Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

111. fundur
13. apríl 2026 kl. 16:30 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Björg Kristjánsdóttir
Kristján Reynir Ívarsson
Sunna Dís Birgisdóttir
Theódór Árni Stefánsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Humarhátíð 2026
Málsnúmer 202604028
Fulltrúar humarhátíðarnefndar vilja ræða við ungmennaráð um Humarhátíðina, dagskrána, hvað mætti gera betur fyrir ungt fólk og hvernig hægt sé að efla þátttöku ungmenna í hátíðinni.
Ungmennaráð Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhuga og spenningi fyrir Humarhátíðinni. Ráðið fór yfir ítarlegan lista af hugmyndum að dagskráratriðum sem gætu höfðað sérstaklega til ungs fólks og aukið þátttöku þeirra í hátíðinni. Ungmennaráð Hornafjarðar vill jafnframt þakka Siggu kærlega fyrir komuna og gagnlegt samtal.
2.
Barnamenningarhátíð Suðurlands 2026
Málsnúmer 202604029
Samband sunnlenskra sveitarfélaga hefur hvatt sveitarfélög á Suðurlandi til að vinna að barnamenningarhátíð. Starfsmaður Menningarmiðstöðvarinnar ræðir við ungmennaráð um dagskrána og kynnir verkefnið.
Ungmennaráð Hornafjarðar þakkar Vilhjálmi fyrir frábæra kynningu og hvetur alla til að taka þátt í ljósmyndakeppninni. Jafnframt hvetur ungmennaráðið alla til að kynna sér dagskrána.
3.
Þrykkjan og samstarf
Málsnúmer 202604030
Félagsmiðstöðin Þrykkjan hefur undanfarin ár verið í samstarfi við félagsmiðstöðvar á Suðurlandi og þannig fylgt þeirri stefnu sem sveitarfélagið hefur sett um samstarf við sunnlensk sveitarfélög. Krakkarnir í Þrykkjunni hafa þó á undanförnum árum óskað eftir því að samstarfið beinist frekar í hina áttina, það er til Austurlands. Starfsmaður Þrykkjunnar hefur átt fundi með félagsmiðstöðvum á Austurlandi, sem og við Samfés, með það að markmiði að færa samstarfið austur. Gert er ráð fyrir að nýtt samstarf hefjist með næsta skólaári.
Ungmennaráð Hornafjarðar þakkar Erlendi fyrir góða kynningu og framlag hans til verkefnisins.
Ungmennaráð tekur undir orð starfsmanns og Þrykkjuráðs um að samstarf af þessum toga eigi frekar heima með sambærilegri starfsemi á Austurlandi en á Suðurlandi. Á Suðurlandi er vagga starfseminnar á Árnssvæðinu, sem hefur enga beina tengingu við Hornafjörð auk þess sem nú þegar eru ungmennin á Þrykkjualdrinum í miklu samstarfi austur í gegnum íþrótta- og skólastarf og þekkja því frekar ungmenninn á því svæði.
Ungmennaráð hvetur því forstöðumann Þrykkjunnar til að halda þessu starfi áfram.
Jafnframt hvetur ungmennaráð verkefnastjóra til að kynna umræðuna fyrir fræðslu- og frístundanefnd svo halda megi bæjarstjórnarfólki upplýstu um gang mála.
Í framhaldinu var rætt um önnur málefni er varða Þrykkjuna t.a.m. að þörf er á nýjum sófa og betri stólum í þar. Þá var jafnframt rætt um að þótt núverandi aðstaða sé góð þá væri æskilegt að skapa notalegra, svokallað „kósý“ rými fyrir notendur auk þess sem það væri draumur margra væri að koma fyrir öðru pool borði.
4.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Málsnúmer 202510067
Óskað hefur verið eftir því að fjölga hleðslustöðum og bílastæðum við Miðbæ á Höfn. Samhliða því er lagt til að útbúa leik- og útivistarsvæði á litlu svæði við bílastæðið ásamt gönguleið sem tengir skólasvæðið við verslunarsvæðið og bætir öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til ungmennaráðs til umfjöllunar með ósk um að fá fram sjónarmið og hugmyndir ungmenna áður en ákvarðanir verði teknar um framkvæmdir.
Ungmennaráð þakkar fyrir tækifærið til að fjalla um málið. Hugmyndin um leiksvæði við fyrirhugað hleðslustæði með góðri göngutengingu við skólasvæðið er frábær og passar vel við markmið um barnvænt og heilsueflandi samfélag. Gæta þarf að því að gönguleið sé staðsett þannig að fólk stytti sér ekki leið yfir grasflöt og að gönguleiðin sé þannig að ekki myndist pollar á henni eins og oft gerist á núverandi gönguleið frá pósthúsi að Nettó.
Ungmennaráð leggur áherslu á að leiksvæði geti verið meira en bara rólur og vegasölt. Það væri spennandi að sjá skapandi lausnir eins og klifur- eða ævintýrasvæði og náttúrulegan efnivið sem hvetur til hugmyndaflugs og frjáls leiks og svo eru snúningsleiktæki spennandi.
Einnig er mikilvægt að svæðið nýtist öllum aldurshópum með setsvæðum þar sem hægt er að slaka á og njóta samveru. Svæðið gæti auðveldlega fengið notalega „pikk-nikk stemningu“ þar sem fjölskyldur geta beðið á meðan bílar hlaðast og börn leika sér.
Ungmennaráð lýsir yfir jákvæðni gagnvart fyrirhuguðum breytingum og telur þær skref í rétta átt fyrir lifandi og aðlaðandi útisvæði.
5.
Skuggakosningar 2026 ( Sveitarstjórnarkosningar)
Málsnúmer 202601015
Ungmennaráð Hornafjarðar stendur fyrir skuggakosningum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2026 með það að markmiði að auka þátttöku og áhuga ungs fólks á lýðræði og kosningum. Skuggakosningarnar gefa ungu fólki tækifæri til að kynna sér málefni, taka afstöðu og upplifa kosningaferlið á eigin forsendum.Kjördagur sveitarstjórnarkosninganna er 16. maí en skuggakosningarnar fara fram 13. maí. Í kjölfar þeirra verður dagskrá í Sindrabæ frá kl. 19:00 til 22:00. Þar verður kjósendum í Skuggakosningum boðið að koma saman, ræða niðurstöður og njóta samverunnar.Niðurstöður skuggakosninganna verða kynntar þegar fyrstu tölur úr sveitarstjórnarkosningunum liggja fyrir á kjördag.
Ungmennaráð samþykkir framlagða verkáætlun skuggakosninga, þar sem skuggakosningar í FAS fara fram 12. maí og 13. maí í GH og þakkar skipulagsteymi fyrir góða kynningu.
Ungmennaráð lýsir sig reiðubúið til að taka við þeim verkefnum sem skipulagsteymið felur því og hvetur verkefnastjóra til að halda áfram vinnu við verkefnið í samræmi við uppfært verkplan.
6.
Fyrirspurn frá Farsældarráði Suðurlands
Málsnúmer 202604031
Farsældarráð Suðurland hefur sent erindi til allra ungmennaráða á Suðurlandi og beðiði þau að taka eftirfarandi spurningar til umfjöllunnar. 1. Hverjar eru helstu áskoranir barna- og ungmenna í ykkar nærumhverfi/sveitarfélagi?2. Hvaða ákall hafið þið til þess að bæta aðstæður barna- og ungmenna í sveitarfélaginu?3. Hvaða leiðir sjáið þið í átt að aukinni samvinnu/samstarfi á milli stofnana/sveitarfélaga sem geta bætt stöðu barna- og ungmenna?4. Er eitthvað annað sem þið viljið koma á framfæri varðandi bætta stöðu eða aukna farsæld barna- og ungmenna?Farsældarráð Suðurlands vinnur að mótun aðgerðaráætlunar í farsæld barna fyrir Suðurland og munu sjónarmið og reynsla ungmenna verða mikilvægur grunnur í þeirri aðgerðaráætlun.
1. Hverjar eru helstu áskoranir barna og ungmenna í ykkar nærumhverfi/sveitarfélagi?
Að komast í gegnum skólann.
Erfitt að halda uppi öflugu félagslífi þegar fáir búa á staðnum.
Erfitt að eiga í samstarfi við önnur sveitarfélög vegna langra vegalengda.
Erfitt að komast að hjá sálfræðingum og langir biðlistar.
Aðstaða (innan og utan skóla) er víða talin þarfnast úrbóta.
Mikil ferðalög fylgja þátttöku í íþróttastarfi, bæði vegna keppni, móta og æfinga í samstarfi við önnur sveitarfélög.
Skortur á fjölbreyttum íþróttagreinum.

2. Hvaða ákall hafið þið til þess að bæta aðstæður barna og ungmenna í sveitarfélaginu?
Hvetja félagasamtök til að vera virkari í viðburðahaldi.
Auka fjölbreytni í frístundastarfi, svo sem með dansi, fleiri íþróttagreinum og leiklist.
Bjóða upp á námskeið sem gera ungmennum kleift að stunda fleiri en þrjár greinar.
Ungmenni þurfa að fá tækifæri til að prófa sig áfram í íþróttum, listum og öðru fjölbreyttu starfi, sem getur verið flókið þegar æfingar eru skipulagðar langt fram í tímann.
Finna leiðir til að ungmenni á landsbyggðinni geti sótt fjölbreyttari námskeið.
Skapa hvata fyrir námskeiðshaldara, t.d. frá Reykjavík, til að koma út á landsbyggðina.

3. Hvaða leiðir sjáið þið í átt að aukinni samvinnu/samstarfi á milli stofnana/sveitarfélaga sem geta bætt stöðu barna og ungmenna?
Samstarf er lykilatriði í litlum sveitarfélögum, þar sem mikilvægt er að vinna á breiddinni til að ná árangri. Frístundastarf, íþróttir og skólar þurfa að leita allra leiða til að vinna saman. Einnig er mikilvægt að efla samstarf sem hvetur ungmenni til virkrar þátttöku og útiveru.

4. Er eitthvað annað sem þið viljið koma á framfæri varðandi bætta stöðu eða aukna farsæld barna og ungmenna?
Ungmennaráð Hornafjarðar hefur staðið fyrir barna- og ungmennaþingi þar sem skýrt hefur komið fram að ungmenni vilja tilheyra samfélaginu og taka virkan þátt í því og ekki alltaf útfæra sér dagskrá fyrir unga fólkið. Samfélagið þarf að vera virkara að standa fyrir viðburðum þar sem allir eru saman. Mikilvægt er að byggja upp samfélag sem einkennist af vináttu, öryggi og samveru, þar sem jafnframt er hugað að daglegu lífi ungmenna en ekki eingöngu stærri verkefnum.
Ungt fólk hefur sterkan vilja til breytinga og býr yfir skýrum og raunhæfum hugmyndum um úrbætur. Því er lykilatriði að hlusta á ungmenni, treysta þeim og skapa þeim raunverulegt rými til þátttöku í mótun samfélagsins.