Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

15. fundur
10. febrúar 2016 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir aðalmaður
Þorkell Ragnar Grétarsson aðalmaður
Þórdís María R. Einarsdóttir aðalmaður
Ragnar Magnús Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ráðstefna í Finnlandi
Málsnúmer 201602025
Dagbjört og Sigríður kynna ráðstefnuna "Making healthy living trendy - alcohol prevention with attitude" sem haldin var í Finnlandi daga 21-24 janúar. Ráðstefnan fjallaði um skaðleg áhrif áfengis og reykinga á heilsusamlegt líferni en fram komu hinir ýmsu sérfræðingar um þessi málefni. Á ráðstefnunni settu Sigríður og Dagbjört sig í samband við fulltrúa frá Svíþjóð sem einnig eru að vinna að áfengislausum viðburðum í sínu sveitarfélagi. Meðlimir voru sammála um að hægt væri að nota þessa tengiliði til að vinna að nýjum og betri hugmyndum er varðar ungmennaviðburð í tengslum við skuggakosningar og kosningavöku.
2.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201512035
Ungmennaráð ítrekar ósk sína um áheyrnafulltrúa í nefndum sveitarfélagsins. Þrátt fyrir mikinn fjölda nefnda í sveitarfélaginu telja nefndarmeðlimir að ekkert sé til fyrirstöðu þess að ráðið fái áheyrnarfulltrúa. Til taks eru bæði aðal- og varamenn sem gætu tekið að sér það hlutverk en auk þess telur ráðið að það yrði strax skref í rétta átt að fá að minnsta kosti áheyrnarfulltrúa í fræðslu- og tómstundanefnd.
3.
Ungt fólk og lýðræði ráðstenfa á Selfossi
Málsnúmer 201602026
Kynnt er til leiks ráðstefnan Ungt fólk og Lýðræði sem haldin er af Ungmennaráði Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) á Selfossi dagana 16.-18. mars. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Niður með grímuna ? geðheilbrigði ungmenna á Íslandi og fær Ungmennaráð Hornafjarðar að senda tvo fulltrúa. Það er samhliða ákvörðun nefndarmeðlima að þær Þórdís María Einarsdóttir og Sunna Dögg Guðmundsdóttir fari fyrir hönd ráðsins og fallast þær á það.
4.
Heimsókn í ungmennaráð Seltjarnarness
Málsnúmer 201512036
Eftir ítrekaðar tilraunir til að hafa samband við Ungmennaráð Seltjarnarness var tekin ákvörðun um að leita á önnur mið og var því tekin ákvörðun um að heimsækja Ungmennaráð Hafnarfjarðar. Farið verður í ferðina helgina 8-9 apríl þar sem gist verður í Selinu og verður dagskrá í höndum nefnarmeðlima beggja Ungmennaráða báða dagana. Upp kom sú hugmynd að ráðið yrði einum degi lengur í ljósi þess að dagskrá klárast seint á laugardegi og væri því hægt að nýta ferðina í hópefli fyrir ungmennin. Bæði aðal- og varamenn eru boðaðir í ferðina en þær Sigríður Þórunn, Sunna Dögg og Þórdís María tóku að sér að móta skipulagsnefnd fyrir ferðina. Þær munu vinna í nánu samstarfi við skipulagsnefnd sem nú þegar hefur verið mynduð í Hafnarfirði.