengra komin er varðar þróun og reynslu slíkra ráða.
3.
Humarhátíð 2015
Ungmennaráði hafa borist fyrirspurnir varðandi dagskrá á humarhátíð fyrir ungmenni á aldrinum 13-18 ára. Rætt var um hugmyndir sem gætu mögulega verið framkvæmanlegar og voru þær meðal annars paintball, úti-tónleikar, þrautabraut, fatahönnunarkeppni, grillveisla og skrípaleikar.
4.
Upgjör árs og framtíðarsýn
Yfir heildina litið telja embættismenn ráðsins að starfið hafi verið gott og töluvert öflugra en síðustu ár. Ráðið var þó frekar lengi að koma sér af stað en telur það aðallega vera vegna upplýsingaskorts. Þá hefði það gert starfið uppbyggilegra að fylgt hefðu verkefni frá fyrra starfsári sem hægt hefði verið að fylgja eftir en ráðið byrjaði algjörlega frá grunni.
Á starfsárinu fóru meðlimir ráðsins á tvær ráðstefnur, The importance of youth organizations in society and democracy í Reykjavík og UMFÍ ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði í Stykkishólmi. Auk þess hélt ráðið ungmennaþing í Nýheimum fyrir ungt fólk á aldrinum 14-24 ára. Þá var erindisbréf ráðsins endurgert með smávægilegum breytingum á setu embættismanna sem og vali í embættin. Að lokum hefur ráðið byrjað að skoða og leita sér upplýsinga um skuggakosningar sem verður verkefni fyrir næsta ungmennaráð að tækla ásamt því að skoða betur ungmennaskipti á vegum Erasmus .
Að lokum var ákveðið að Sunna Dögg Guðmundsdóttir muni sitja áfram í ráðinu fyrir hönd Grunnskóla Hornafjarðar og Þrykkjuráðs, en í nýju erindisbréfi segir til um að einn fulltrúi frá áðurnefndum stofnunum sitji í tvö ár í senn.