Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

29. fundur
8. nóvember 2017 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Arndís Ósk Magnúsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Angela Rán Egilsdóttir
Anna María Harðardóttir
Sigursteinn Már Hafsteinsson
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2017
Málsnúmer 201705032
Ungmennaráð ræddi um hvernig tókst til við framkvæmd ungmennaþings og hverju mætti breyta eða betur fara. Allir fulltrúar voru mjög sáttir við þingið en vörpuðu þeirri spurningu fram hvort það væri sniðugt að byrja næsta þing fyrr á deginum og taka allan daginn? Mikill hugur er að halda þing á hverju ári og gera það að hefð.Á þinginu núna voru gefnir smokkar til allra og fannst fulltrúum það mjög góð hugmynd.

Það sem betur mátti fara var: Að erfitt er að finna lausnir á vandamálunum sem upp koma í málstofum. Þegar skipt er í hópa þá eru ekki allir sáttir en erfitt er að gera öllum til geðs varðandi hópaskiptingu. Rætt var um að reyna að finna leið til að sporna við slæmri þátttöku nemenda í Fas því þó skyldumæting er á ungmennaþing þá eru þau ekki að mæta. Spurning um að bjóða öllum ungmennum 25 ára og yngri á ungmennaþing.

Í heildina heppnaðist ungmennaþingið mjög vel. Og hlakka fulltrúar ungmennaráðs til að vinna úr niðurstöðum málstofanna og að skipuleggja næsta þing sem haldið verður í september 2018.
2.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Sigrún Birna Steinarsdóttir formaður ungmennaráðs kynnti fyrir fulltrúum norræna samstarfsverkefnið um sjálfbæra bæi. En Sigrún f.h. ungmennaráðs sótti kynningu/fund sem fram fór á Lindarbakka. Ungmennaráð sér fyrir sér tækifæri til að taka þátt í verkefninu með sjónarmið ungs fólks í brjósti.
3.
Ungmennaþing 2017
Málsnúmer 201705032
Fulltrúar ungmennaráðs ákváðu að fundartími til úrvinnslufundar vegna ungmennaþings yrði þ. 9.11.2017 kl. 17:00 í Heppuskóla.
4.
Ungmennahús
Málsnúmer 201701046
Á sl. vetri var enn og aftur kallað eftir að fá stað fyrir unga fólkið til að hittast á, Ungmennahús. Ákveðið var að ungmennin fengju að vera í húsnæði Þrykkjunnar 1 x í viku. Ekki var mikil spenna í kringum það því fáir mættu þangað. Nú er verið að gera upp húsnæði Þrykkjunnar sem býður upp á mun fleiri möguleika heldur en áður í sambandi við afreyingu. Ungmennaráð leggur því til að ungmennin byrji á því að fá einn dag í viku, þriðjudag og að FAS fái fimmtudaga fyrir nemendafélagið í skólanum og er ósk ungmennaráðs að þar ríki allra á milli mikið og gott samstarf. Ungmennaráð vill vinna í því að ásókn í Ungmennahús í Þrykkjunni aukist til muna. Ungmennaráð leggur til að byrja í janúar í Ungmennahúsi með fyrsta viðburð.
5.
Skipan ungmennaráðs 2017-2018
Málsnúmer 201709249
Breyting hefur verið gerð á fulltrúum í ungmennaráði fyrir hönd Fas. Í upphafi var Birta Gunnarsdóttir aðalmaður fulltrúa frá Fas ásamt Svandísi Perlu Snæbjörnsdóttur varafulltrúa. Þar sem Birta hætti í Fas þá varð Svandís Perla Snæbjörnsdóttir aðalfulltrúi en Kristján Vilhelm Gunnarsson var kosinn nýr varafulltrúi fyrir Fas.
Við bjóðum Kristján Vilhelm velkominn í ungmennaráð.